Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 56
V aidas Jucevicius kom til Íslands viku áður en hann fannst látinn í höfninni á Neskaup
stað. Í líkama hans voru 400 grömm af
amfetamíni í um það bil 60 plasthylkj
um sem hann hafði gleypt. Mennirnir
þrír sem síðar köstuðu jarðneskum
leifum hans í sjóinn, þeir Grétar Sig
urðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og
Tomas Malakauskas, tóku á móti hon
um og fóru með hann í íbúð Tomasar
í Furugrund í Kópavogi þar sem hann
lést þann 6. febrúar.
Vaidas veiktist fljótlega eftir að hann
kom til landsins. Þremenningarnir gáfu
honum ýmis hægðalosandi lyf síðustu
þrjá dagana sem hann lifði en allt kom
fyrir ekki. Þá gáfu þeir honum morfín
tengda lyfið Contalgin síðustu einn til
tvo sólarhringana. Réttarmeinafræð
ingur sem krufði Vaidas komst að þeirri
niðurstöðu að hann hefði látist af völdum stífla í mjó
girni vegna fíkniefnapakninga.
Fundu ekki betri felustað
Tomas hélt því fram við yfirheyrslur að hann hefði ætlað
að kalla á lækni þegar Vaidas var veikastur en hann hafi
látist skömmu síðar. Samkvæmt Tomasi pökkuðu Grét
ar og Jónas líkinu í plastpoka og filtteppi svo hægt yrði
að flytja það austur í Neskaupstað. Sjálfur mun Mala
kauskas hafa sagst vilja grafa líkið í jörð nær borginni.
Þar sem Grétar er Norðfirðingur fór hann með flugi
en Tomas og Jónas fóru með líkið austur í bílaleigubíl.
Þeir urðu veðurtepptir á Djúpavogi í tvo daga og komust
ekki til Norðfjarðar fyrr en sunnudaginn 8. febrúar.
Þegar þangað var komið var jörð frosin og ekki nokkur
leið að grafa líkið og í fátinu sem þá kom á þá fundu þeir
ekki betri felustað en sjóinn við bryggjuna. Tomas sagði
þá Grétar og Jónas hafa kastað líkinu í sjóinn en hann
hafi sjálfur staðið álengdar og fylgst með.
Ógeðslegir hlutir
Grétar varð fyrstur til þess að játa aðild að málinu og
Tomas gerði slíkt hið sama skömmu síðar en Jónas Ingi
neitaði staðfastlega sök. Grétar sagði í viðtali við Frétta
blaðið að hann hefði ákveðið, fljótlega eftir handtöku,
að skýra satt og rétt frá öllu. „Ég var búinn að ljúga og
koma óheiðarlega fram við mitt fólk. Ég var fastur í
stórum lygavef og það var mikill léttir að játa glæpinn
fyrir lögreglunni,“ sagði Grétar við Fréttablaðið. Hann
sagðist jafnframt hafa „gert ógeðslega
hluti“ og hann væri reiðubúinn til þess
að taka út sína refsingu. „Ég braut af
mér og það er eitthvað sem ég verð að
lifa með.“
Grétar viðurkenndi fyrir lögreglu að
hann hefði vitað af því að Vaidas var
með fíkniefni innvortis og að sú hugs
un hefði hvarflað að honum að hagn
ast á því að gerast milligöngumaður
um sölu efnanna. Hann sagði einnig
að tíminn frá því að þeir félagar komu
Vaidasi fyrir í höfninni og þangað til
líkið fannst hafi verið honum erfiður.
Samviskan nagaði hann þessa daga.
„Ég hugsaði stöðugt til fjölskyldu
Vaidasar. Mér fannst það hræðileg til
hugsun að ef til vill kæmist fólkið
hans aldrei að því hvað orðið hefði
um hann. Ég var því fegnastur
þegar líkið fannst og upp komst
hver maðurinn var.“
Næstir í pokann
Þremenningarnir hlúðu að Vaidasi í dauðastríðinu en
samkvæmt krufningarskýrslu þótti ljóst að Vaidas hefði
lifað hefði honum verið komið undir læknishendur. Yfir
setan kom að miklu leyti í hlut Grétars sem er sagður
hafa farið með bæn með Vaidasi áður en hann lést.
Grétar sagði í viðtalinu við Fréttablaðið að tvær
ástæður hefðu verið fyrir því að hann hafi einfaldlega
ekki gengið burt frá málinu.
Í fyrsta lagi hafi þeim félögum borist alvarlegar
hótanir frá yfirboðurum Tomasar í Litháen í gegnum
Tomas, sem var í stöðugu símasambandi við þá allan
tímann. Þremenningunum var komið í skilning um
ef þeir gerðu ekki það sem þeim væri sagt yrðu þeir
næstir í pokann.
„Ég var líka dauðhræddur um kærustuna mína því
gefið var í skyn að þeir myndu ráðast á hana.“
Í öðru lagi sagðist Grétar einfaldlega ekki hafa getað
fengið sig til þess að yfirgefa veikan mann. „Það ljótasta
í þessu öllu var þegar ég þurfti að stinga á líkið til þess
að hleypa út gasi sem hafði myndast í maga. Ég vakna
enn um nætur við þessa hræðilegu minningu,“ sagði
Grétar í Fréttablaðinu.
Ótti við mafíuna
Í játningu sinni hjá lögreglu sagðist Grétar hafa viljað
koma Vaidasi til læknis en ekkert hafi orðið af því, aðal
lega vegna andstöðu Tomasar og samverkamanna hans
í eiturlyfjahringnum í Litháen. Grétar segist hafa ótt
ast að verða limlestur eða drepinn ef hann gerði ekki
eins og honum var sagt. Hann sagði Vaidas hafa komið
til landsins í þeim eina tilgangi að smygla efnunum og
hann gerði ráð fyrir að mafían stæði á bak við smyglið.
„Það er rússnesk/líháísk mafía eða hópur sem starf
ar hér á Íslandi,“ sagði hann og staðfesti að Tomas væri
tengdur þessum hópi. Grétar játaði eftir að hafa fengið
tryggingu frá lögreglu fyrir að hún gætti unnustu hans
sem hann óttaðist mjög um.
„Ég hef átt viðskipti úti í þessum löndum og hef séð
til þessara manna. Ég hef átt í kasti við þá og þeir eru
engin lömb að leika sér við.“
toti@frettatiminn.is
Þórarinn Þórarinsson
Mér fannst það hræðileg
tilhugsun að ef til vill kæm-
ist fólkið hans aldrei að því
hvað orðið hefði um hann.
Líkfundurinn á Neskaupstað
Undir miðnætti sunnudaginn 8. febrúar 2004 köstuðu þrír menn líki í sjóinn af netagerðar-
bryggjunni á Neskaupstað. Heldur voru þessir skuggabaldrar þó seinheppnir þar sem kafari fann
líkið fyrir tilviljun aðeins þremur dögum seinna, þann 11. febrúar. Líkið í höfninni reyndist vera af
Litháanum Vaidas Jucevicius. Krufning leiddi í ljós að hann hafði dáið kvalafullum dauðdaga vegna
fíkniefnapakninga sem hann bar innvortis. Böndin bárust að litháískum glæpasamtökum og tveimur
íslenskum mönnum. Líkmönnunum eins og þeir voru kallaðir eftir að þeir voru hnepptir í varðhald.
Grétar og Jónas pökkuðu Vaidasi í plast og teppi og Jónas og Tomas óku síðan með líkið á Neskaupstað.
DV birti játningu Grétars þar sem
ótti hans við mafíuna í Litháen kom
skýrt fram.
Þar sem ekki var hægt að grafa líkið brugðu félagarnir á það
ráð að kasta því í höfnina.
L O K K A N D I
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Hafnarborg - Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Þjóðmenningarhúsið - Hverfisgötu
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil 5.-19. desember
Með kaupum á Kærleikskúlunni styður þú
starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
56 sakamál Helgin 14.-16. desember 2012