Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 30
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR
Leyndarmál Kela. Lesandinn skyggnist
inn í hugarheim hans Kela Kaka og fær
að vita um stórkostlegt leyndarmál
hans. Kisuvinir, látið þessa skemmtilegu
bók ekki fara fram hjá ykkur.
Komnar í verslanir!
Nýja útgáfan af sögunni um Búkollu
er nú loksins komin! Ævintýri sem á
erindi inn á hvert heimili.
Gömlu góðu jólalögin...
Vönduð 120 blaðsíðna barnabók. Sögur af jólasveinunum
tengdar gömlu góðu íslensku jólalögunum. Geisladiskur fylgir
með bókinni þar sem kór Öldutúnsskóla flytur 20 jólalög.
Óhefluð og týnd á unglingsár-
unum
Theodóra er hárgreiðslukona að
mennt og vann lengi vel á stofunni
Rauðhettu og úlfinum. Þessa
dagana er hún í fæðingarorlofi frá
vöruhönnunardeild Listaháskóla
Íslands en Theodóru og eigin-
manni hennar fæddist sonur fyrir
tveimur mánuðum. Það er því
sannarlega skammt stórra högga í
milli hjá henni. Bókina Hárið vann
hún á meðgöngunni sem var að
hennar sögn enginn dans á rósum.
„Ég ældi alla meðgönguna og var
mjög veik með grindargliðnun.
Mér tókst þetta samt einhvern
veginn, ég skil ekkert hvernig.“
Athygli vekur að fyrir utan
meðgönguna og bókina var hún í
háskólanáminu og vann auk þess
á Rauðhettu og úlfinum. Blaða-
maður spyr í forundran hvernig
hún fari eiginlega að? „Ég get ekki
verið verkefnalaus. Það fer mér
bara ekki að sitja auðum höndum
og mér líður mjög vel þegar ég
hef nóg fyrir stafni. Ég átta mig
fyllilega á því að ég er ekkert
hæfileikaríkari en hver annar.
Mér hefur bara gefist svo vel að
gera það allra besta úr því sem
ég kann. Ég veit hvar styrkleikar
mínir liggja og ég er dugleg að
ögra sjálfri mér.“ Hún segist hafa
verið alin upp við að hafa mikinn
metnað og hún búi til að mynda
svo vel að hafa æft á hljóðfæri.
„Pabbi sagði alltaf að tónlistar- og
stærðfræðikunnáttan ættu sömu
heilastöðina. Ég veit ekkert hvort
það er rétt, en það fékk mig til að
leggja harðar að mér í tónlistinni.
Ég spila því á tvö hljóðfæri og er
flink í stærðfræði,“ segir Theodóra
og hlær.
Theodóra Mjöll er að norðan,
úr Eyjafirðinum. Hún flutti til
Reykjavíkur fimmtán ára gömul
ásamt systur sinni og hóf nám
í hárgreiðslu árið eftir. „Ég var
hræðilegur unglingur, algjört
ógeð, og ég var mjög vond við þau
sem stóðu mér næst. Ég hugsa
oft til baka og finnst eins og ég
sé ennþá að bæta fyrir margt
sem ég gerði á þeim tíma. Ég var
ótrúlega týnd þarna fyrir norðan
og var mjög fegin að flytja suður.“
Hún segir margvíslegar ástæður
hafa verið fyrir því hve ódæl hún
var. En hún varð fyrir alvarlegu
ofbeldi sem unglingur er henni
var nauðgað og hafði það djúpstæð
áhrif á sálina. „Ég var mjög rugluð
og týnd, meðal annars vegna
ofbeldisins, en sem betur fer, með
hjálp stígamótakvenna lærði ég
að vinna mig út úr þeirri vanlíðan.
Þær kenndu mér mjög margt og
veittu mér ómetanlega aðstoð. Ég
hugsa að það taki mig einhvern
tíma enn að vinna mig út úr þessu
svo þeirri vinnu er ekki lokið. En
nú hef ég tólin til þess að takast
á við þetta. Ég vil því alls ekki
líta á mig sem fórnarlamb, eða
skilgreina mig á einhvern hátt
sem slíkt út frá þessu.“
Í hárgreiðslunáminu var
Theodóra nemi á hárgreiðslu-
stofunni Tony and Guy. Hún
segir að sú reynsla hafi einnig
breytt sér mikið úr óheflaðri
sveitastúlku í unga konu
með ábyrgð á sjálfri sér.
„Ég leit alla tíð mikið upp
til Reykvíkinga, fannst
þeir mjög töff. Þar sem
ég kom úr sveitinni var
ég mjög óhefluð og
sagði oft það sem
mér datt í hug.
Kennarar og for-
eldrar mínir töl-
uðu oft um
að ég væri
félags-
lega mis-
þroska. Ég
kunni ekki samskipti við fólk. Það
var því mikil og erfið skólun að
eiga við ólíka viðskiptavini allan
daginn en það hjálpaði mér mikið.“
Þegar hárgreiðslunáminu lauk
tók Theodóra til starfa á hár-
greiðslustofunni Rauðhettu og
úlfinum. Hún hyggst vinna þar
áfram samhliða náminu í LHÍ
á næstu önn þegar fæðingaror-
lofi lýkur. Theodóra á, sem fyrr
sagði, kornungan son, Ólíver,
með eiginmanni sínum. Þau
gengu í hjónaband í júlí 2011. „Ég
hefði aldrei trúað því að ég ætti
eftir að eiga svona „fairytale“ líf,
alveg eftir bókinni. En hlutirnir
æxluðust bara þannig og ég er
mjög þakklát fyrir það í dag.“ Hún
segir meðgönguna þó ekki hafa
verið skipulagða og hún haf komið
henni í töluvert uppnám. „Ég varð
í raun brjáluð. Ég var viss um að
lífið væri ónýtt. Ég ætlaði að klára
vöruhönnunina áður en ég eignað-
ist börn og svo var meðgangan
mjög erfið og fyrstu vikurnar eftir
fæðingu. Ég get allavega ekki sagt
að ég hafi tengt mikið við þetta
bleika ský sem á að fylgja manni
eftir fæðingu. Mér fannst þetta
mjög óþægileg staða fyrst, að vera
mamma einhvers og ég tengdi
ekki við það strax. Þó að vissulega
geri ég það núna. Það er líka með
allt þetta ójafnvægi í líkamanum.
Ég var ekki búin undir það. Manni
er talin endalaus trú um að þetta
sé ekkert mál. En það er það. Mér
fannst ég í miklu ólagi líkamlega
og andlega.“
Óhefðbundnar rannsóknarað-
ferðir
Fyrir bókina lagðist Theodóra í
mikla rannsóknarvinnu og hún
segist hafa fylgst vel með straum-
um í hártísku með því að spyrja
kúnnana sína en einnig með að
fylgjast með konum á götum úti.
„Ég sat á kaffihúsum og njósnaði
um stelpur, mjög „krípí“. En mig
langaði bara svo að vita það ná-
kvæmlega hvað stelpur voru að
gera við hárið á sér og hvað þær
vildu læra að gera.“ Theodóra
heldur líka úti lífstílsbloggi á vef-
svæðinu Trendnet. „Ég er mikill
fagurkeri og ég kann vel að meta
fallega hluti hvort sem það eru
föt, skart eða húsgögn. Ég er samt
ekkert tískufrík en vissulega er ég
mjög meðvituð um tískuna, vegna
vinnunnar.“ Hún segir að ekki sé
von á annari bók í bráð, en það
sé þó aldrei að vita. „Ég er mjög
dugleg að finna mér verkefni. Svo
maður veit aldrei.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Helgin 14.-16. desember 2012