Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 14
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Kertaljós og skreytingar þarf
að umgangast með varúð
Tryggið eldvarnir heimilisins, reykskynjarar, slökkvitæki
og eldvarnarpakkar í miklu úrvali.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
23
24
7
Eldvarnarpakki 1
Tilboðsverð í vefverslun
14.668 kr.
Listaverð 22.741 kr.
Tilvalið í bílinn eða
ferðavagninn
Eldvarnarpakki 2
Tilboðsverð í vefverslun
20.937 kr.
Listaverð 32.460 kr.
Eldvarnarpakki 3
Tilboðsverð í vefverslun
13.398 kr.
Listaverð 20.772 kr.
Eldvarnarpakki 4
Tilboðsverð í vefverslun
7.205 kr.
Listaverð 11.171 kr.
Eldvarnarpakki 5
Tilboðsverð í vefverslun
14.177 kr.
Listaverð 21.980 kr.
LöggæsLa Í BandarÍkjunum er taLað um að strÍðið gegn fÍkniefnum sé tapað
Lögleiðing á eign
og neyslu fíkniefna
Til Íslands streyma fréttir af lögleiðingu kannabisefna í Colorado- og Washing-
tonfylki Bandaríkjanna. Nýjar heimildarmyndir vitna í Bill Clinton og Jimmy
Carter sem segja stríðið gegn fíkniefnum tapað. Hjá landlækni er fólk ósammála
þeirri fullyrðingu en formaður SÁÁ kallar á nýja nálgun.
H vort heldur fólk að Litla-Hraun eða Vogur hafi tekið fleiri fíkniefnasala úr umferð?“ spyr Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, en hann hefur
undanfarið talað fyrir nýrri nálgun varðandi hið svokall-
aða stríð gegn fíkniefnum. Á Íslandi veltir
fíkniefnamarkaðurinn 33 milljörðum króna á
ári samkvæmt rannsókn Ara Matthíassonar
sem var hluti af meistaraverkefni hans við Há-
skóla Íslands. Þar kemur fram að Íslendingar
nota um tvö kíló af amfetamíni á dag og yfir
þrjú kíló af kannabisefnum.
„Þegar talað er um lögleiðingu gætir oft
misskilnings,“ segir Rafn Jónsson, verkefna-
stjóri áfengis- og vímuefnavarna hjá land-
lækni. Hann segir í Colorado og Washington
sé fyrst og síðast verið að tala um að refsilaust
sé að hafa á sér lítið magn af kannabisefnum
en enn sé sala og kaup á efnunum ólögleg.
„Fyrsta skrefið er að gera vímuefnaneysl-
una sjálfa refsilausa,“ segir Gunnar Smári því
ekki sé hægt að einangra samfélagið, hvorki
frá löglegri né ólöglegri fíkniefnaneyslu.
„Þessi hugmynd að það séu einhverjir aðrir,
okkur óviðkomandi, sem komið að utan og skemmi sam-
félagið okkar er röng.“
Samkvæmt Gunnari Smára verðum við að nálgast
vandamál fíkla sem heilbrigðisvandamál en ekki lögbrot.
Við verðum að horfa á þetta sem sjúkdóm og gera ráð fyr-
ir því að ungt fólk, til dæmis á framhaldsskólaaldri, glími
við þennan sjúkdóm og í stað þess að reka þau úr skólum
og ýta þeim á jaðarinn eigum við að láta þau njóta sömu
þjónustu og aðrir sjúklinga-
hópar.
„Svo þegar við erum búin
að bregðast við þessu stóra
heilbrigðisvandamáli með
þessum hætti í mörg ár
getum við farið að velta fyrir
okkur lögleiðingu,“ segir
Gunnar Smári.
Þetta er í samræmi við umræðuna í
Bandaríkjunum en í nýlegum vinsælum
heimildarmyndum vestra stíga fyrrverandi
forsetar landsins, þeir Jimmy Carter og Bill
Clinton, fram og segja stríðið gegn fíkniefn-
um tapað. Að það sé ekki hægt að vinna það
með öflugri lögreglu og hörðum refsingum.
Það þurfi miklu mannúð-
legri nálgun á vandamál
fíkla.
Rafn Jónsson hjá land-
lækni vill stíga varlega
til jarðar í umræðu um
lögleiðingu og bendir á
að kaup og sala á þessum
efnum sé ólögleg í Evrópu. Í Portúgal og
ýmsum löndum hefur verið farin sú leið
að gera eign og neyslu refsilausa en hér á
landi hafa ungir sjálfstæðismenn hvatt til
lögleiðingar.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Bann gegn kannabis í Banda-
ríkjunum virðist tilgangslaust
þar sem enginn fer eftir því.
Hér er söngkonan Rihanna á
tónleikum í síðasta mánuði
en margar frægðarpersónur
ytra eru yfirlýstir kannabis-
neytendur.
Fréttir af lögleiðingu kannabis í
tveim fylkjum í Bandaríkjunum
hafa vakið mikla athygli en enn
er bannað að kaupa og selja
kannabis í þessum fylkjum.
Gunnar Smári Egilsson,
formaður SÁÁ, vill að horft
sé á vandræði fíkla sem
heilbrigðisvandamál en ekki
lögreglumál.
14 fréttir Helgin 14.-16. desember 2012