Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 63

Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 63
„Steisjon“ S Skemmtilegt er að fylgjast með því hvernig margt af því sem við hjónakornin upplifðum á yngri árum endurtekur sig hjá afkom- endunum. Í grunninn ganga börn okkar í gegnum það sama og við gerðum á sínum tíma. Það er eðlilegt því þarfirnar eru svipaðar þegar þau vaxa úr grasi og stofna eigin fjölskyldu. Þess minnist ég að við splæst- um í nýjan, þýskan eðalvagn þegar við vorum komin fyrir vind með fyrstu íbúðina sem við keyptum. En börnunum fjölgaði og þörf var á nýju húsnæði. Þá þurfti að nýta alla tiltæka aura enda var þetta fyrir tíma 90% lána- reglunnar, kannski sem betur fer. Það fyrsta sem varð undan að láta var nýi, fíni hraðbrautavagninn. Það var með eftirsjá að við létum hann af hendi en um annað var ekki að ræða. Við tókum japanska smápútu upp í. Það auðveldaði söluna á glæsivagninum, auk þess sem erfitt var fyrir okkur að vera bíllaus. Sá gjörningur dugði þó skammt. Fokhelda parhúsið sog- aði til sína allt tiltækt fjármagn. Því neyddumst við til þess að selja japönsku pútuna og tókum upp í hana undarlegasta bíl sem við höfum átt um ævidagana, pólskan Fíat. Sá var sólgulur að lit með brúnum sætum, stolt pólskra verkamanna sem fengið höfðu leyfi ítalska bílaframleiðandans til að framleiða gamla gerð, líkt og Rússar gerðu á sínum tíma og kölluðu sína afurð Lödu. Vera kann að pólski Fíatinn okkar hafi verið sprækur sem lækur á æskudögum en þetta eintak var orðið lúið. Hann var svo þungur í stýri að nánast þurfti að standa við stjórnvölinn. Sá guli gegndi nafninu Jarúzelski, þung- ur á bárunni eins og Wojciech Witold Jaruzelski, síðasti leiðtogi pólska kommúnistaflokksins á árunum 1981 til 89, forsætis- ráðherra og síðar þjóðhöfðingi áður en Lech Walesa kom honum á hnén í þeirri lýðræðisbyltingu sem fór um austur-evrópsku ríkin á þessum árum. Ástandið á Jarúzelski okkar var svipað og á nafnanum í Póllandi og pólska kommúnistaflokknum. Innviðirnir voru fúnir. Því gáfu sig bæði hjarta og lungu í okkar pólska Fíat, vél og gírkassi. Þessi mikilvægu líffæri fundust í sam- bærilegu hræi á bílapartasölu og lengdu líf þess sólgula. Góðhjart- aðir bílamenn aðstoðuðu okkur við líffæraflutningana. Þegar þyngstu byrði parhússins var aflétt seldum við Jarúzelski. Kaupandinn kom á reiðhjóli. Á þeim tíma var það vísbending um að fjárhagur væri bágur. Það reyndist rétt því hjólreiðamaður- inn náði ekki að greiða þá víxla sem hann hafði samþykkt sem borgun fyrir þann pólska. Þegar útséð var um efndir tók ég mig til, enn skráður eigandi Jarúzelskis, og afskráði hann sem ónýtan. Ekki veit ég hversu lengi hjól- reiðamaðurinn ók á honum eftir það en varla lengur en fram að næstu skoðun. Svipaða þróun frá bíl yfir í hús- næði hef ég séð hjá eldri dóttur okkar hjóna og tengdasyni. Þeg- ar stelpan var 17 ára og komin með bílpróf vildi hún eignast bíl. Pabbinn fór á útkikk og stað- næmdist við Fíat Uno, tiltölulega lítið keyrðan þótt nokkurra ára væri. Þetta voru vinsælir bílar á sinni tíð og ég taldi að unglings- stúlkan réði við þau kaup. Þegar ég sýndi henni bílinn ómakaði hún sig ekki við að skoða hann, fór ekki einu sinni út til að sparka í dekkin. Það næsta sem ég frétti var að hún hefði farið í Heklu og ekið út á nýjum Fólksvagni. Síðan liðu árin, hún festi ráð sitt en áhugi hennar og sambýlis- mannsins á heldur fínum bílum fór saman, jafnvel mjög sport- legum. Svo fæddist þeim barn og síðar annað. Þá var þörfin á stærra húsnæði óhjákvæmileg. Miðbæjaríbúðin í 101 hentaði ekki lengur. Mín góða dóttir hefur alltaf haft ákveðnar skoðanir á bíla- og húsnæðismálum. Fjölskyldubílar voru í meginatriðum fyrir aðra og skutbíla leit hún beinlínis hornauga. Þá voru dísilbílar ekki inni í myndinni. Þeir gátu hentað pípulagningarmönnum og raf- virkjum sem verkstæði á hjólum. Úthverfi höfuðborgarsvæðisins leit hún svipuðum augum, jafn- vel þótt hún væri alin upp í einu slíku. Sportlegur bíll og íbúð með sýn til Reykjavíkurtjarnar var málið. En aðstæður breytast og þá er kostur að vera raunsær. Unga fólkið stóð í sömu sporum við fyrir þrjátíu árum, eða svo. Fjöl- skyldan hafði stækkað, það þurfti meira pláss – og barnvænt um- hverfi þar sem nálægð leikskóla og skóla skipti meira máli en göngufæri við miðbæjarbari. Þau staðnæmdust við fokhelt parhús í úthverfi, líkt og við gerðum á sínum tíma. Og hvað gerist þá? Þrátt fyrir betri lánakjör en var á ungdóms- árum okkar þarf talsvert að leggja á sig til að fullgera fokhelt parhús sem hentar barnafjöl- skyldu, í nálægð við leikskóla og skóla. Það fyrsta sem undan varð að láta var fíni sportlegi bíllinn þeirra, rétt eins og þegar við tröppuðum okkur niður í jap- önsku pútuna og síðar þann sæla Jarúzelski. Líkt og var hjá okkur er erfitt að vera bíllaus með börn sem stöðugt þarf að keyra út og suður. Unga parið fór því á útkikk eftir brúkhæfum, sparneytnum bíl í stað þess sportlega. Það var ekki lengur þörf á aðstoð pabba sem á sinni tíð staðnæmdist við notaða Únóinn sem stúlkan fúlsaði við og keypti sér nýjan og flottari. „Hvernig bíl keyptuð þið ykkur?“, spurði ég dóttur mína, væntanlegan íbúa í parhúsi í út- hverfi, þegar unga parið kom úr bílaleiðangrinum. Ég heyrði að hún hikaði aðeins en stundi síðan í lágri röddu: „Steisjon – dísil.“ Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Mikið úrval af nýju jólaskrauti IÐA Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9 - 22 alla daga IÐA ZIMSEN Vesturgata 2a 101 Reykjavík sími 511-5004 opið 9 - 22 alla daga Helgin 14.-16. desember 2012 viðhorf 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.