Fréttatíminn - 14.12.2012, Qupperneq 66
Platan hugs-
uð sem dyr
inn í fjórðu
víddina.
É
g er með sjúkdóm
sem heitir geð-
hvarfasýki. Þetta
er sjúkdómur sem
ég greindist með í
byrjun sumars og
hef verið að kljást við í gegnum
sumarið,“ segir Högni Egilsson tón-
listarmaður.
Högni hefur undanfarna mánuði
þurft að kljást við eigin huga á milli
þess sem hann sinnir köllun sinni í
lífinu, tónlistinni. Á dögunum kom
út ný plata með hljómsveit hans,
Hjaltalín, og ber hún heitið Enter 4.
Platan kom aðdáendum sveitarinn-
ar mjög að óvörum þar sem engin
tilkynning um útgáfu hennar hafði
komið fyrir augu almennings. Það
sem fæstir þó vita er að platan er
liður í bataferli Högna en þar tjáir
hann sig með dyggri aðstoð vina
sinna og hljómsveitarmeðlima um
flakkið um fjórðu víddina.
Högni Egilsson ætti að vera
flestum kunnur. Hann er tuttugu
og sjö ára gamall, söngvari og
tónsmiður. Högni er einn af for-
sprökkum Hjaltalíns en hefur að
auki gert garðinn frægan með
danspoppsveitinni Gus Gus. Hann
hefur hlotið athygli fyrir sérstæðan
stíl og klæðaburðinn sem þykir
ekki eiga sér margar hliðstæður
hér á landi. Líf Högna hefur tekið
stakkaskiptum síðustu mánuði en
sem fyrr segir fóru sjúkdómsein-
kenni geðhvarfasýkinnar að láta á
sér kræla snemma í vor. Högni var
vistaður á geðdeild í sumar þar sem
hann dvaldist um stund en reynir
nú, að eigin sögn, að taka sjúkdóm-
inn í sátt því þannig læri hann á
nýta reynsluna sér til framdráttar í
lífinu og listinni.
Kjaftasögur leið þeirra sem
ekki skilja
Högni hefur, vegna veikinda sinna,
verið töluvert á milli tannanna á
fólki. Það má ef til vill rekja til frá-
brugðinnar hegðunar hans síðasta
hálfa árið. Hegðunin, sem svo má
rekja beint til sjúkdómsins, er af-
leiðing ranghugmynda sem Högni
hefur haft um líf sitt og tilvist. Þetta
hefur svo verið uppspretta kjafta-
gangs en að sögn Högna hefur fólk
jafnvel haldið því fram að hann væri
á ólöglegum fíkniefnum.
„Það er svo magnað hvernig það
er auðveldara fyrir fólk að afskrifa
hegðun mína á eitthvað utanað-
komandi, eins og eiturlyf og áfengi.
Eins og það væri léttvægara en að
hafa geðhvörf. Fólk þarf alltaf að
geta bent fingri á það sem það held-
ur að sé vandamálið. Í mínu tilfelli
er það bara flóknara en svo. Það er
eins og ákveðin feimni einkenni
allt sem viðkemur andlegri líðan.
Einmitt þess vegna hef ég ákveðið
að stíga út úr skápnum með þetta.
Mig langar einfaldlega að opna
augu fólks fyrir geðsjúkdómum og
hve algengir þeir eru. Svo gjörið
svo vel, ég heiti Högni Egilsson
og ég er með geðhvarfasýki. Ég er
andlega veikur.“
Högni útskýrir að það hjálpi
honum að tala um hlutina. „Það
gerir engum gott að byrgja inni í
sér hlutina. Rogast með leyndar-
mál, raunverulegt meðal er að
koma hugsunum sínum frá sér,“
segir hann ákveðinn.
„Ég er að læra á sjúkdóminn,“
segir Högni og gerir stutt hlé á máli
sínu; „getum við fengið okkur eina
sígarettu? Ég á eitthvað erfitt með
að koma þessu frá mér allt í einu,
það er svo margt sem mig langar að
útskýra.“
Við erum stödd á heilsuhælinu
í Hveragerði þar sem Högni hefur
verið undanfarnar tvær vikur í
hvíldarinnlögn. Líf hans síðasta
hálfa árið hefur einkennst af
miklum sveiflum en það eru megin
einkenni sjúkdómsins; gríðarlegt
örlyndi þangað til hann skellur jafn
harðan niður í svartnættið.
„Mér finnst drulluerfitt að tala
um þetta hugarástand mitt sem
sjúkdóm,“ útskýrir Högni þegar
við erum komin út fyrir: „En þetta
er nú samt kallað sjúkdómur. Það
er bara svo gildishlaðið orð og ég
vil ekki líta á þetta sem neinn dóm,
heldur tækifæri til að þroskast
betur og læra.“
En hvernig lýsir þetta hugar-
ástand sér?
„Ég fer í maníur, örlyndi og
það tekur mig á flug á staði þar
sem ég er ekki í sambandi við
umhverfið. Heldur er sem ég sé
dreginn inn í heim hugsana og
fótunum er kippt undan mér. Ég
svíf svo um í draumaheimi. Þegar
ég er á þessum stað finnst mér
eins og allir séu geðveikir nema ég
því enginn skilur mig. Ég held að
það sé auðveldast að útskýra það
þannig. Þetta er óveraldleg tilfinn-
ing og mér líður til dæmis stöðugt
eins og ég sé að leysa gátu. Ég sé
tákn í öllu í kringum mig og hvert
tákn er eins og lítið púsl í gátuna.
Ég á það til að tapa mér í þessum
táknum og missa mig alveg á flug;
það er manían,“ útskýrir Högni
og hann segir að örlyndinu fylgi
ákveðin vellíðan. Það er samt bara
náttúrulögmál að allt það sem fer
upp leitar niður aftur og þar er
hugurinn hvergi undanskilinn.
„Þegar ég hef verið hátt uppi og
ör, þá fylgja síðar dagar sem eru
mér hryllileg sálarkvöl.“ Hann
segir að þá daga fari hann oft yfir
það sem á undan hefur gengið og
þeirri yfirferð getur fylgt skömm
og sektarkennd. „Þetta er viss
brotlending svona þegar þú ferð að
horfa á sjálfan þig í maníunni með
augum annarra. Maður skammast
sín fyrir það sem maður er. Svo
kemur upp hjá mér þessi stans-
lausa þrá um jafnvægi í lífinu, hún
verður að þráhyggju og það dregur
mig niður.“
Fjórða víddin og kort af hug-
anum
Nýja plata Hjaltalín, Enter 4, hefur
fengið frábæra dóma víðast hvar.
Platan kom, sem áður sagði, líkt og
þruma úr heiðskíru lofti og voru
aðdáendur sveitarinnar margir
hverjir hissa á skjótri og dularfullri
útgáfunni.
„Ég þurfti einhvern veginn að
losa allt út sem var að brjótast innra
með mér. Svo það mundi hætta að
hræra í mér. Enter 4 er því að hluta
til uppgjör mitt og hljómsveitar-
innar við mig og þetta hugarástand.
Eins og titillinn gefur til kynna er
platan hugsuð sem dyr inn í fjórðu
víddina. Þetta er að mínu mati það
sem gerir tónlistina svo frábæra.
Hún er tjáning og ég vík ekkert
frá því að mér finnst sem ég hafi
skapað fallegustu tónlist ferils
míns í veikindunum, jafnvel inni á
geðdeild.“
Inni í plötumslaginu er að finna
kort með táknmyndum sem að
sögn Högna eru „andlegar tákn-
myndir.“ Á kortinu hefur Högni í
samstarfi við Godd og Sigurð Odds-
son raðað saman táknmyndum sem
á einhvern hátt hafa verið honum
hugleikin í veikindunum. Saman
settu þeir svo kortið sem Högni
segir að sé af þessari leið hans.
Bjartsýnn með brotna tönn
Högni segist horfa bjartsýnn fram
á veginn: „Nú er ég bara að einbeita
mér að komast í jafnvægi. Stundum
er ég hræddur um hvert þessi sjúk-
dómur leiðir mig. En ég dvel ekkert
við þær hugsanir. Ég ætla bara að
vera bjartsýnn.“
Högni segir að erfiðast í þessu
öllu sé vafalítið að valda fjölskyldu
og vinum áhyggjum. „Fólkið mitt
hefur grátið út af mér, út af áhyggj-
um . Ég er mjög heppinn með hve
sterkt öryggisnet ég hef í þeim. Þau
hafa ekki gefist upp á mér, jafnvel
eftir að hafa endað inni á geðdeild,
eða með brotnar framtennur ein-
hvers staðar á Hverfisgötu.“ Högni
greinir blaðamanni frá því hvernig
þrír menn veittust að honum þar
sem hann gekk um bæinn í mikilli
maníu.
„Þeir hreyttu einhverju í mig
og ég var bara nógu klikkaður til
þess að svara þeim. Þetta voru
bara þannig menn og það sýndi sig
kannski bara í þessum verknaði
hve lokað fólk er fyrir þeim sem
sker sig úr. Það er einlæg von mín
að samfélagið opni sig meira fyrir
þeim sem eru frábrugðnir.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
„Ég fer í maníur, örlyndi og það tekur mig á flug á staði þar sem ég er ekki í sambandi við umhverfið. Heldur er sem ég sé
dreginn inn í heim hugsana og fótunum er kippt undan mér. Ég svíf svo um í draumaheimi.“ Ljósmyndir/Hari
62 viðtal Helgin 14.-16. desember 2012