Fréttatíminn - 14.12.2012, Qupperneq 116
Í takt við tÍmann Einar LövdahL GunnLauGsson
Heldur tryggð við kebabinn á Ali Baba
Einar Lövdahl Gunnlaugsson er 21 árs tónlistarmaður, nemi í viðskiptafræði og blaðamaður á Mónitor.
Hann sendi nýverið frá sér sitt annað lag, Traust, og á lag í úrslitum Jólalagakeppni Rásar 2. Einar nýtur
þess að ferðast með strætó og fer á kaffihús með pabba sínum.
Staðalbúnaður
Ég er enginn sérlegur tískupinni en
legg mig þó fram um að vera ekki
eins og algjör vitleysingur til fara. Ég
reyni að vera snyrtilegur og finnst
til dæmis gaman að eiga fallegar og
góðar peysur. Ég held líka mikið upp
á tvennar flauelsbuxur sem ég á, aðrar
voru keyptar í Urban Outfitters en
hinar í Geysi. Kærastan mín er dugleg
að koma mér á óvart með fallegum
flíkum, ég er svo heppinn. Þegar það
er kalt úti dreg ég fram tvær lopapeys-
ur sem ég á og nota mikið. Þær passa
vel við sænsku fjallarefsúlpuna mína.
Hugbúnaður
Ég átti mér alltaf þann draum að verða
atvinnumaður í fótbolta en nú þegar ég
er búinn að kveðja þann draum spila
ég körfubolta og fótbolta með nokkr-
um strákum. Því miður hef ég glímt
við þrálát ökklameiðsli í vetur svo
ég hef verið latur við líkamsræktina
undanfarið. Við pabbi erum þokkalega
duglegir að fara á kaffihús og fara yfir
stöðu mála. Þá förum við gjarnan á
Kjarvalsstaði. Ef ég fer á kaffihús með
vinum mínum fer ég oft á Stofuna við
Ingólfstorg. Þar er róleg og heimilis-
leg stemning. Ég er nú enginn lands-
liðsmaður í djamminu en þegar ég fer
út fer ég oftast á Faktorý. Ég er samt
hrifnari af því að geta spjallað við ein-
hvern yfir bjór en að fara að tjútta og
því er gott að fara á Hemma og Valda.
Ég er glataður dánlódari og er aldrei
með á nótunum í sjónvarpsseríum. Ég
tók Office-æði um daginn og nú er ég
inni í Modern Family. David Brent úr
breska Office og Cameron úr Modern
Family eru bestir.
Vélbúnaður
Ég á Macbook-fartölvu sem ég keypti
sumarið 2009. Vinur minn sem er
Mac-sérfræðingur segir að þessi týpa
hafi bara verið framleidd í hálft ár og
sé safngripur. Annars á ég iPhone sem
ég nota ansi mikið. Kærastan mín vildi
alla vega gjarnan að þær væru færri,
mínúturnar sem fara í símann á hverj-
um degi. Það er náttúrlega glatað hvað
maður er háður þessum samfélags-
miðlum. Ég er á Facebook, Twitter
og Instagram og ólst upp á MSN svo
ég hef tekið þátt í þessu öllu og verið
fangi þessara miðla. Maður sækir af
og til einhverja leiki á snjallsímann en
fær fljótt leið á þeim. En ég er mjög
sáttur við Strætó-appið.
Aukabúnaður
Þegar ég var í menntaskóla reyndi
ég að labba allt sem ég gat en eftir
að ég fór að vinna lengst úti í busk-
anum komst ég upp á lagið með að
nota strætó. Það er fínn staður til að
láta hugann reika og slappa aðeins
af. Ég og vinur minn erum sérlegir
stuðningsmenn kebabsins á Ali Baba
og við höfum haldið tryggð við hann
síðan í MR. Ástríðuverkefnið mitt er
tónlistin en ég hef líka gaman af því að
skrifa og vinna með texta. Ég vil gera
meira af því í framtíðinni. Svo hef ég
líka gaman af því að lesa og væri til í
að gera meira af því, maður hefur svo
litla leslyst þegar maður er í skóla. Ég
hlakka til að fara í jólafrí og geta lesið
jólabækurnar. Ef ég ætti að nefna einn
uppáhaldsstað þá væri það húsið
Vallholt sem föðurfjölskyldan
mín á, á Dalvík. Það er mjög
skemmtilegur staður sem
ég fer alltof sjaldan á.
Næsta utanlandsferð
mín verður til Banda-
ríkjanna um páskana.
Ég fæddist í Banda-
ríkjunum og hef því
tvöfaldan ríkis-
borgararétt og get
stoltur sagt frá því
að ég kaus Barack
Obama í forseta-
kosningunum á
dögunum.
Einar Lövdahl
er kominn í úrslit
í Jólalagakeppni
Rásar 2 með lagið
Hæhó og gleðileg jól.
Ljósmynd/Hari
Sex íslenskar plötur hlutu Kraumsverðlaunin í fyrra, plötur ADHD, Lay Low, Reykja-
vík!, Samaris, Sin Fang og Sóleyjar.
tónList ÚtGáfuárið GErt upp
20 plötur keppa
um Kraumsverðlaun
Tuttugu plötur hafa verið til-
nefndar á Úrvalslista Kraums
fyrir árið sem er að líða. Í
næstu viku kemur í ljós hvaða
5-6 plötur af þessum tuttugu
munu skipa Kraumslistann
2012. Markmið Kraumslist-
ans er að kynna og styðja við
plötuútgáfu íslenskra hljóm-
sveita og listamanna með
sérstöku tilliti til þeirra sem
yngri eru.
Þær plötur sem eru á
Úrvalslista Kraums 2012 eru:
adhd - adhd4, Ásgeir Trausti
- Dýrð í dauðaþögn, Borko
- Born To Be Free, Davíð
Þór Jónsson - Improvised
Piano Works 1, Duo Harp-
verk - Greenhouse Sessions,
Futuregrapher - LP, Gho-
stigital - Division of Culture
& Tourism, Hilmar Örn Hilm-
arsson & Steindór Andersen
- Stafnbúi, Hjaltalín - Enter
4, Moses Hightower - Önnur
Mósebók, Muck - Slaves,
Nóra - Himinbrim, Ojba Rasta
- Ojba Rasta, Pascal Pinon
- Twosomeness, Pétur Ben
- God’s Lonely Man, Retro
Stefson - Retro Stefson, Sin
Fang - Half Dreams EP, The
Heavy Experience - Slows-
cope, Tilbury - Exorcise,
Þórir Georg - I Will Die and
You Will Die and it Will be
Alright.
Tuttugu manna dómnefnd
velur 5-6 bestu plöturnar og
verða úrslitin kunngjörð mið-
vikudaginn 19. desember.
112 dægurmál Helgin 14.-16. desember 2012