Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Versnandi Veður og stórhríð á Vestfjörð-
um og norðurlandi þegar líður á daginn.
höfuðborgarsVæðið: Hvöss N-átt þegar
líður á dagiNN. þurrt og kólNaNdi.
nokkuð hVöss n-átt á landinu, él og
snjókoma norðan og austantil.
höfuðborgarsVæðið: allHvasst af N og
léttskýjað. vægt frost.
gengur niður og aðgerðarlítið
VetrarVeður á landinu.
höfuðborgarsVæðið: a-gola og þurrt.
versNaNdi með kvöldiNu.
hvellur fram
á laugardag
allar líkur á því að það geri Na- og síðar
N-hvell sem stendur fram á laugardag.
síðdegis í dag föstudag er útlit fyrir stórhríð
á vestfjörðum og á Norðurlandi. eins á
austurlandi á laugardag, en far þá að lagast
vestast. á vesturlandi verður
stormur seint á föstudag og
fram á laugardag, en þó ekki
nándar nærri eins slæmt og í
óveðrinu fyrir viku. gengur
niður og ágætis veður
víðast á sunnudag.
3
0 2
4
5
-2
-3 -3 0
1
-4
-3 -5 -3
-2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
OYSTER PERPETUAL EXPLORER II
Michelsen_255x50_I_0612.indd 1 01.06.12 07:22
Ísland er með nær helmingi minna bankakerfi en Danir en
þó eru starfsmenn bankageirans á Íslandi um helmingi fleiri,
miðað við höfðatölu. þetta kemur fram í nýrri skýrslu mckin-
sey&Company sem kom út nýverið. þar kemur fram að íslenska
bankakerfið er nú 215 prósent af svokallaðri vergri landsfram-
leiðslu (GDP á ensku) en í Danmörku er kerfið 432% af vergri
landsframleiðslu. Engu að síður erum við á Íslandi með 10,3
starfsmenn á hverja þúsund íbúa en danir aðeins 6,9.
sé fjöldi útibúa skoðaður kemur einnig í ljós að þar lítur
út fyrir að við séum með of mörg útibú, miðað við frændur
okkar í danmörku. séu útibúin framreiknuð á hverja milljón
íbúa erum við á Íslandi með 360 útibú á hverja milljón en
Danir 268.
Heilbrigðismál gekk á milli lækna árum saman án greiningar
Með þriggja kílóa æxli í kviði
sautján ára
stúlka hafði
kvartað undan
sárum verkjum
í maga frá 5
ára aldri og var
með óvenju
útstæðan kvið.
Hún fór til
fjölda lækna
en var ávallt
send heim með
verkjalyf. kven-
sjúkdómalæknir
uppgötvaði hins
vegar rúmlega
þriggja kílóa
blöðru í kvið
hennar sem
fjarlægja þurfti
með stórri
skurðaðgerð.
s autján ára stúlka, Ingibjörg Erla Árnadóttir, gekk milli lækna í 12 ár en var alltaf send heim með verkjalyf þangað
til loksins uppgötvaðist að hún var með 3,3
kílóa æxli í kviðnum. Hún hafði kvartað und
an magaverkjum frá fimm ára aldri og móðir
hennar fór margoft með hana til heimilis
lækna og sérfræðinga án þess að hún fengi
fullnægjandi skoðun.
„Ég var með mjög útstæðan maga og sí
fellda verki en fékk alls kyns skýringar á
því hjá læknum sem ég fór til,“ segir Ingi
björg. Móðir hennar lét hana taka nokkur
þungunarpróf af þeim sökum, sem alltaf
komu út neikvæð. „Ég var hætt að geta leg
ið á maganum eða reimað skóna upp á síð
kastið því maginn var orðinn svo útstæður.
Ég var komin með stöðugar milliblæðingar
og því pantaði mamma fyrir mig tíma hjá
kvensjúkdómalækni. Nokkrum dögum áður
en ég komst að hjá honum fór ég á bráða
móttökuna því ég var með svo mikla verki.
Þar var þreifað á maganum á mér og mér
gefin verkjalyf og ég send heim. Þegar kven
sjúkdómalæknirinn skoðaði mig sá hann
hins vegar nær undir eins að ég væri með
„risastóra“ blöðru á öðrum eggjastokkn
um, eins og hann orðaði það. Ég var
mjög fegin að heyra að loksins
var komin skýring á því sem var
að hrjá mig þótt það væri um
leið óþægilegt,“ segir hún.
Ingibjörg fór til kven
s júkdómalæk nis á
mánudegi sem fær fyr
ir hana tíma á kvenna
deild á þriðjudegi,
viku seinna. Að
fararnótt sunnu
dags fær Ingi
björg mikla verki
og fer beint á
kvennadeildina
þar sem hún
gat nú loks
sagt frá því
að hún væri
með blöðru á
eggjastokkn
um. Þar var
hún þreif
uð og fékk
verkjalyf og
send heim
þar sem hún
ætti tíma fá
einum dög
um síðar. „Þegar ég var komin út af kvenna
deildinni á leiðinni heim, klukkan hálf fimm
að morgni, leið yfir mig á bílastæðinu. Þá
fyrst var ég lögð inn,“ segir hún.
Ákveðið var að flýta aðgerðinni og fór Ingi
björg í skurðaðgerð á þriðjudeginum. „Búið
var að segja við mig að hægt yrði að fjarlægja
blöðruna í gegnum göt en þegar ég var skoð
uð nánar var mér sagt að hún væri svo stór
að það yrði gerður svokallaður bikiniskurð
ur. Stuttu fyrir aðgerðina kom hins vegar í
ljós að æxlið næði yfir svo stórt svæði að það
dygði ekkert minna en skurður frá lífbeini
og upp fyrir nafla og því er ég með risastórt
ör eftir aðgerðina,“ segir hún. Í ljós kom að
æxlið var 3,3 kílóa blaðra og að annar eggja
stokkurinn væri ónýtur af völdum þess.
Kvensjúkdómalæknir Ingibjargar sagðist
skammast sín fyrir stétt sína, að sögn Ingi
bjargar, það væri ófyrirgefanlegt að blaðran
hefði ekki uppgötvast fyrr og hvatti hana
til að leita réttar síns. „Ég vil bara að þeir
læknar sem komu að þessu fái
upplýsingar um hvað var í raun
að hrjá mig þannig að þeir
skoði betur sjúklinga í fram
tíðinni,“ segir Ingibjörg.
Að sögn móður hennar,
Guðrúnar Margrétar Jök
ulsdóttur, fengu þær ein
ungis að vita að blaðr
an væri hægvaxandi
vefmyndun sem
blæddi inn í.
„Okkur var
sagt að blaðran
hafi verið hvít
og glær. Þeg
ar ég spurði
hvort eitthvað
hafi verið í
henni fengum
við svarið að
hún hafi verið
full af „jukki“.
Hvaða „jukki“
fengum við
ekki nánari
upplýsingar
um,“ seg i r
Guðrún. Þær
bíða nú niður
stöðu úr rann
sóknum á blöðr
unni.
sigríður dögg
auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
10,3
ísleNdiNgar
af Hverjum
þúsuNd viNNa í
baNkageiraNum.
6,9
daNir
af Hverjum
þúsuNd viNNa í
baNkageiraNum.
ba kar Ísland borið saman við danmörku
of margir bankastarfsmenn
fyrir aðgerð
eftir aðgerð
mistókst að breyta
Hæstarétti
„þegar ég hóf störf sem hæstaréttar-
dómari ætlaði ég mér að reyna að ná
fram nauðsynlegum breytingum á starfi
dómstólsins. það tókst þó því miður ekki,”
sagði jón steinar gunnlaugsson, fyrrver-
andi hæstaréttardómari, á málþingi félags
laganema Háskólans á bifröst í vikunni.
jón steinar gagnrýndi hvernig dómar
væru skrifaðir í Hæstarétti. þar séu oft
margir dómarar að koma sér saman um
eina niðurstöðu sem þeir skrifa í samein-
ingu þó þeir séu oft ekki fullkomlega sam-
mála um forsendurnar. dómarnir beri þess
oft merki þar sem rökstuðningur á bak við
ákveðnar niðurstöður er misvísandi sem
verður til þess að dómur hefur mun minna
fordæmisgildi en hann hefði ella.
jón steinar vill einnig afnema með
öllu áhrif sitjandi hæstaréttardómara við
skipun nýrra dómara við réttinn. -sda
ingibjörg erla árnadóttir fór á milli fjölda lækna í
mörg ár án þess að fá rétta sjúkdómsgreiningu. Nýlega
var fjarlægt 3,3 kílóa æxli úr maga hennar.
4 fréttir Helgin 9.-11. nóvember 2012