Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 70
Lausn á þrautum síðustu viku
Vinningshafi
síðustu viku er:
Hulda K. Guðjónsdóttir
Rekagranda 10, 107 Rvk
og fær hún sendar
KenKen talnaþrauta
bækurnar frá Hólum.
54 skák Helgin 9.11. nóvember 2012
Skákakademían
Lenka er langbest
L enka Ptacnikova er Íslandsmeistari kvenna í skák árið 2012. Hún sigraði á Íslandsmótinu sem lauk á dögunum, eftir harða og spennandi
keppni við nokkrar ungar og efnilegar skákkonur.
Lenka er vel að sigrinum komin, enda stigahæst ís-
lenskra kvenna og sú eina sem ber stórmeistaratign,
auk þess að tefla á efsta borði fyrir landsliðið okkar.
Þetta var fjórði Íslandsmeistaratitill Lenku, en áður
vann hún titilinn 2006, 2009 og 2010. Hún hafði
reyndar áður orðið í efsta sæti á Íslandsmótinu, en
hlaut þá ekki titilinn þar sem hún var ekki orðin ríkis-
borgari, en Lenka er tékknesk að uppruna.
Lenka fékk 6 vinninga af 7 mögulegum á Íslands-
mótinu. Tinna Kristín Finnbogadóttir varð í 2. sæti
með 5½ vinning og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
hreppti bronsið með 5 vinninga. Í 4.-7. sæti urðu
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Elsa María Kristínar-
dóttir, Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn
Magnúsdóttir með 4 vinninga, en keppendur voru
alls tólf. Heilmikil gróska er í skáklífinu, jafnt meðal
stráka sem stúlkna, og meðalaldurinn á Íslands-
mótinu var ekki hár.
Skákkunnátta bætir námsárangur
Skákakademían stendur fyrir kennslu í flestum
grunnskólum í Reykjavík, og skákin er sömuleiðis
komin á dagskrána hjá fjölmörgum skólum, jafnt á
höfuðborgarsvæðinu sem á landsbyggðinni. Það er
sérstakt fagnaðarefni að Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hefur nú skipað vinnuhóp til að fara
yfir kosti skákkennslu í skólum, jafnframt því að
meta jákvæð áhrif skákarinnar á félagslega færni
barna og ungmenna. Stöðugt fleiri skólamenn átta
sig á gildi skákkennslu. Þannig má nefna Ingibjörgu
Rósu Ívarsdóttur sem byggt hefur upp skákkennslu í
Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Í pistli sem hún skrifaði
í fréttabréf Skákakademíunnar rekur hún margþætt
gildi skákkennslu og segir meðal annars:
„Talið er að skákkennsla og síðar skipulögð skák-
iðkun þroski einbeitingu, bæti minnið, styrki sjálf-
saga, bæti rökhugsun, lestrargetu, stærðfræði, styrki
sjálfsmynd, rýmisgreind, sjálfstraust, samskipti,
ímyndunarafl, sköpunargáfu, sjálfstæði, vísindi og
listir.“
Ingibjörg Rósa segist líka hafa veitt því athygli að
skákin hafi mjög jákvæð áhrif á börn með greiningar
á borð við ADHD: „Þau eru mörg hver sérlega fljót að
ná fullri einbeitingu, eitthvað sem þau gera sjaldan í
daglegu skólastarfi.“
Einn áhugaverðasti punkturinn í pistli Ingibjargar
snýst um að skákin er ekkert venjulegt námstæki: „Í
skákkennslunni halda nemendurnir að þeir séu bara
að tefla og leiða ekki hugann að öllum þeim þroska
sem tikkar inn á sama tíma og taflið á sér stað. Leik-
ur er nám, er orðatiltæki sem á vel við þegar skák-
kennsla er annars vegar.“
Skákin og hamingjan
Á löngum og glæsilegum ferli hefur Friðrik Ólafsson
unnið marga góða sigra. Hann hefur til dæmis lagt
fjóra heimsmeistara. Elsti stórmeistarinn sem Frið-
rik lagði var hinsvegar Pólverjinn Savielly Tartako-
ver, fæddur 1887. Og það er sá ágæti meistari sem á
lokaorð dagsins: „Skákin – eins og ástin, eins og tón-
listin – býr yfir krafti til að gera manninn hamingju-
saman!“
Skákþrautin
Í þessari skák
lék hvítur
Db8+ og tapaði
skömmu síðar.
Hann missti af
einföldum og
baneitruðum
vinningsleik –
finnur þú besta
leik hvíts?
Borgardekk
Ef þrautin er 3 x 3 reitir eru notaðar tölurnar 1 til
3, ef hún er 4 x 4 reitir eru notaðar tölurnar 1 til 4
o.s.frv.
Sama tala má einungis koma fyrir einu sinni í
hverjum dálki og hverri línu.
Svæðin, sem eru afmörkuð með þykkum línum,
kallast hólf.
Stundum nær hólfið bara yfir einn reit og þá er
augljóst hvaða tala á að koma þar.
Oftast nær hólfið þó yfir fleiri en einn reit og þá
fylgir þeim tala og eitthvert
stærðfræðitákn, þ.e. +, –,
x eða ÷. Ef talan er t.d. 5 +
þá á summa talnanna í því
hólfi að vera samtals 5. Ef
talan er 2 þá á mismunur
talnanna að vera 2. Í erfiðari
þrautunum er svo einnig
margföldun og deiling.
Svör við talnaþrautunum
má senda í hefðbundnum
pósti á ritstjórn Fréttatím-
ans, Sætúni 8, 105 reykja-
vík. Lesendur geta líka tekið
mynd af lausnunum með
símanum eða myndavél og
sent á netfangið
leikur@frettatiminn.is
Reglurnar eru einfaldar:
verðLaunaþrautir
talnaþrautir KenKen-talnaþrautirnar eru frábær heilaleikfimi. Fréttatím
inn mun birta tvær gátur í hverju tölublaði næstu vikurnar. Lesendur geta sent inn svör
við gátunum og í hverri viku verða dregnir út tveir heppnir þátttakendur sem fá KenKen
bækurnar sendar heim að dyrum frá Bókaútgáfunni Hólum.
Nafn
Heimili
Sími Netfang
Lenka Ptacnikova stórmeistari er Íslandsmeistari kvenna 2012.
1.Bh7+ og svarta
drottningin á d4 fellur!
Skákkunnátta bætir námsárangur –
og er líka skemmtileg!
21. nóvember
í 14 nætur Tenerife
Laguna Park II
Kr. 89.900
Netverð á mann m.v. 2 í búð.
Sértilboð 21. nóvember i 14 nætur.
Villa Adeje Beach
Frá kr. 149.900
í 14 nætur með allt innifalið
Netverð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð á mann.
Sértilboð 21. nóvember í 14 nætur.
frá aðeins kr.
89.900
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099 • www.heimsferdir.is