Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 47
11lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012
,,Það er ánægjulegt að sífellt
fleiri Íslendingar eru að ferðast
um landið. Gönguferðir um
náttúruna, bæði í byggð og
óbyggðum eru aðalsmerki
Ferðafélags Íslands. Gönguferðir
eru allt í senn góð heilsurækt,
hressandi útivera, skemmtilegur
félagsskapur eða þá góð
hvíldarstund frá amstri dagsins
ef maður kýs að ganga einn,“
segir Páll Guðmundsson,
framkvæmdastjóri
Ferðafélagsins.
Útivist fyrsta skrefið að
heilbrigðum lífsstíl
Þeir sem taka þátt í gönguferðum
Ferðafélags Íslands eru meðvitað
og ómeðvitað að tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl. Það hefur
verið margsannað með rann-
sóknum að góð gönguferð er
mjög heilsusamleg fyrir líkama
og sál. Að sama skapi er útivera
öllum holl og þá hefur íslensk
náttúra góð áhrif á sálarlífið.
,,Við höfum séð mörg dæmi um
fólk sem kemur og tekur þátt í
starfinu hjá okkur og byrjar að
stunda gönguferðir reglulega,
það hefur stórbætt þol sitt og
þrek og heilsu almennt. Oft
hefur fólk misst fjölmörg kíló
án þess að það hafi endilega
verið markmiðið. Þá er gaman
að segja frá því að í mörgum
lengri ferðum hjá okkur eru
þátttakendur að borða mjög
heilsusamlegan og kjarngóðan
mat, þar sem hráefnið er oft
íslenskt og helst úr heimabyggð.“
Símar rauðglóandi þegar
ferðaáætlun kemur út
Að sögn Páls má segja að með
útgáfu ferðaáætlunarinnar í
byrjun árs fari starf FÍ í fullan
gang. ,,Fyrstu daga og vikur
eftir að áætlunin kemur út eru
símalínurnar rauðglóandi. Í
mörgum ferðum takmarkast
fjöldi farþega við 18-20 manns
og fyrstir koma fyrstir fá.“
Páll segir að Íslendingar séu
jafnframt orðnir mun fyrr á
ferðinni við undirbúning og
skipulag á ferðum sínum en áður.
Fjölmargir hafi þegar pantað
í skála félagsins fyrir ferðir
sumarsins en þar er gistiframboð
einnig takmarkað eftir stærð
skálanna, en Ferðafélagið og
deildir þess eiga og reka 36 skála í
óbyggðum landsins.
Í Ferðafélagi Íslands eru nú
tæplega 8.000 félagsmenn en
Páll segir að markmiðið sé að
fjölga þeim enn frekar. „Við
höfum verið að horfa á norska
Ferðafélagið en í því eru um
220.000 félagar og þessi lífsstíll
er mun ríkari í menningu norsku
þjóðarinnar. Það er eitthvað sem
við viljum læra af og fylgja eftir,
en áhuginn er alltaf að aukast
meðal landsmanna.“
Góð heilsurækt,
skemmtilegur
félagsskapur og
hressandi útivera
,,Áhugi landsmanna á ferðum um Ísland er alltaf að aukast
og þar með þátttakan í starfi FÍ,“ segir Páll Guðmundsson
framkvæmdastjóri FÍ
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS - KYNNING
Í sumarleyfisferðum um óbyggðir Íslands þarf oftar en ekki
að vaða ár eða ósa. Eftir á er fátt meira hressandi en að dýfa
tánum í ískalt vatnið.
Valitor er aðalstuðningsaðili Ferðafélags Íslands og styður félagið til góðra
verka á hálendi Íslands og óbyggðum, m.a. til fræðslustarfs, merkingu
gönguleiða og öryggismála á fjöllum. Hér handsala Viðar Þorkelsson
forstjóri Valitor og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ samkomulag á
milli félaganna á tindi Hvannadalshnúks.
Að loknum góðum göngudegi á fjöllum, og að lokinni
staðgóðri máltíð, er oft slegið upp kvöldvöku, sungið, dansað,
sagðar sögur og sprellað.
Í sumarleyfisferðum um hálendi Íslands þarf að takast á við
hinar ýmsu aðstæður. Þá er gott að hafa góðan fararstjóra eða
einhvern staðkunnugan til að leiða för.