Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 86
Hugrún Hrönn Hvernig verða börnin til?
Ljóðrænar lýsingar á getnaði
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir hefur
sent frá sér bókina Hulstur utan um
sál. Hún segir bókina vera fjölskyldu-
og barnabók sem útskýri á einfaldan
hátt hvernig börnin verða til. Texti
bókarinnar fléttast saman við fallegar
teikningar sem fjalla um ástina og
upphaf lífsins frá ýmsum sjónarhorn-
um en bókinni er ekki síst ætlað að
sýna börnum fram á hversu margar
leiðir eru að getnaði og hversu ólíkar
fjölskyldur geta verið.
„Það eru til nokkrar þýddar bækur
um hvernig börnin verða til en þessi
bók er kannski ólík þeim vegna þess
að hún tekur á ólíkum fjölskyldugerð-
um. Kannski ekki öllum hugsanlegum
en nógu fjölbreyttum til að sýna fram
á hversu mismunandi og mörg við
erum,“ segir Hugrún. „Það var svo-
lítið tilgangurinn með henni að sýna
hvernig öll börn verða til.“
Hugrún tæpir meðal annars á ást-
inni, skyndikynnum og barneignum
samkynhneigðra og börnum for-
eldra af ólíkum kynþætti. Sjónarhorn
hispurslausrar frásagnarinnar færist
á milli níu barna sem eiga sér ólíka
sköpunarsögu. Hugrún
hefur gert tilraunir með
bókina á börnum ættingja og vina og
þar hefur hún mælst vel fyrir.
„Maður hefur gefið vinum og vanda-
mönnum handritið og beðið þau að
athuga hvernig börnin bregðast við og
það hefur bara verið mjög skemmti-
legt að fylgjast með því.“ Bókin vekur
að sjálfsögðu upp spurningar og
kveikir umræður milli barna og for-
eldra. „Já, já. Þetta fer í allar áttir.
Flest börn kannast nú við ólíkar fjöl-
skyldugerðir úr umhverfi sínu en við
lestur bókarinnar fá þau frekar tæki-
færi til þess að ræða málin, spyrja og
spjalla.“ -þþ
Hugrún Hrönn fékk vinkonu sína, Unni Valdísi Kristjánsdóttur, og
bróður sinn Hólmstein Össur til þess að hjálpa sér að vinna teikn-
ingar hennar áfram og klára þær. „Við lögðum mjög mikla áherslu á
myndirnar í bókinni og þetta var svo skemmtilegt að við gleymdum
okkur alveg við þetta.“ Ljósmynd/Hari
rafbækur vinkonur gefa út smásagnasafn
Stefna á erótíkina
Vinkonurnar og rithöfundarnir Sirrý Sig og Hildur Enóla skrifuðu í sameiningu fjórar smásögur
sem þær hafa gefið út á rafbók á íslensku og ensku og hafa því haslað sér völl á rafbókavefn-
um Emma.is og Amazon.com. Þær ætla að halda óhikað áfram og íhuga nú í fullri alvöru að
hella sér út í erótíkina þar sem eftirspurnin virðist óþrjótandi.
v inkonurnar Sirrý Sig og Hildur Enóla hafa fengist við skriftir um árabil og meðal annars gert það gott í smásagnakeppnum
Nýs Lífs og Vikunnar. Auk þess sem Sirrý hefur
áður sent frá sér barna- og unglingabókina Gegnum
rifurnar.
Sirrý og Hildur kynntust á síðunni Rithringur.
is þar sem höfundar deila efni sínu og þiggja ráð og
gagnrýni hver frá öðrum. „Ég datt eiginlega bara
óvart þarna inn 2005. Við fórum síðan að gagnrýna
hvor fyrir aðra og datt í framhaldinu í hug að prufa
að skrifa sögu saman að gamni okkar,“ segir Sirrý.
„Það gekk svo glimrandi vel að við erum búnar að
skrifa heilmikið saman.“
Hildur býr í Danmörku þannig að þær stöllur
skrifa sögur sínar saman á netinu þar sem þær
ganga á milli þeirra þar til þær eru fullkláraðar.
Nýja rafbókin þeirra heitir Eitt leiðir af öðru og
Sirrý segir að titillinn segi í raun mikið um hvernig
sögurnar spunnust þar sem ein þeirra kom með eitt-
hvað sem hin greip á lofti og prjónaði við þannig að
eitt leiddi af öðru.
Sirrý segir sögurnar fjórar mjög ólíkar. Fantasía
og smá raunsæi kallist á og allar tengist sögurnar
innbyrðis með einum eða öðrum hætti þótt þær geti
einnig allar staðið einar og sér.
Og vinkonurnar eru óstöðvandi. „Næsta rafbók
frá okkur kemur fljótlega en í henni skrifum við bara
ástarsögur. Við eigum svo alveg glás af efni þannig
að við höldum áfram ótrauðar.“
Þegar Sirrý var að taka sín fyrstu skref á ritvell-
inum, fyrir margt löngu, lék hún sér að því að skrifa
erótískar sögur í íslensk tímarit og nú býr hún vel að
þeirri reynslu þar sem erótíkin er það sem allt snýst
um í kjölfar 50 grárra skugga og annars álíka efnis.
„Maður var nú bara eitthvað aðeins að fíflast í þá
daga en svona í alvöru talað þá erum við mikið að
spá í að hella okkur í erótíkina. Erótíkin er mjög heit
akkúrat núna og þetta er bara það sem selur og af
hverju ekki að vera með?“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Erótíkin er
mjög heit
akkúrat
núna og
þetta er
bara það
sem selur.
Sirrý Sig og vinkona
hennar, Hildur Enóla,
skrifa saman smásögur
af miklu kappi og gefa
út á rafbókum. Þær sjá
sóknarfæri í erótískum
skáldskap og eru að
hita sig upp fyrir slík
skrif. Ljósmynd/Hari
Eitt leiðir af öðru...
Smásögur Sirrýjar og Hildar í rafbókinni Eitt leiðir af öðru
tengast á ýmsan hátt og spurningin er hvort þau eigi eitt-
hvað sameiginlegt, ofdekraða eiginkonan sem viðheldur
heimilinu og kroppnum í toppformi til að bæta upp fyrir
barnið sem hún getur ekki eignast, konan sem kemur heim
úr viðskiptaferð og kemst að því að kærastan hennar er
horfin, stjúpfaðirinn sem grunar unga stjúpdóttir sína um
kaldrifjað morð og maðurinn sem elskar stúlkuna og vill
vernda hana fyrir öllu?
Airwaves-appið naut mik-
illa vinsælda á hátíðinni
um síðustu helgi. Um
sjö þúsund miðar voru
seldir á hátíðina en um
7.800 manns náðu sér í
appið. Meðan á hátíðinni
stóð voru um
1,3 milljón
flett-
ingar í
app-
inu
og var það vinsælasta
fría app landsins á þeim
tíma. Auðvelt er að skoða
hvaða listamenn nutu
mestrar hylli á Airwaves
út frá hversu margir
skoðuðu síður þeirra í
appinu. Ásgeir Trausti
naut mestra vinsælda
sem skýrist kannski af því
að hann spilaði manna
oftast á hátíðinni, án þess
að nokkuð sé gert lítið úr
ágæti hans. Í öðru sæti
á vinsældalistanum var
hljómsveitin Of Monsters
and Men, FM Belfast var
í þriðja sæti, Sóley í því
fjórða og Retro Stefson í
fimmta. Í næstu sætum á
eftir voru Ylja, Sigur Rós,
Valdimar, Agent Fresco,
Kiriyama Family, 1860,
Tilbury, Mammút, GusGus,
Ólafur Arnalds, Prinspóló,
Samaris, Bloodgroup og
Dikta. Þá loks kemur að
erlendri sveit, í 20. sæti.
Það er Half Moon Run frá
Kanada.
.... yndislegar uppskriftir
á alla ölskylduna ....
Benedikt dæmir
dansara
Leikarinn Benedikt Erlingsson
verður gestadómari í þættinum
Dans dans dans á laugardaginn
en þá munu góðir kunningjar
frá því í fyrra stíga á svið.
Margverðlaunaða dansparið
Hanna Rún og Sigurður
Þór gera aðra tilraun en
þau höfnuðu í öðru sæti
í fyrra. Sigurður Þór er
nýbyrjaður að dansa aftur
eftir að hann fékk blóðtappa en
hefur að sögn engu gleymt. Þá er
röðin einnig komin aftur að dans-
hópnum Rebel sem einnig keppti í
fyrra. Á meðan beðið verður eftir
niðurstöðu símakosningarinnar mun
Jón Jónsson flytja eitt lag ásamt hljóm-
sveit sinni.
Gæludýrin í
Argentínu
Skáldsagan Gæludýrin,
eftir Braga Ólafsson,
er komin út í spænskri
þýðingu í Argentínu.
Þýðandinn Fabio Teixidó,
sem býr í Reykjavík, tók
sig til og snaraði bókinni
yfir á spænsku. Gæludýrin
er fyrsta skáldsaga Braga
sem er þýdd og kemur
út á spænsku og Bragi
hefur nú gert strandhögg
í Argentínu en þar sem
spænska er útbreitt
tungumál um víða veröld
er ömögulegt að segja til
um hversu víða hróður
bókarinnar á eftir að
berast í þýðingu Fabio.
Ásgeir
Trausti
bakaði
keppi-
nauta
70 dægurmál Helgin 9.-11. nóvember 2012