Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 42
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 6
af hverju að
velja lífrænt?
Lífræn hugmyndafræði snýst um órjúfanlega heild heilsu, umhverfis og mannúðar. Lífræn
matvæli eru ræktuð á þann hátt sem náttúran ætlaði matjurtum og dýrum að vaxa — eins
og í gamla daga, áður en nútíma framleiðsluaðferðir komu til sögunnar. Þá eru mannúð-
legar aðferðir í hávegum hafðar, bæði hvað varðar meðferð dýra og aðstæður vinnuafls.
Einnig eru strangari kröfur gerðar til framleiðsluaðferðanna og þeirra efna sem bætt er út
í lífrænar vörur.
Hvaðan kemur
maturinn þinn?
Veistu hvernig h
ann
er framleiddur?
7lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012
lífrænn jólabakstur
með rapunzel
Rapunzel er 35 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ræktun og
framleiðslu á fyrsta flokks lífrænt vottuðum afurðum. Rapunzel gerir
miklar kröfur til hráefnavals bæði hvað varðar almenn gæði og gæði
lífrænnar ræktunar. Rapunzel leggur mikla áherslu á sanngjarna
viðskiptahætti með Hand in Hand verkefni sínu. Rapunzel sameinar
hugmyndina um vottaða lífræna ræktun og heiðarleg viðskipti.
Þegar þú vilt sameina gæði og gott bragð, veldu þá Rapunzel.
70%
súkkulaði
Dökkt hágæða súkkulaði er
ómissandi í jólabaksturinn
því það gefur kröftugt bragð,
er silkimjúkt og afar hentugt
í jólasmákökurnar eða hvaða
bakstur sem er. Það er að sjálf-
sögðu líka ljúffengt eitt og sér en
þá mælum við sérstaklega með
85% súkkulaðinu frá Rapunzel.
Hreint kakó
Kakóið frá Rapunzel er einstak-
lega bragðgott í jólabaksturinn.
Það er enda unnið á afar mildan
hátt til að tryggja að bragðgæði
kakóbaunarinnar næringarríku
fái að halda sér. Svo inniheldur
það að sjálfsögðu 100% hreint
kakóduft.
Nougat
súkkulaði
Algjört lúxusnammi fyrir þá
sem vilja leyfa sér smá munað.
Svo má jafnvel að bragðbæta
súkkulaðibitakökurnar með
ljúffengu unaðslega mjúku
súkkulaði með nougat keim.
Þetta súkkulaði er upplagt að
bjóða gestum eða gæða sér á
á aðventunni.
Kókosmjöl
Þarf vart að kynna enda eitt af
grunnvörunum í jólabaksturinn
og ómissandi í hinum fjölmörgu
heilsu jólauppskrifum,
sérstaklega hráfæði.
Bourbon
vanilla
Bourbon vanilluduftið er ein
vinsælasta varan frá Rapunzel
enda á það sér engan líka. Þú
þarft aðeins hnífsodd af því í
jólauppskriftina, þeytinginn og
aðrar uppskriftir þar sem vanilla
kemur við sögu, því bragðgæðin
eru einstök enda unnin úr 100%
lífrænni vanillustöng og engu
aukalegu bætt við. Þetta er vara
sem á heima á öllum heimilum
landsins.
Lífrænar vörur í jólabaksturinn með siðgæðisvottunina „Hand in
Hand“ og þau einstöku gæði sem einkenna vörurnar frá Rapunzel