Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 48
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 12
Róaðu taugarnar með
jurtatei frá Clipper
Þegar er orðið kalt og dimmt
úti þá er fátt sem jafnast á við
að hita sér gott te til að ylja
líkamann. Á kvöldin er gott að
einblína á jurtate sem eru ekki
örvandi og sem róa taugarnar
eftir annasaman dag.
Rauðrunnate – ríkt af
steinefnum, andoxunarefnum
og C-vítamíni. Gott við höfuðverk
og svefnleysi. Má gefa ungabör-
num. Gott við magakrampa,
ofnæmi og exemi. Getur mildað
kláða þegar það er borið á húð.
Lakkríste – gott fyrir maga og
meltingu. Þeir sem hafa háan
blóðþrýsting ættu að drekka í hófi.
Kamillute – græðandi og róandi
fyrir meltingarveginn og gott fyrir
svefninn. Gott ráð er að setja í
baðið til að róa fyrir svefninn.
Nettlute – nettlan er þekkt
lækningajurt og er einstaklega
járnrík. Hún inniheldur góð
steinefni og vítamín.
Lífrænt fyrir barnið
Holle barnamaturinn er einstak-
lega næringarríkur enda unninn
úr fyrsta flokks lífrænum hrá-
efnum samkvæmt ströngustu
kröfum sem Demeter vottunin
tryggir.
Tímamótaskref var stigið hjá
Holle þegar þeir bættu við
mauki sem inniheldur lífrænt
Demeter vottað kjöt en hingað
til hafa eingöngu grænmetis-
og ávaxtamauk fengist. Nýju
tegundirnar eru eru:
» Spaghetti Bolognese
» Gulrótar-, kartöflu- og
nautakjötsmauk
» Nípu-, kartöflu- og
nautakjötsmauk
Þurrmjólkin frá Holle er í
einstökum gæðum en mjólkin
sem hún er unnin úr kemur
frá kúm og geitum sem nærast
eingöngu á grasi/jurtum og fá
að fara út allt árið um kring sem
rannsóknir hafa sýnt fram á að
eykur hollustu og næringargildi
mjólkurinnar.
Krabbamein, astmi, ofnæmi, exem,
treg blóðrás, blöðruhálskirtilsbólga,
parkinsonveiki, umgangspestir .......
Lúpínuseyðið
gæti hjálpað
www.lupinuseydi.is s. 517 0110
Lúpínuseyðið sem Ævar Jóhannesson gaf fólki
í rúma tvo áratugi gerði mörgum gott eins og
lesa má í æviminningum hans og á vefsíðunni
www.lupinuseydi.is. Hér verður ekkert fullyrt,
en það skaðar ekki að lesa sögurnar og meta
það sjálf hvort seyðið gæti gert ykkur gott.
Fæst í heilsubúðum
Þeir sem hafa leitað að bragðgóðum óáfengum partýdrykk en
ekki haft árangur sem erfiði geta fagnað því að til landsins er
kominn óáfengur lífrænn engiferbjór. Naturfrisk er danskt
fyrirtæki sem framleiðir einnig hið geysivinsæla Naturfrisk
engiferöl, appelsínugos, bitter lemon og aðra ljúffenga drykki.
Bjórinn er bruggaður úr fyrsta flokks lífrænum hráefnum,
inniheldur mikið magn af engifer og passar hann vel einn og
sér eða jafnvel sem bland í góðan kokteil.
Engiferbjór
nú loks
fáanlegur
– tilvalinn í teitið!