Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 38
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 2
Ábyrgðarmaður:
Arndís Thorarensen
Ritstjórn:
Ásdís Ýr Pétursdóttir
Hönnun og umbrot:
Jónsson & Le’macks / jl.is
Ljósmyndari:
Steingrímur Árnason
Forsíðumynd:
Sveinn Speight
@lifandimarkadur
Kæru lesendur.
Það er skemmtilegt að hugsa um heilsuna, njóta lífsins og góðs
matar. Það er gleðiefni hvað framboð og aðgengi að lífrænum
og náttúrulegum vörum er að aukast. Við finnum það sterkt í
samfélaginu, ekki síst á frábærum viðtökum við nýju versluninni
okkar í Fákafeni, að það að velja lífrænt er ekki lengur bara
áhugamál lítils hóps brautryðjenda heldur er að verða almennt
og sjálfsagt. Hálfgerð bylting. Fyrir mig snýst heilsusamlegur og
lifandi lífsstíll fyrst og fremst um gæði í öllu sem maður gerir og
því sem maður borðar. Hins vegar þarf það ekki að vera „allt eða
ekkert“ heldur er hvert lítið skref í áttina að betri heilsu og grænni
lífsstíl það sem skiptir máli. Aðalatriðið er að lifa lífinu á eigin
forsendum og njóta þess!
Ég vona að 2. tölublað af Lifandi lífsstíl muni veita ykkur
innblástur og áhugaverðan fróðleik um hollustu og heilbrigði í
sátt við menn, dýr og umhverfið. Verið hjartanlega velkomin í
matvöruverslanir og veitingastaði okkar í Fákafeni, Borgartúni
og Hæðasmára. Við leggjum mikið upp úr persónulegri þjónustu,
spennandi og fjölbreyttu vöruúrvali sem og fallegu umhverfi og
notalegri stemmningu.
Njótið vel!
Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri.
Með gæði
og gleði að
leiðarljósi
– mestu gæði sem í boð
i eru hverju sinni
– áhersla á lífrænt hrá
efni
Ferskvörur
í Lifandi
markaði
Í verslunum okkar bjóðum við
upp á fjölbreytt úrval lífrænna
ávaxta og grænmetis sem við
flytjum inn sjálf.
Við leggjum einnig mikla
áherslu á að bjóða gott úrval af
íslensku grænmeti og ferskum
kryddjurtum.
Ferskt kjöt frá Kjöthöllinni,
sérvalið og án aukefna. Ferskur
ósprautaður kjúklingur frá
Holtakjúklingi.
Frosið lífrænt lambakjöt frá
Brekkulæk og lífrænt nautakjöt
frá Búlandi. Carpaccio, grafið
naut og kindakæfa án auk-
efna frá Sogni.
Ferskur fiskur – úrvalið
endurspeglar það ferskasta
hverju sinni.
Við bjóðum einnig reyktan og
grafinn villtan lax og frosinn
túnfisk og skelfisk.
Lífræn heilkorna súrdeigs-
brauð frá Sandholti á hverjum
degi og nýbakaðar lífrænar
skonsur og croissant með
kaffinu.
Auk þess bjóðum við lífrænt
brauð frá Brauðhúsinu og
úrval af bakkelsi frá Sólheimum
í Grímsnesi.
Lífrænar mjólkurvörur inni-
halda meira af Omega-3 fitu-
sýrum en hefðbundar. Við
bjóðum fjölbreytt úrval, bæði
af lífrænum og hefðbundnum
mjólkurvörum, eins og mjólk,
ostum, smjöri, jógúrti, skyri
og fleira.
Lifandi markaður hefur tekið
í fóstur fimm íslenskar land-
námshænur á Tjörn á Vatns-
nesi og fáum við eggjasendingu
vikulega. Hænurnar fá eins mikla
útivist og þær kjósa allt árið um
kring og hafa frjálsan aðgang að
fóðri og vatni eftir þörfum. Auk
þess seljum við vistvæn brúnegg.
Í lífrænum landbúnaði er búfénaður
að mestu leyti fóðraður með grasi og
jurtum en ekki korni eins og algengt er.
Þá er dýrunum tryggt eðlislægt líferni
og útivist árið um kring. Við trúum því
að þetta stuðli að hollari afurðum og að
sjálfsögðu velferð dýranna.
www.lifandimarkadur.is