Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 16
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
N
Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar um
viðbrögð og starfshætti kaþólsku kirkjunnar
á Íslandi vegna ásakana um kynferðisbrot eða
önnur ofbeldisbrot vígðra þjóna og annarra
starfsmanna kirkjunnar sem kynnt var fyrir
réttri viku eru staðfesting á því sem fram kom
í mörgum fréttum og úttektum í Fréttatím-
anum í fyrra. Margir áttu bágt með að trúa
því að svo hastarlegt ofbeldi hefði viðgengist
gagnvart börnum, árum og
jafnvel áratugum saman, í
skjóli kaþólsku kirkjunnar
og Landakotsskóla sem hún
rak allt til ársins 2005. Þá tók
sjálfseignarstofnun við rekstri
skólans.
Það þurfti kjark til að stíga
fram og lýsa því ofbeldi sem
þetta fólk hafði þurft að þola á
barnsaldri, líkamlegt, andlegt
og kynferðislegt. Þöggun
kaþólsku kirkjunnar á þessu
ofbeldi er æpandi enda bárust henni marg-
sinnis ábendingar um ofbeldi gagnvart
börnum í Landakotsskóla og sumarbúðum
á vegum hennar. Skýr skylda er þó til þess
að upplýsa um það ef börn búa við ofbeldi
eða áreitni. Kynferðislegt og annað ofbeldi
er alvarleg ógn við velferð barns. Ríkir sam-
félagslegir hagsmunir eru í húfi, enda hvílir
skylda á samfélaginu að tryggja öryggi og
veita börnum þá vernd sem velferð þeirra
krefst. Þöggun kaþólsku kirkjunnar á við-
varandi ofbeldinu var hins vegar markviss og
kerfisbundin. „Í tilvikum þar sem líklegt er
að koma megi í veg fyrir brot, frekari brot eða
alvarlegar afleiðingar ofbeldis fyrir barn má
því leiða líkum að því að skylt sé að tilkynna
lögreglu ásamt því að leita til barnaverndar-
nefndar. Burtséð frá skyldu manna til að snúa
sér til lögreglunnar vegna refsiverðra brota
þá er almennt heimilt að óska lögreglurann-
sóknar ef grunur leikur á að brot hafi verið
framið,“ segir meðal annars í skýrslu rann-
sóknarnefndarinnar.
Hrollur fór um þá sem lásu í Fréttatímanum
um ofbeldið. Sá hryllingur kemur ekki síður
fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Eins
og fram kom í blaðinu voru það einkum tveir
nafngreindir aðilar sem árum saman níddust
á börnum sem þeim var treyst fyrir í Landa-
kotsskóla og sumarbúðum kaþólsku kirkj-
unnar, skólastjórinn, séra Georg, og kennari
við skólann sem skólastjórinn hélt hlífiskildi
yfir, Margrét Müller. Fleiri voru sakaðir um
kynferðislegt ofbeldi en þeir eru ekki nafn-
greindir í skýrslunni.
Um áhrif andlegs, líkamlegs og kynferðis-
legs ofbeldis á börn þarf ekki að hafa mörg
orð, svo ekki sé talað um hreinræktaðan sad-
isma eins og viðgekkst í Landakotsskóla og
sumarbúðunum. Í formála skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar segir meðal annars: „Á undan-
förnum áratugum hefur verið stigvaxandi
meðvitund um ofbeldi og illa meðferð sem
börn hafa oft þurft að þola af hendi ýmissa
sem falin hefur verið umsjón þeirra. Þá hefur
stöðugt komið skýrar í ljós hversu alvarlegar
afleiðingar ofbeldis geta verið fyrir þolanda.
Ofbeldi af hálfu þess sem er í valdastöðu eða
í trúnaðarsambandi við þolanda, svo sem
trúarleiðtoga, prests, skólastjóra eða kennara,
hefur nokkra sérstöðu. Við ofbeldið misnotar
fagaðilinn sér það óskilyrta traust sem þol-
andi ber til hans og það vald sem stöðu hans
fylgir. Við þessar aðstæður eiga þolendur oft
mjög erfitt með að segja frá ofbeldinu og það
getur varað í langan tíma.“ Skýrsluhöfundar
segja enda frá því að þótt sumir viðmælend-
anna hefðu reynt, árangurslaust því miður,
að koma á framfæri ásökunum hefðu aðrir
sagt frá í fyrsta sinn. Hina skelfilegu reynslu
höfðu þeir geymt með sér. Það var þeim að
vonum tilfinningalega erfið reynsla að segja
frá ofbeldinu og afleiðingum þess.
Biskup kaþólsku kirkjunnar hefur beðið
þá afsökunar „sem telja að á sér hafi verið
brotið“, eins og segir í viðbrögðum við skýrslu
rannsóknarnefndarinnar. Afsökunarbeiðnin
er sett fram „í fullkominni auðmýkt“ eins og
segir í viðbrögðum biskupsins en athuga-
semd verður að gera við orðalagið.
Það leikur enginn vafi á að á þessum börn-
um var brotið og það alvarlega.
Ofbeldi gagnvart börnum sem kaþólsku kirkjunni var treyst fyrir
Markviss og kerfisbundin þöggun
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Orður og æra
Við andlát þarf að skila Fálkaorðunni, það
er því erfitt að svipta menn einhverju sem
þeir ekki hafa.
Örnólfur Thorsson forsetaritari sló kröfu
Illuga Jökulssonar um að séra Ágúst
Georg, fyrrverandi skólastjóri Landakots-
skóla, yrði sviptur Fálkaorðunni.
Evrópuförðun
Hann baðar sig í kinnapúðri Evrópubanda-
lagsins sem hann makar á sig á
hverjum degi og sleikir út um.
Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, setti út á
andlitsmálningu Steingríms
J. Sigfússonar, atvinnu- og
nýsköpunarráðherra, í
umræðu um fiskveiðistjórnun á
Alþingi.
Fjármálalesblinda
Ég held að menn hafi kannski bara mis-
munandi fjármálalæsi og sjái hlutina á
ólíkan hátt.
Sigurður Rúnar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar,
reynir að skýra mismunandi viðbrögð við
fjárhagsvandræðum Eirar og hugmyndum
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um rekstr-
arerfiðleika.
Veðursaga fyrir byrjendur
Gott kvöld. Það er bæði fróðlegt og
skemmtilegt að skoða gömul veðurkort og
ekki síst gamlar óveðursspár. Hér höfum
við dæmi um slíka spá sem var gefin út 8.
september og gilti fyrir 10. september.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur brást
við orðum Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra að ekki hefði varað við
fjárskæðu óveðri í september með því að
rifja upp veðurspá þeirra daga í beinni
útsendingu.
Snjóstormur í vatnsglasi
Það sem var óheppilegt af minni
hálfu í seinna skiptið sem ég
kom upp sagði ég að ekki
hefði verið spáð fyrir um
slæmt veður.
Ögmundur Jónasson dró
aðeins í land með veður-
spárgagnrýni sína eftir að
Haraldur Ólafsson snupraði hann hárfínt
undir rós.
Lengi mun sú skömm uppi verða!
Þetta er ekki eldiviður, en það gerðum
við einu sinni við jólatréð og var okkur
til háborinnar skammar að við skyldum
kveikja í trénu á Austurvelli.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur,
stuðaði búsáhaldarbyltingafólk með því
að lýsa iðrun og skömm yfir að Oslóar-
tréð hafi verið brennt á Austurvelli í hita
mótmælanna. Seint í janúar.
Bjúgu og annar óþverri
Það er hreinlega vanvirðing við börn að
þeim sé réttur matseðill með nöggum og
spagettí. Börn eru bara litlar útgáfur af
fólki.
Sigurveig Káradóttir matreiðslumaður kom
með yfirvegað innlegg í heita umræðu um
vondar skólamátíðir. Lætin byrjuðu eftir að
kennarar í Hafnarfirði kveinkuðu
sér undan því að þurfa að
borða vond bjúgu sem
þeim þykja þó boðleg
nemendum sínum.
VikaN sem Var
„Ég er mjög ánægð með þessa viku,“ segir
maður vikunnar, Margrét Marteinsdóttir,
nýráðin dagskrárstýra útvarps RÚV, glöð í
bragði. Hún segir vikuna hafa verið talsvert
frábrugðna öðrum vikum í vinnunni. „Jafnvel
þó að ég hafi verið hér á RÚV í rúm 14 ár,
lengst af á fréttastofunni,“ bætir hún við.
„Núna beygi ég til vinstri en ekki hægri þegar
ég kem inn. Það er nýtt en ég er mjög ánægð
og hlakka til að takast á við þetta skemmtilegt
starf.“ Hún segir ekki aðeins skemmtilega tíma
fram undan í útvarpinu, „fyrir utan það að
vera að skipuleggja áhugaverða og skemmti-
lega jóladagskrá á Rás 1 og Rás 2 með öllu því
góða fólki sem hér vinnur er ég að undirbúa 17
ára afmæli einkadótturinnar.“
MaðuR vikunnaR
Beygir nú til vinstri en ekki hægri
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Víkurhvar 6, 203 Kópavogi
sími: 488 - 9000
www.samverk.is
samverk@samverk.is
Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf
Víkurhvar 6, 230 Kópavogi
69%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
16 viðhorf Helgin 9.-11. nóvember 2012