Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 34
Ný
ju
ng
!
Ljótur frá MS er bragðmikill og spennandi
blámygluostur. Láttu hann koma þér á
óvart og dæmdu hann eftir bragðinu.
Ljótur að utan
– ljúfur að innan
G réta Ingþórsdóttir var beðin um að gerast að-stoðarmaður forsætisráðherra sama dag og hún kistulagði tæplega níu ára dóttur sína, Emmu
Katrínu, sem lést af völdum krabbameinsæxlis í heila
eftir einungis tveggja mánaða baráttu við sjúkdóminn.
Gréta hafði í átta ár gegnt starfi framkvæmdastjóra
þingflokks Sjálfstæðisflokksins en eftir kosningarnar
2007 bauðst henni þetta áhrifastarf – sem hún þáði.
Við tóku krefjandi tímar, ekki einungis vegna þess að
Gréta var í sárum eftir barnsmissi heldur einnig vegna
þess að 18 mánuðum síðar hrundi bankakerfið – og
Gréta stóð við hlið Geirs Haarde í miðju kafaldsbylsins
sem dundi yfir þjóðina.
Í miðjum stormi spurði samstarfskona hennar hvort
hún hefði nokkru sinni upplifað annað eins álag. „Já,
reyndar, svaraði ég. Og hún áttaði sig umsvifalaust á
því við hvað ég átti,“ segir Gréta. Hún segir að ástandið
í stjórnarráðinu í kjölfar hrunsins hafi verið ólýsanlegt.
„Símarnir stoppuðu ekki með fyrirspurnum frá fjöl-
miðlafólki og almenningi, mótmælendur umkringdu
stjórnarráðið og álagið var rosalegt. Við unnum dag og
nótt. En reynsla mín af missinum á Emmu auðveldaði
mér að takast á við álagið. Og ég er ekki að gera lítið úr
alvarleika málsins þegar ég segi að mér hafi í samhengi
hlutanna bara fundist þetta vera verkefni sem þurfti að
vinna,“ segir Gréta.
Emma var lífsglaður og skapandi orkubolti, ófeimin
og ræðin. Barn sem stóð uppi á borði og söng eða sagði
brandara. „Ofsalega mikið lifandi,“ segir mamma
hennar. Emma fór að kvarta undan höfuðverkjum seint
á árinu 2006 og fór í tölvusneiðmyndatöku í janúar 2007
sem leiddi ekkert í ljós. Í byrjun mars var hún farin að
missa mátt í vinstri hendi og var þá skoðuð aftur. Í ljós
kom að Emma var með sjúkdóm sem nefnist Neurofi-
bromatosis, eða NF-1, og var með taugahnút í heila-
stofni. „Ég man hvernig mér leið þegar Pétur Lúðvígs-
son taugalæknir sýndi okkur Gísla, manninum mínum,
myndir af æxlinu þann 8. mars 2007. Ég vissi að ögur-
stund væri runnin upp og líf okkar yrði aldrei aftur eins.
Þetta voru verstu fréttir sem við höfðum fengið. Vissu-
lega áttum við eftir að fá verri fréttir margoft í ferlinu og
þær verstu þegar okkur var sagt að fullreynt væri með
alla meðferð og Emma ætti aðeins nokkra daga eftir.“
Með X-D blöðru á tánni í geisla
Þegar Emma greindist var kosningabaráttan fyrir
alþingiskosningarnar 2007 að ná hámarki og Gréta
gegndi þar einu af lykilhlutverkunum. Gréta var sann-
færð um að Emmu myndi batna – annað hvarflaði
ekki að henni og hún var staðráðin í því að gera lífið á
Barnaspítalanum sem jákvæðast fyrir Emmu. Alþingis-
kosningarnar fóru fram laugardaginn 12. maí – fjórum
dögum eftir að Gréta og Gísli Hjartarson fengu að vita
Það er lítið að eiga bara tvö
börn ef maður hefur átt þrjú
Grétu Ingþórsdóttur bauðst að gerast að-
stoðarmaður Geir Haarde forsætisráðherra
sama dag og hún kistulagði tæplega níu
ára dóttur sína. Hún hafði látist af völdum
krabbameinsæxlis í heila eftir stutta sjúkdóms-
baráttu. Gréta hefur unnið úr sorginni af
ótrúlegu æðruleysi og styrk og ræðir við Sigríði
Dögg Auðunsdóttur um lífið eftir barnsmissi.
Framhald á næstu opnu
Ég vissi að ögur-
stund væri runnin
upp og líf okkar
yrði aldrei aftur
eins.
Gréta Ingþórsdóttir býr yfir ótrúlegu æðruleysi. Hún talar um Emmu og missinn á aðdáunarverðan hátt. Hún minnist þess jákvæða sem Emma færði
þeim í stað þess að dvelja í sorginni. Hér er hún með Halldóru dóttur sinni og málverk af Emmu, eftir Rebekku Rán Samper, á veggnum. Ljósmynd/Hari
34 viðtal Helgin 9.-11. nóvember 2012