Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 36

Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 36
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is 15-50% AFMÆLISHÁTÍÐ fögnum 8 ára afmæli með nýrri vörulínu afsláttur af öllum vörum Opið laugardag 11-16 að dóttir þeirra myndi ekki lifa sjúkdóminn af – fjórum dögum síðar, 16. maí, lést hún. „Emma hafði svo gaman af kosningabar- áttunni og hélt svo með flokknum hennar mömmu sinnar að við opnuðum litla kosn- ingaskrifstofu á stofunni hennar,“ segir Gréta. „Þangað var straumur af fólki sem vildi okkur vel, samstarfsfólk og vinir úr Val- höll. Við héldum uppi massívum X-D áróðri, dreifðum kosningadóti í allar áttir og Emma fór meira að segja einu sinni með uppblásna X-D blöðru á tánni í geisla. Við reyndum að hafa eins mikla gleði í kringum okkur eins og við gátum, enda vorum við öll og hún sjálf að vinna í því að láta henni batna,“ segir Gréta. „Auðvitað gaf þetta líka möguleika á að spjalla um eitthvað annað og dreifa huganum sem gerði okkur öllum mjög gott.“ Emma fór í skurðaðgerð en ekki náðist að fjarlægja nema lítinn hluta af æxlinu sem voru foreldrunum gríðarleg vonbrigði. Það fór fljótlega að vaxa mun hraðar en áður og valda miklum þrýstingi og þar með lömun. Geislameðferð var reynd en henni þurfti að hætta vegna hættu á uppköstum. „Smíðuð var sérstök gríma yfir andlit og höfuð Emmu og hún skrúfuð niður þannig að hún gæti alls ekki hreyft sig á meðan á geislameðferðinni stóð. Þegar hætta var á að Emma myndi kasta upp svona skrúfuð niður var ekki lengur hægt að geisla. Þetta er í raun eitt það erfiðasta sem ég minnist frá þessum tíma – að sjá hana svona, fasta með eitthvert net yfir andlitinu á sér. Gísli fékk til að mynda hjálp við að vinna úr þessum minningum, þær ásóttu hann svo sterkt. En það eru ekki bara erfiðar minningar frá þessum tíma. Við átt- um líka okkar góðu og skemmtilegu stundir og hugsum til baka með aðdáun á dugnað og æðruleysi Emmu og því hvernig hún tókst á við veikindi sín.“ Áfallið veldur lífshættu „Fólk sem lendir í svona áfalli er nánast í lífs- hættu í nokkurn tíma á eftir. Maður verður bara fastur í þessum minningum. Gísli upp- lifði það stuttu eftir að Emma var farin að hann var að keyra vörubíl og var næstum kominn fram af bryggju – hann var með hug- ann hjá Emmu á sjúkrahúsinu og var í raun alls ekki á staðnum“. Gréta segir að þau hafi þegið alla þá hjálp sem þeim hafi boðist, bæði á meðan baráttunni stóð og eftir að Emma lést. Hún segir að Vigfús Bjarni Albertsson sjúkra- húsprestur hafi reynst þeim einstaklega vel. Einnig hafi þau nýtt sér stuðningshóp hjá sr. Lenu Rós Matthíasdóttur, sóknarpresti við Grafarvogskirkju, fyrir fólk sem misst hefur ástvini og mælir hún með því. „Ég held þó að mikilvægast sé að kvelja ekki sjálfan sig með hugsunum um að maður hefði átt að gera eitt- hvað öðruvísi. Í átta ár af næstum því níu var lífið hennar Emmu frábært. Ég er samt fyrst núna farin að geta minnst hennar eins og hún var áður en hún varð veik. Veikindin tóku svo mikið pláss í huganum en sem betur fer er það að breytast. Nú sé ég hana mest fyrir mér syngjandi, glaða og hressa,“ segir Gréta og brosir. Gréta býr yfir ótrúlegu æðruleysi. Hún talar um Emmu og missinn á aðdáunarverð- an hátt. Hún leggur áherslu á að minnast þess jákvæða sem Emma færði þeim í stað þess að dvelja í sorginni. „Ég tók ákvörðun á ákveðnum tímapunkti um að komast í gegn- um þetta. Við áttum og eigum tvo flotta og frábæra stráka og það var ekkert annað í boði en að halda áfram með þeim. Sem betur fer er svo margt til að þakka fyrir og lifa fyrir,“ segir hún. Höfðum léttleikann í fyrirrúmi Á síðustu dögum Emmu, þegar ljóst var að hún myndi ekki hafa betur í baráttunni við krabbameinið og hún var komin í líknandi meðferð, ákváðu Gréta og Gísli að það ætti ekki að reyna að lengja þá baráttu. „Við vild- um bara að henni yrði látið líða sem skást. Við lögðum áherslu á að allir sem kæmu í heimsókn reyndu að hafa léttleikann í fyrir- rúmi. Ég grét ekki inni hjá henni því henni leið svo illa þegar okkur leið illa. Við sögðum henni aldrei að hún væri að deyja og það er kannski það eina sem ég held að við hefðum ef til vill átt að gera öðruvísi. Mér finnst eftir á að hyggja að við hefðum ekki komið alveg hreint fram við hana með því að tala ekki um það við hana.“ Yngri bróðir Emmu, Greipur, var fimm ára þegar systir hans dó og eldri bróðirinn, Bald- vin, á sextánda ári. Baldvin var fastagestur á spítalanum og náði að kveðja systur sína í miðjum samræmdum prófum sem hann lauk með glans. Gréta segir að þau foreldrarnir hafi ef til vill vanmetið þroska Greips og þau hefðu átt að leyfa honum að vera meiri þátt- takandi í veikindum systur sinnar. Síðustu þrjár vikurnar var hann í pössun og kom ekki á spítalann þegar Emma var að skilja við. „Hann hefur undanfarið spurt okkur hvers vegna hann hafi ekki fengið að heimsækja hana meira og það situr svolítið í honum að hann hafi verið útilokaður frá þessu ferli. Eftir á að hyggja hefði ég viljað gera þetta öðruvísi en á þeim tíma héldum við að það væri ekki skynsamlegt að hann væri við- staddur. Við áttum nóg með okkur sjálf þegar við þurftum að horfast í augu við að dauða- stundin væri að renna upp. Við leyfðum hon- um að sjá líkið nokkrum dögum seinna niðri í Fossvogi og áttum þar stund með strákunum okkar sem var mikilvæg og dýrmæt fyrir okkur öll,“ segir Gréta. Þegar Greipur varð átta ára fór hann að verða hræddur um að hann myndi deyja eins og systir hans áður en hann yrði níu ára. „Hann er mjög viðkvæmur og við höfum fengið aðstoð út af því. Það er á margan hátt erfiðara að hjálpa börnunum sínum í gegnum svona en að fá sjálfur hjálp,“ segir Gréta. Eignuðust dóttur fyrir ári Fyrir hálfu öðru ári fæddist Grétu og Gísla dóttir. „Það er lítið að eiga bara tvö börn ef maður hefur átt þrjú. Við ákváðum því að reyna að eignast annað barn og það tókst þrátt fyrir að ég væri að verða 45 ára. Ég var hraust á meðgöngunni en talsvert meyr yfir þessu. Barnið var enn meiri himnasending en í hin skiptin. Og svo þegar við fengum að vita að þetta væri stelpa þá var þetta einhvern veginn eins og pantað.“ Halldóra Karítas þekkir Emmu af myndum og segir nafnið hennar. „Hún verður örugg- lega alltaf í hennar vitund því við tölum mikið um hana,“ segir Gréta. Hún neitar því ekki að vera hrædd um börnin sín. „Þótt ég hugsi það þá segi ég það ekki við þau. Þau verða að fá að lifa lífinu á sínum forsendum, ekki á þeim forsendum að við séum búin að missa barn og séum þess vegna hræddari um þau, mér finnst það mjög mikilvægt.“ Fyrir skömmu tók Gréta við starfi fram- kvæmdastjóra Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna en hún hefur starfað nokkur ár í stjórn félagsins. „Þegar framkvæmdastjóra- staðan hjá SKB losnaði hugsaði ég með mér að þarna gæti ég vel hugsað mér að beita mér. Ég þekki félagið vel eftir að hafa setið í stjórn þess í fjögur ár og veit að þetta er gott félag sem nýtur mikils velvilja og er að gera frábærlega góða hluti í því að styðja fjölskyld- ur krabbameinsveikra barna. Félagið hefur líka lagt fjármuni í að aðstoða starfsfólkið á Barnaspítalanum við að efla sig faglega, til dæmis með því að styrkja það til að fara á ráðstefnur og námskeið. Það nýtist ekki bara krabbameinsveikum börnum, heldur líka fleiri skjólstæðingum spítalans,“ segir Gréta. Gráturinn hreinsar En verður barnsmissir auðveldari með ár- unum? „Já, ekki spurning. Það skiptir nátt- úrulega miklu máli að hafa stuðningsnet í kringum sig, bæði fjölskyldu og vini en einnig netið hjá SKB. Einhvern tímann var Gísli einn á fundi hjá Anga, sem er stuðnings- hópur foreldra innan SKB, sem hafa misst börn úr krabbameini. Hann sagði mér frá því eftir á að þarna hafi verið fólk sem gat varla talað um reynslu sína þótt liðin væru fimmtán ár eða eitthvað slíkt. Þessu fólki leið ennþá mjög illa. Þó svo að ég hafi ekki verið þarna þá ákvað ég að ég ætlaði ekki að vera í þess- ari stöðu. Ég held að það hafi skipt rosalega miklu máli að taka þessa ákvörðun. Þetta hljómar kannski kalt að segja þetta – en það að taka ákvörðun um að komast yfir þetta, skiptir miklu máli.“ Gréta segir að enn komi erfiðar stundir – og oft þegar hún á síst von á þeim. „Maður á að nota hvert tækifæri til að gráta og syrgja og þegar upp koma þessi erfiðu augnablik þar sem eitthvað hrærir upp í manni eða minningar vakna og erfiðar tilfinningar koma upp. Maður á bara að láta það eftir sér að gráta, það er bara svo gott, það hreinsar,“ segir Gréta. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Öllum holl lesning Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjón- varpskona og Thelma Þorbergs- dóttir tóku saman frásagnir foreldra einstakra barna í nýútkominni bók, Gleðigjafar þar sem Gréta segir sögu sína af missinum á Emmu. Thelma og Sigrún kynntust í sjónvarpsviðtali um reynslu Thelmu af því að eignast barn með Downs heilkenni og ákváðu í kjölfarið að gefa út bók með reynslusögum foreldra einstakra barna. „Við fengum frábær viðbrögð frá foreldrum, langflestir voru til í að vera með og voru sammála um að svona bók hefði vantað lengi. Þótt ég segi sjálf frá er þessi bók frábær og öllum holl lesning,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona. Thelma segir að sögurnar í bókinni séu mjög ólíkar, enda hafi það verið upp- leggið. „Hins vegar eiga þær allar það sameigin- legt að undirstrika hversu miklir gleðigjafar þessi börn eru eða voru í lífi foreldra sinna.“ Hefur vinnsla bókarinnar kennt ykkur eitthvað? „Já, óneitanlega. Ég held að maður sé aldrei minntur nógu oft á það að litlu hlutirnir og þetta smotterí sem maður getur látið fara í taugarnar á sér skiptir engu máli.“ Systkinin Emma og Greipur voru mjög náin. Greipur var 5 ára þegar Emma lést. Kristinn Ingvarsson 36 viðtal Helgin 9.-11. nóvember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.