Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 40
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 4
Sú umfangsmikla umræða sem hefur skapast í
kringum D-vítamín undanfarin ár ætti ekki að hafa
farið fram hjá neinum. Ástæðan fyrir umræðunni er
sú að niðurstöður fjölda rannsókna sýna fram á að
D-vítamín sé svo miklu meira en það beinavítamín
sem það er þekkt fyrir. Annað sem fjöldi rannsókna
hefur sýnt fram á er að skortur á D-vítamíni sé afar
algengur og að langstærsta hluta almennings skorti
D-vítamín nema hugsanlega yfir sumarmánuðina.
Erfitt að fá D-vítamín úr sólinni
D-vítamín er gjarnan kallað „sólarvítamínið“ þar
sem líkami okkar býr það til þegar sólargeislar
lenda á húðinni. Venjulegur matur inniheldur ekki
nægjanlegt magn D-vítamíns til að uppfylla þarfir
okkar, en D-vítamín finnst aðallega í feitum fiski
og eggjarauðu.
Rannsóknir hafa sýnt að fjöldi hindrana sé fyrir
því að nútímamaðurinn geti fengið nægjanlegt
D-vítamín úr sólu. Það á sérstaklega við um fólk
sem býr á norðlægum slóðum, eins og Íslandi og
því mikilvægt að taka það inn sem fæðubótarefni.
Til er fjöldi tegunda af D vítamíni og eru D2 (úr
plönturíkinu) og D3 (úr dýraríkinu) þekktust.
Rannsóknir hafa sýnt að virkni D3 er mun meiri en
D2 og í mörgum tilvikum er inntaka á D2 forminu
jafnvel óæskileg.
Áhrif D vítamíns
Talið er að D-vítamín hafi bein áhrif á stóran hluta
gena sem hafa með sjúkdóma að gera. D-vítamín
er meðal annars einstaklega mikilvægt fyrir virkni
ónæmiskerfisins, hefur mikið forvarnagildi gegn
flestum krabbameinum, hefur áhrif á fjölda
sjálfsónæmissjúkdóma og geðsjúkdóma eins og
þunglyndi.
Hversu mikið D vítamín?
Hinn opinberi ráðlagði dagskammtur er 600 IU
(International Units eða alþjóðaeiningar) eða 15
míkrógrömm (10 míkrógrömm jafngilda 400 IU).
Sérfræðingar á sviði D-vítamíns eru sammála
um að þessi skammtastærð sé of lítil til að virkja
fyrirbyggjandi áhrif D-vítamíns og hámarka
heilbrigði. Margir sérfræðingar ráðleggja 75 IU
fyrir hvert kíló líkamsþyngdar sem er líklega besta
ráðið þar sem það gerir einnig ráð fyrir að þungir
einstaklingar og ófrískar konur þurfi
stærri skammta.
Þó svo að D-vítamín sé fituleysanlegt vítamín
þá hefur verið sýnt fram á að það safnist ekki
fyrir í líkamanum eins og áður var talið, heldur
nýti líkaminn það eftir þörfum. Til að framkalla
eitureinkenni þarf nokkra tugi þúsunda
alþjóðaeininga af D-vítamíni á dag.
D-vítamín
Skærasta stjarna fæðubótarefnanna
Þrotlaus vinna er
lykillinn að árangri
Kári er einn af frambærilegustu og
efnilegustu íþróttamönnum sem Ísland
hefur alið. Þetta sýndi hann og sannaði á
sínum fyrstu Ólympíuleikum nú í sumar.
Hann á sannarlega bjarta framtíð sem
maraþonhlaupari enda á meðal 40 bestu
hlaupara í heimi. Við vildum forvitnast
um hvað Kári gerir til að viðhalda orku og
heilbrigði, en Kári hefur tekið inn NOW
fæðubótarefnin um skeið.
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Ég borða yfirleitt AB-mjólk
með Rapunzel, lífrænu
ávaxtamúslí og drekk 2-3
vatnglös. Síðan tek ég að
sjálfsögðu vítamín – ADAM
fjölvítamín, D-vítamín, Omega-3
og Spirulina frá NOW.“
Hvaða NOW vörur eru í
uppáhaldi hjá þér?
„Ég er ótrúlega hrifinn af öllum
þeim NOW vörum sem ég hef
notað en mér dettur fyrst í hug
Electro Endurance. Þar er allt
sem ég þarf eftir æfingu í einni
blöndu. Það skiptir miklu máli
að nærast sem allra fyrst eftir
æfingu til að líkaminn hafi næga
orku til að vinna úr áreitinu sem
hann varð fyrir á æfingunni. Í
Electro Endurance eru steinefni,
kolvetni, prótein og amínosýrur.
Mér finnst frábært að fá þetta allt
á einfaldan hátt úr einni blöndu
og ég er fljótari að jafna mig á
milli æfinga.“
Hvert er leyndarmálið að baki
framúrskarandi árangurs?
„Það er lítið um leyndarmál
þegar kemur að þessum fræðum.
Á bakvið framúrskarandi
árangur er einfaldlega gríðarlega
mikil vinna. Þá þarf að hafa
gott hugarfar, rétta næringu,
góða þjálfun, aðstöðu og alla
þessa smærri þætti í lagi. Þetta
helst allt saman í hendur en
grunnurinn að góðum árangri er
ekkert nema þrotlaus vinna.“
Vínsteinslyftiduft má nota í
bakstur í staðinn fyrir venjulegt
lyftiduft. Það er mun hollara þar
sem það er án allra óæskilegra
efna eins og áls. Hentar fólki með
glúteinóþol eða ofnæmi.
Naturata steikingarolía er
kaldpressuð lífræn sólblómaolía.
Vegna þess hve hitaþolin hún
er, hentar hún mjög vel til
steikingar, djúpsteikingar
og í bakstur.
Vissir
þú?