Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Side 43

Fréttatíminn - 09.11.2012, Side 43
7lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 lífrænn jólabakstur með rapunzel Rapunzel er 35 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ræktun og framleiðslu á fyrsta flokks lífrænt vottuðum afurðum. Rapunzel gerir miklar kröfur til hráefnavals bæði hvað varðar almenn gæði og gæði lífrænnar ræktunar. Rapunzel leggur mikla áherslu á sanngjarna viðskiptahætti með Hand in Hand verkefni sínu. Rapunzel sameinar hugmyndina um vottaða lífræna ræktun og heiðarleg viðskipti. Þegar þú vilt sameina gæði og gott bragð, veldu þá Rapunzel. 70% súkkulaði Dökkt hágæða súkkulaði er ómissandi í jólabaksturinn því það gefur kröftugt bragð, er silkimjúkt og afar hentugt í jólasmákökurnar eða hvaða bakstur sem er. Það er að sjálf- sögðu líka ljúffengt eitt og sér en þá mælum við sérstaklega með 85% súkkulaðinu frá Rapunzel. Hreint kakó Kakóið frá Rapunzel er einstak- lega bragðgott í jólabaksturinn. Það er enda unnið á afar mildan hátt til að tryggja að bragðgæði kakóbaunarinnar næringarríku fái að halda sér. Svo inniheldur það að sjálfsögðu 100% hreint kakóduft. Nougat súkkulaði Algjört lúxusnammi fyrir þá sem vilja leyfa sér smá munað. Svo má jafnvel að bragðbæta súkkulaðibitakökurnar með ljúffengu unaðslega mjúku súkkulaði með nougat keim. Þetta súkkulaði er upplagt að bjóða gestum eða gæða sér á á aðventunni. Kókosmjöl Þarf vart að kynna enda eitt af grunnvörunum í jólabaksturinn og ómissandi í hinum fjölmörgu heilsu jólauppskrifum, sérstaklega hráfæði. Bourbon vanilla Bourbon vanilluduftið er ein vinsælasta varan frá Rapunzel enda á það sér engan líka. Þú þarft aðeins hnífsodd af því í jólauppskriftina, þeytinginn og aðrar uppskriftir þar sem vanilla kemur við sögu, því bragðgæðin eru einstök enda unnin úr 100% lífrænni vanillustöng og engu aukalegu bætt við. Þetta er vara sem á heima á öllum heimilum landsins. Lífrænar vörur í jólabaksturinn með siðgæðisvottunina „Hand in Hand“ og þau einstöku gæði sem einkenna vörurnar frá Rapunzel

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.