Fréttatíminn - 09.11.2012, Side 56
40 heima Helgin 9.-11. nóvember 2012
Viðhald parketgólfa
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
V
ig
n
ir
J
ó
h
an
n
ss
o
n
Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | Sími 581 4020 | www.galleri l ist. is
einstakt
eitthvað alveg
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
p arketgólf slitna og óhreink-ast með tímanum, rétt eins og hver önnur gólfefni.
Gólfefnaval ehf. hefur um langt
árabil boðið upp á heildarlausn
í viðhaldi parkets með umhverf-
isvænum parketvörum. Sífellt
fleiri viðargólf eru nú olíuborin
og hafa þau oft reynst eigendum
sínum erfið í þrifum (viðhaldi).
Nú eru komin ný efni frá Bona
sem auðvelda þér til muna að
halda olíubornu viðargólfi við á
auðveldan hátt.
Til daglegra þrifa mælir sölu-
fólk Gólfefnavals með Bona olíu-
hreinsi (Bona Oil Cleaner) sem
er sérstaklega blönduð feit sápa
sem er ætluð fyrir dagleg þrif á
olíubornum viðargólfum.
Bona Olíu hreinsirinn gerir
þrifin auðveld, örugg og árang-
ursrík. Þessi sérstaka blanda
bæði hreinsar og nærir olíuborna
parketið ásamt því sem hún eykur
vörnina á gólfinu.
Þegar næra þarf olíuborið
parket benda starfsmenn á Bona
olíu-Refresher, sem ætlað er á
olíuborin gólf sem farin eru að
láta á sjá.
„Með Bona Oil Refresher gerir
þú viðhaldið á olíu og vaxbornum
(hardwax oiled) viðargólfum að
leik einum. Einfaldlega sprautið á
gólfið og strjúkið yfir það,“ segir
Gunnar hjá Gólfefnavali. Efnið
krefst ekki vélbúnaðar. Lausnin
tryggir þér sterka vörn og gefur
gólfinu nýjan fallegan ljóma. Bona
Oil Refresher er umhverfisvæn
vara með mjög lágu leysiefna
innihaldi, vatnsleysanlegt og
nánast lyktarlaust.
Slitin og snjáð lökkuð gólf
„Þá er einnig fáanlegt efni fyrir
lakkað parket sem heitir Bona
Refresher sem fólk getur sjálft
borið á parketið til að endurvinna
gljáann á parketinu án þess að
slípa það,“ útskýrir Gunnar Þór.
Efnið er ætlað fyrir parket sem
orðið eru lúið, rispað og matt. Það
er mjög auðvelt í notkun og ætlað
fyrir hinn almenna neytenda.
„Það kemur fólki mjög á óvart hve
árangursrík, einföld og ódýr þessi
lausn er,“ segir Gunnar Þór.
Slípun, lökkun og olíuburður
„Eins og áður sagði leggur Gólf-
efnaval mikla áherslu á heildar-
lausn á hreinsi- og viðhaldsvörum
fyrir parket. Við höfum fundið
mikið fyrir því undanfarið að fólk
velur að endurnýja parketgólfin
sín með slípun og lökkun eða olíu-
burði í stað þess að rífa það upp og
leggja nýtt. Sumir kjósa að breyta
um lit á gólfinu á meðan aðrir velja
hefðbundið lakk,“ segir Gunnar
Þór Jóhannesson hjá Gólfefnavali.
Umhverfisþátturinn
Gólfefnaval flytur inn viðhalds-
vörur fyrir allar gerðir parkets
frá Bona í Svíþjóð. „Í dag er Bona
fyrirtækið einn stærsti framleið-
andi umhverfisvænna viðhald-
sefna fyrir parket í heimi,“ segir
Gunnar Þór. Fólk er betur upplýst
í dag um hvað sé gott fyrir það og
nánasta umhverfi.
Metum gólfið fyrir fólk
Í samvinnu við Iðjuna fræðslu-
setur og Félag íslenskra parket-
manna hefur Gólfefnaval boðið
upp á fjölda námskeiða fyrir fag-
menn. „Við bjóðum fólki að starfs-
menn Gólfefnavals komi í fyrir-
tæki og heimahús, þar metum
við ástand parketsins og leggjum
síðan til hvað hægt sé að gera og
hvað sé hagkvæmast að nota á
parketið,“ segir Gunnar Þór.
Í 90% tilfella eru þau parket sem
seld hafa verið á Íslandi undan-
farin 20 ár slípanleg tvisvar til
þrisvar sinnum. Því er upplagt að
skoða hvort ekki sé hægt að slípa
upp gamla parketið og gera það
sem nýtt. „Það er mun ódýrara að
endurslípa parketið en kaupa nýtt
parket,“ segir Gunnar Þór.
Gólfefnaval er fjölskyldufyrir-
tæki sem hefur verið starfrækt
frá árinu 1998 og segir Gunnar
að vörur frá Bona séu sífellt að
verða stærri þáttur í verslun fyrir-
tækisins.
Bona ræstingarvörur fyrir
lökkuð parket fást í Hagkaupum
Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni
og í Smáralind. Einir parketþjón-
usta á Akureyri sími 821 3923
selur þær einnig og þær fást enn-
fremur í Shell skálanum í Hvera-
gerði, segir Gunnar Þór að lokum.
Gamalt olíuborið eða
lakkað parket verður
sem nýtt fyrir jólin!
KYNNING