Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 58
42 heilsa Helgin 9.-11. nóvember 2012
Sund Brynjólfur heldur námSkeið fyrir
Græðismyrsl
Hefur reynst kærkomin hjálp við ýmsum
húðvandamálum, s.s. á bruna, sár, ör, ýmis
útbrot, þurrkbletti, gyllinæð o.ß. Inniheldur
græðandi vallhumal, rauðsm‡ra, kamillu o.ß.
Fótasalvi
Mýkjandi á harða og sprungna hæla og þurra
húð á fótleggjum. Róandi á þreytuverk og
pirring í fótum. Reynist vel á tásvepp.
Inniheldur hvšnn, r—smar’n, engifer og ß.
Urtasmið jan
Sóla
lífræn vottuð vara
Fæst í helstu
náttúruvöruverslunum
Glæsileg netverslun
www.urtasmidjan.is
KAUPTU FJÓRAR
FÁÐU SEX
1000 IU
2000 IU
FLJÓTANDI
TUGGUTÖFLUR
(HENTA BÖRNUM)
D-vítamínskortur er einn algengasti og alvarlegasti vítamínskorturinn
hjá Íslendingum á meðan sífellt er að koma betur í ljós hve mikilvægt
það er fyrir starfsemi líkamans.
www.nowfoods.is
VÍTAMÍND
Hámarks upptaka GMP vottað
Líkamsrækt í laug er frábær valkostur fyrir flesta og hægt er að fá kraftmikla þjálfun í mótstöðu
vatnsins. Ekki eru allir sem að geta nýtt sér þá hollu og góðu hreyfingu sem sundið býður upp á
en til er margt fullorðið fólk sem ekki kann að synda. Margir eru einnig hræddir við vatn. Sund-
kennarinn Brynjólfur Björnsson býður upp á námskeið fyrir fullorðna sem vilja læra sundtökin í
rólegheitum, komast yfir hræðsluna og finna fyrir öryggi í lauginni á sínum eigin hraða.
m argir fullorðnir fara á mis við þá frábæru hreyfingu sem sund býður upp á, einfaldlega vegna hræðslu,“ segir sundþjálfarinn Brynj-
ólfur Björnsson. Hann býður upp á námskeið ætlað
vatnshræddu og/eða lítt syndu fólki.
Brynjólfur segir margvíslegar ástæður liggja að baki
því að fólk kann ekki að synda. „Margir náðu aldrei
almennilegum tökum á skólasundinu og sumir eiga
slæma reynslu að baki, jafnvel verið nær drukknun.
Hingað koma líka margir innflytjendur sem ekki nutu
sundkennslu í æsku og vilja læra.“ Hann segir að margir
skammist sín fyrir það að kunna ekki að synda og forð-
ist því að fara í laugarnar.
Slíkt sé miður í því sund hafi ekki aðeins góð áhrif á
líkamlega heilsu heldur hefur hreyfing í vatni einnig
góð áhrif á andlega líðan.
„Vatnið hefur svo góð áhrif á fólk líkamlega og and-
lega. Með hreyfingu í vatni tekur þú á öllum mögu-
legum vöðvum líkamans. Síðan er svo lítil slysahætta í
sundinu í samanburði við aðrar íþróttir.“
Námskeiðin eru nokkur yfir vetrartímann og eru
í Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg á laugardags-
morgnum. Tímarnir eru klukkan átta þegar fáir eru í
lauginni.
„Það er frábært að vera í Sundhöllinni á þessum tíma
því þá eru mjög fáir í sundi og því mjög gott næði til
þess að æfa sig. Mörgum finnst það betra.“
Skráning á námskeiðið er í fullum gangi og næsta
námskeið byrjar á morgun, laugardag. Fyrir áhugasama
bendir Brynjólfur á vefsíðuna syndaselur.com.
Margir skammast sín
og forðast sundstaðina
Á námskeiði Brynjólfs er byrjað að vinna með flot og slökun í vatninu. Að hans sögn lærir viðkomandi þannig að upplifa öryggi
og vellíðan í vatninu. Eftir það er haldið áfram að byggja ofan á, á þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Ljósmynd/Hari
Margir
fullorðn
ir eru
ósyndir.
Brynjólfur
sund
kennari
er með
nám
skeið fyrir
vatns
hrætt og
ósynt
fólk.
Fimm holl fæðutvíeyki
1. Paprika og spínat eru hvort um sig
uppfull af vítamínum: Með því að
neyta þess saman getur C–vítamín-
rík paprikan hjálpað líkamanum við
upptöku járns úr spínatinu.
2. Grænt te með sítrónu: Með því að
setja ögn af sítrónusafa aukast
heilnæm áhrif tesins á frumur
líkamans.
3. Lárpera og tómatar: Tómatar eru
heilnæmir þeir eru ríkir af andox-
unarefninu lycopene. Rannsóknir
sína að lycopene getur minnkað
líkurnar á hjartasjúkdómum og
krabbameini í þvagblöðru, maga
og ristli. Með inntöku lárperunnar
sem er rík af hollum fitusýrum,
eykur þú upptöku andoxunar-
efnisins og fjórfaldar þar með áhrif
þess.
4. Epli og dökkt súkkulaði: Þetta
tvíeyki er ekki bara bragðgott,
heldur getur það minnkað líkurnar
á hjartasjúkdómum með því að
bæta blóðflæði og veita vörn gegn
blóðtappa.
5. Bananar og jógúrt eru frábær
blanda eftir erfiðar æfingar. Saman
eykur þetta inntöku glúkósa og
amínósýra til vöðvanna. Það
minnkar líkur á harðsperrum og
styrkir vöðvafrumurnar.