Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 62
46 bílar Helgin 9.-11. nóvember 2012
MINNI
LOFTMÓTSTAÐA
dregur úr eldsneytiskostnaði.
Skíðabogar, farangursbox og
skraut auka loftmótstöðuna.
Arion banki býður nú kaupleigu og bílalán til að fjármagna
bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu njóta hagstæðra
kjara og geta sparað sér töluverða fjármuni.
ÁRSAÐILD AÐ FÍB FYLGIR ÖLLUM SAMNINGUM
Á arionbanki.is finnur þú reiknivél sem sýnir með einföldum
hætti muninn á þeim valkostum sem í boði eru.
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
Vönduð amerísk heilsársdekk
- stærðir 31- 44 tommur
- slitsterk
- neglanleg
- má míkróskera
- frábært veggrip
Gott verð!
fyrir flestar stærðir jeppa og jepplinga
Skjót og góð
þjónusta!
Dekkjaverkstæði á staðnum.
Bjóðum alla almenna dekkjaþjónustu.
2012-10 Dekk 100x100mm.indd 1 23.10.2012 14:33:00
Andlitslyfting Kia Sorento jeppans
Nýr Kia Sorento er mættur til leiks og verður frumsýndur hjá Öskju á morgun, laugar-
daginn 10. nóvember. Kia Sorento hefur breyst talsvert í útliti og hönnun en ekki er
um kynslóðaskipti að ræða heldur andlitslyftingu. Jeppinn skartar nýjum framenda
þar sem stuðari, grill og LED-ljós
gefa honum voldugan svip. Þá er
afturhluti bílsins með endurhönn-
uðum ljósum. Innanrýmið er mikið
breytt, ekki síst mælaborðið.
„Jeppinn er með nýjum undir-
vagni sem veitir betri hljóðeinangr-
un og fjöðrunar- og bremsubúnaður
hefur verið bættur. Kia Sorento
verður í boði með 2,2 lítra dísilvél
sem er mjög öflug og skilar 197
hestöflum og togið er 436 NM.“
Sorento verður boðinn í þremur útfærslum og er verðið frá 7.190.777 krónum.
Sýningin verður í Öskju á Krókhálsi 11 klukkan 12-16.
ReynsluakstuR lexus Rx HybRid
l oksins skil ég hvers vegna fólk kaupir sér dýra bíla. Það er eitthvað við það að setjast
upp í lúxuskerru og líða um göturn-
ar. Mér leið eins og ég væri komin
til himna þegar ég fékk að reynslu-
aka nýjum Lexus RX Hybrid á dögunum – ég verð
þó að geta þess að fjölskyldubíllinn sem ég ek á dags
daglega er sjö ára beinskiptur sjö manna Volkswagen
Sharan. Sem er fínn fyrir sinn hatt – en ekkert á við
drottningarbílinn.
Ég skrifa og segi drottningarbílinn, því mér leið
eins og drottningu – slík var upplifunin því Lexusinn
gerir allt fyrir mann. Þegar sest er upp í bílinn og
beltið spennt færist sætið að stýrinu og stýrið færist
niður – í sömu stellingu og sætið og stýr-
ið voru þegar drepið var á bílnum. Hægt
er að velja þrjár stillingar fyrir sætin og
þannig getur hver og einn ökumaður ýtt
á einn takka og fengið sína eigin still-
ingu fyrirhafnarlaust. Það er ekki ama-
legt í fjölskyldum þar sem nærri þrjátíu
sentimetra hæðarmunur er á hjónum
(og þar af leiðandi ökumönnum).
Þegar ég settist fyrst upp í bílinn tók
ég eftir því að engin bakkmyndavél var
í honum (svo sem allt í lagi því ég er svo
flink að bakka). En um leið og ég setti
sjálfskiptinguna í R - viti menn: birtist ekki mynd í
baksýnisspeglinum. Ansi hreint mikil snilld – því í
öðrum bílum sem ég hef prófað með bakkmyndavél
er ég oft í vafa um hvort ég eigi að horfa í baksýnis-
spegil inn eða á skjáinn á mæla-
borðinu sem sýnir myndir úr bakk-
myndavélinni. Í þessum bíl get ég
gert hvort tveggja í einu.
Bíllinn er svo sannarlega
fagur og rennilegur. Yfir honum er
ákveðinn klassi. Hann er breiður og því mjög rúmgóð-
ur, jafnt fram í sem aftur í. Hann er mjúkur og þægi-
legur í akstri, er flokkaður sem sportjeppi og hentar
því vel við íslenskar aðstæður jafnt innanbæjar sem á
vegum úti þótt hann færi sjálfsagt engin Fjallabök.
Lexus RX Hybrid er – eins og nafnið gefur til kynna
– einn af þessum nýju „hybrid“ bílum sem nýta sér
bensín og rafmagn til að knýja vélina. Fyrir vikið
er hann talsvert sparneytnari en eldri tegundir af
sportjeppum og eyðir aðeins 6,3 lítrum af
bensíni á hverja 100 kílómetra í blönduð-
um akstri. Hann drepur á vélinni á ljósum
og tekur af stað á rafmagni. Því verður
ökumaður vart var við er hann vippar sér
sjálfur aftur í gang.
Börnunum fannst hann ótrúlega flottur
– jafnt þeim yngstu sem unglingunum.
Sex ára dótturinni fannst mesta sportið í
því að fá að ýta á takkann á skotthleranum
– þannig lokast skottið hægt og örugg-
lega. Yngsta kútnum fannst bakkmynda-
vélin „mest kúl“ en unglingarnir voru
alveg að fíla hljómflutningsgræjurnar. Mikið ósköp
þótti okkur öllum súrt að þurfa að skila honum aftur.
Verðið er hins vegar rúmar tólf milljónir og því ekki á
allra færi.
Leið eins og drottn-
ingu á lúxuskerru
Mér leið
eins og
drottn-
ingu – slík
var upp-
lifunin því
Lexusinn
gerir
allt fyrir
mann.
Plúsar
+ Fjórhjóladrifinn
+ Gerir allt fyrir mann
+ Rúmgóður
+ Neyslugrannur fyrir
sportjeppa
Mínusar
÷ Verð (12 milljónir)
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is