Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 75
Upprisa nornar
Svörtu sunnudagarnir í Bíó Paradís fara vel af stað undir
styrkri dagskrárstjórn þeirra Hugleiks Dagssonar, Sigurjóns
Kjartanssonar og Sjón. Þeir byrjuðu með stæl í síðustu viku
með Dawn of the Dead og nú má jafnvel segja að enn betra
taki við en á sunnudagskvöld verður Black Sunday sýnd.
Norn í hefndarhug rís úr gröf sinni með það að markmiði
að taka yfir líkama undurfagurrar stúlku sem er afkomandi
nornarinnar. Nornin nýtur stuðnings dyggs en djöfullegs
þjóns síns en aðeins bróðir stúlkunnar og myndarlegur
læknir standa í vegi hennar.
Ítalski hryllingsmeistarinn Mario Bava þreytti frumraun
sína með Black Sunday árið 1960 en hann nýtur enn þann
dag í dag aðdáunar kappa eins og Quentin Tarantino, Tim
Burton og Martin Scorcese, ekki síst fyrir sjónrænan stíl
sinn. Sýningin á Black Sunday hefst klukkan 20.
Leyfðu okkur að telja
Komdu með dósir og flöskur í tæknivæddar
móttökustöðvar Endurvinnslunnar
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
22
36
4
ÁL-
DÓSIR
GLER-
FLÖSKUR
PLAST-
FLÖSKUR
Þú getur komið með heilar drykkjarumbúðir í tæknivæddar
móttökustöðvar Endurvinnslunnar að Dalvegi 28 og í Knarrarvogi 4
án þess að þurfa að telja eða flokka umbúðirnar. Þannig sparar
þú þér tíma og fyrirhöfn. Beyglaðar drykkjarmbúðir þarf að telja
og flokka áður.
Þann 1. nóvember lokar móttaka skilagjaldskyldra drykkjar-
umbúða hjá Sorpu Sævarhöfða og Dalvegi.
Opnum nýja tæknivædda móttökustöð í Hraunbæ í desember í samstarfi við Skátana
Velkomin(n) í nýja móttökustöð okkar að Dalvegi 28 Kópavogi
Langholtsvegur 126 - 104 Reykjavík - Sími 553 3450 - www.spilavinir.is
Fyrsta spilið. Einfalt litalottó.
Fyrsta ólsen ólsen spilið.
Vertu fyrsti apinn upp að bananatrénu
og passaðu þig á bananahýðinu.
Frábært systkinaspil.
Safnaðu fuglum en passaðu þig á köttinum.
Skemmtilegur leikur sem þjálfar litina.
Frumsýndar
Nýjasta Disney-teiknimyndin, Wreck-it Ralph, byrjar í
bíó í dag, föstudag. Myndin hefur notið mikilla vinsælda
í Bandaríkjunum og fór beint á topp aðsóknarlistans
eftir frumsýningarhelgina.
Myndin gerist í heimi tölvuleikja og aðalpersónur
hennar eru þekktar persónur úr vinsælum tölvuleikjum.
Meðal þeirra sem láta sjá sig í myndinni eru Maríó,
drekinn Bowser, Packman-draugarnir og fleiri.
Aðalpersónan, Ralph, situr uppi með það hlutskipti að
vera „vondi kallinn“ í tölvuleiknum Fix-it Felix jr þar sem
honum er gert að rústa öllu því sem ljúflingurinn Felix
og reyna að byggja upp. Ralph þráir að fá að vera góði
gæinn í leiknum og grípur til sinna ráða.
Ralph bætir ráð sitt
bíó 59
Græna ljósið frumsýnir spennumyndina Shadow Dancer eftir leikstjórann
James Marsh (Project Nim, Man on Wire). Myndin gerist í Belfast á Írlandi
árið 1990. Andrea Riseborough leikur Colette McVeigh, virkan meðlim í
Írska lýðveldishernum sem er handtekin og felst á að gerast njósnari fyrir
bresku leyniþjónustuna MI5 til þess að tryggja velferð sonar síns.
Clive Owen leikur Mac, leyniþjónustumanninn, sem fær hana til að svíkja
hugsjónir sínar með gagnnjósnunum.
Þegar félagar Colette í IRA fara að gruna hana um græsku þurfa hún og
Mac að grípa til róttækra örþrifaráða áður en það er um seinan.
IRA-kona í klemmu
Mac og Colette eiga í vök að verjast þegar félagar í IRA þrengja hring-
inn utan um Colette.
Helgin 9.-11. nóvember 2012