Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Side 76

Fréttatíminn - 09.11.2012, Side 76
60 bækur Helgin 9.-11. nóvember 2012 Geymt en ekki gleymt Sumarið 1962 hélt dr. Kristján Eldjárn dagbók um „Vínlandsför“ sína. Hér birtist einstök ferðasaga hans í fyrsta sinn, ásamt fjölda skemmtilegra ljósmynda úr leiðangrinum. K R I S TJ Á N E L DJ Á R N / V Í N L A N D S DAG B Ó K Þ etta var alvöru alþýðuhetja, hún var bæði gull og grjót. Saga hennar er ótrúleg og ég lít svo á að hún sé fyrst og fremst saga samfélags á miklum umbrota- og róstutímum.“ Þetta segir Eyrún Inga- dóttir, rithöfundur og sagnfræðingur, en hún hefur gefið út sögulega skáldsögu byggða á heimildum um Þórdísi Símonardóttur, ljósmóður um aldamótin 1900. Heimildunum safnaði hún saman á tuttugu árum en hún rakst á fyrstu heimildirnar við gerð BA ritgerðar- innar sinnar. Dóttirin nefnd í höfuð Þórdísar Eyrún Ingadóttir er fædd á Hvammstanga 1967 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugar- vatni 1987. Síðar lauk hún BA prófi í sagnfræði, eða árið 1993. Hún er ekki ókunn ritstörfum því að hún ritaði sögu Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1992, sem var jafnframt BA verkefni hennar og sögu Húsmæðraskóla Suðurlands, „Að Laugarvatni í ljúfum draumi“. Eyrún skrifaði ævisögu Eyjólfs R. Eyjólfssonar, „Gengið á Brattann“ og var einnig meðritstýra bókarinnar „Kon- ur með einn í útvíkkun fá enga samúð“ frá árinu 2002. „Ég var að leita heimilda um Sigríði í Brattholti, okk- ar fyrsta náttúruverndarsinna, og fór við það í gegnum dómabækur Árnessýslu. Þar tók ég eftir því að Þórdís skaut upp kollinum með reglulegu millibili en hún skildi til að mynda við manninn sinn 1908, sem á þess- um tíma var afskaplega fáheyrt og árið 1911 var hún kærð fyrir meiðyrði. Í dómsorðinu fór hún mun verri orðum um kærandann og kallaði hann tvöfalt verri nöfnum en hún hafði upphaflega gert,“ segir Eyrún og hlær. „Hún var alveg ótrúlegur nagli og áhrifamenn í samfélaginu á Eyrarbakka reyndu hvað þeir gátu að flæma hana burt og hún synti alla tíð á móti straumn- um. Hún barðist við ríkjandi kerfi og krafðist þess að ljósmæður fengju bættan aðbúnað og hærri laun.“ Eyrún segir að Þórdís hafi haft mikil áhrif á sam- félagið sitt og í henni hafi búið ótrúlegur kraftur og þrautseigja. Þetta hafi verið eitthvað sem hún vildi færa dóttur sinni í vöggugjöf og því nefndi hún dóttur sína eftir Þórdísi. „Ég var alveg heilluð og ég man eftir því að hafa horft í augu dóttur minnar nýfæddrar og bara vitað að hún þyrfti að heita Þórdís. Ég hef aldrei séð eftir því.“ Rekin úr kvenfélagi Eyrún segir að saga Þórdísar endurspegli tíðarandann og sé heimild um líf þess fólks sem ekki flutti vestur um haf. „Tvö systkina Þórdísar fóru vestur um haf og þetta er því saga þeirra sem eftir voru. Á Eyrarbakka var til að mynda mikill sollur og drykkja. Þórdís stofnaði stúku og reyndi þannig að hafa góða áhrif á samfélagið sitt. Hún barðist, líkt og áður sagði, fyrir bættum aðbúnaði og kjörum ljósmæðra, og það gekk á ýmsu á ferli hennar.“ Eyrún segir Þórdísi hafa misst konu og barn og það hafi fengið mikið á hana. Hún hafi verið þreytt sökum anna í fæðingunni, og dauðinn rakinn til þess. Fyrir þetta var hún kærð til landlæknis. Þó það sé nokkuð ljóst í heimildunum að hún hefði aldrei getað komið í veg fyrir dauðsföllin. „Það er í raun ótrúlegt hversu seig hún var, þessi kona, miðað allt mótlætið sem jaðr- ar hreinlega við einelti, og mannvonsku.“ Þórdís var rekin úr kvenfélaginu á staðnum, er hún mótmælti því að það gengi á bak eigin reglna og gæfi fé til uppbygg- ingar á spítalanum, það ætti að fara beint til einstak- linga. „Hún vildi ekki gefa fé í steinsteypu. Það kom síðar á daginn að það voru mikil mistök. En deilurnar um spítalann voru mjög hatrammar. Haldin var hátíð vegna þessa og Þórdís leysti hana upp með mótmæl- um, eftir það var hún rekin úr kvenfélaginu. Svona gekk hún langt í öllu sem hún tók sér fyrir hendur,“ segir Eyrún. Eyrún fléttar bókina saman með heimildunum og dregur þannig persónur og atburði fortíðarinnar út úr skjalasöfnum inn í heim skáldsögunnar. „Ég var með þessa sögu á bak við eyrað í 20 ár. Sagnfræðingurinn í mér og skáldið tókust lengi á um framkvæmdina. En hún hefur nú loks litið dagsins ljós, svo ég get farið að einbeita mér að öðru,“ segir Eyrún og hlær.  Ljósmóðirin Þórdís símonardóttir Saga konu sem synti á móti straumnum Þórdís Símonardóttir var ljósmóðir á Eyrarbakka á umbrotaárunum fyrir og eftir aldamótin 1900. Hún barðist gegn kúgun valdamanna sem beittu öllum ráðum til að beygja hana niður en þrátt fyrir það gafst hún aldrei upp. Sagnfræðingurinn Eyrún Ingadóttir hefur safnað heimildum um Þórdísi í 20 ár og hefur nú gefið út sögulega skáldsögu byggða á Þórdísi sem hefur verið henni mjög hugleikin allan þennan tíma. Svo hugleikin að hún nefndi dóttur sína eftir henni. Eyrún Ingadóttir byggir bókina á heimildum af ýmsu tagi um ævi og störf Þórdísar Símonardóttur alþýðukonu. Eyrún Inga- dóttir sendir frá sér skáld- sögu byggða á heimildum um ljósmóður um aldamótin 1900 sem varð fyrir miklu mótlæti á umbrota- tímum. María Lilja Þrastardóttir marialilja@ frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.