Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 2
www.fronkex.is kemur við sögu á hverjum degi R úmlega helmingur íslenskra ung-menna á aldrinum 15-19 ára stundar vinnu og er það hærra hlutfall en á nokkru öðru Norðurlandanna. Ársæll Guðmundsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði, segir þessar niðurstöður ekki koma skólafólki á óvart. „Ég hef áður gagn- rýnt það hversu stutt skólaárið er í fram- haldsskólum og að nemendur nýti sér það og fá sér vinnu á sumrin. Þegar þeir eru farnir að vinna eignast þeir peninga og til verða alls kyns gerviþarfir. Ákveðinn vítahringur fer af stað sem síðan vindur upp á sig og úr verður ófremdarástand sem við þekkjum af því mikla brottfalli sem hér er úr framhaldsskól- um og skólinn verður ekki lengur númer eitt,“ segir Ársæll. Hann bendir á að hvor önn sé einungis rúmlega fjórtán vikur auk prófa- tíma. „Nemendur hafa haft mánuð í kringum jól, tíu daga í kringum páska, og svo frá miðjum maí til loka ágúst til að vinna sér inn peninga til þess að reka bíl, komast í utanlandsferðir og eign- ast iPhone, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir hann. Ársæll segir þetta samt sem áður ekki koma á óvart því samfélagið búi til þessar aðstæður. „Atvinnulífið treystir á þetta ódýra vinnuafl. Áður þurfti fólk til að sinna bústörfum á vorin og haustin en nú þarf ferðaþjónustan vinnuafl og því vill atvinnu- lífið ekki breyta þessu. Það er mjög slæmt að atvinnugreinarnar treysti á ódýrt vinnuafl í unga fólkinu þegar við, sem þjóð, eigum að vera að mennta það,“ segir hann. Ársæll er talsmaður þess að brautskrá nemendur yngri úr framhaldsskólum með því að lengja viðveru þeirra. Hann vill fjölga kennsludögum og afnema próftímabil. „Þannig geta nemendur og kennarar verið mun lengur saman við að læra,“ segir hann. „Þessi mikla vinna ungmenna er helsta ástæða brottfallsins. Það er ekki kvíðinn þótt hann sé slæmur heldur er hér mjög óhag- stætt uppeldisumhverfi fyrir ungt fólk,“ segir Ársæll. „Það breytist ekki fyrr en við tökum á þessum vanda og viðurkennum rétt unga fólksins til að vera í friði í námi.“ Hann bendir á að hér á landi sé lagt á herðar fjölskyldna unga fólksins að greiða fyrir menntun þeirra ólíkt því sem þekkist í löndunum í kringum okkur. Því þurfi margir nemendur að vinna sér inn fyrir þeim kostn- aði sem standa þarf straum af við nám, svo sem efniskaupum og almennu uppihaldi. „Ég bendi á að í nýju framhaldsskólalög- unum frá 2008 stendur að ríkið skuli standa straum af kostnaði vegna efniskaupa. Gildis- töku þess ákvæðis hefur sífellt verið frestað og átti það að taka gildi um mitt næsta ár. Mér sýnist hins vegar í fjárlagafrumvarpinu að gert sé ráð fyrir því að því verði áfram frestað. Það er því allt sem stuðlar að því að við hrekjum unga fólkið úr námi,“ segir Ársæll. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  SkólaR Mikil vinna ungMenna Með náMi Unga fólkið fái frið til að mennta sig Atvinnulífið treystir á ódýrt vinnuafl ungmenna enda vinna fleiri ungmenni hér en á hinum Norðurlöndunum. Skólameistari segir mikla vinnu ungmenna helstu ástæðu hins mikla brottfalls sem hér er úr námi og að hér sé óhagstætt uppeldisumhverfi fyrir ungt fólk. Við verðum að taka á vandanum og viðurkenna rétt unga fólksins til að vera friði í námi. Rúmlega helmingur íslenskra ungmenna á aldrinum 15-19 ára stundar vinnu og er það hærra hlutfall en á nokkru öðru Norður- landanna. Ljósmynd/Hari Ársæll Guð- mundsson skólameistari hefur áhyggjur af of mikilli vinnu ung- menna.  einkenniSfatnaðuR Svona eiga SýSluMenn að veRa Sýslumönnum ber að nota stólur Samkvæmt nýrri reglugerð um einkennisfatnað, skilríki og merki sýslumanna og löglærðra fulltrúa þeirra þá ber þeim að nota stólu við ákveðnar athafnir í störfum sínum, til dæm- is hjónavígslur, framkvæmdir aðfarargerða utan skrifstofu, við uppboð utan skrifstofu sýslumanns, fyrir dómi þar sem sýslumaður mætir stöðu sinnar vegna og þegar nauðsynlegt eða æskilegt þykir við önnur verkefni utan starfsstöðvar þar sem sýslumaður eða löglærður fulltrúi hans kemur fram stöðu sinnar vegna. Í reglugerðinni stendur „Stóla skal vera úr svörtu ullarefni, um 140 sm að lengd og 14 sm breið. Innra byrði skal vera úr stömu, svörtu efni. Hvor endi skal vera með 130 gráðu út- stætt horn fyrir miðju. Tveir samhliða gylltir borðar, 1,1 sm á breidd með 1,5 sm bili skulu þvera báða enda stólunnar.“ Jónas Guðmundsson, sýslumaður á Bolungarvík, segir að praktískar ástæður séu fyrir því að æskilegt sé að stóla sé notuð við slík tækifæri og nauðsynlegt sé að fólk sjái að sýslumaður eða fulltrúi hans sé að framkvæma athöfnina en ekki bara einhver. „Menn hafa gert það að vandamáli og þess vegna var þörf á þessu. Búið er að samþykkja þetta hjá sýslu- mönnum. Það er ekki skylda að menn séu með stóluna inni á skrifstofunni en mér finnst það eiga við undir ákveðnum kringumstæðum þegar það þarf að vera alveg klárt að menn séu fulltrúar sýslumanns,“ segir Jónas. Ásgeir Eiríksson, löglærður fulltrúi hjá embætti sýslu- mannsins í Reykjavík, segir að málið hafi ekki verið kynnt fyrir þeim og að hann geti ekki rætt um málið. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Vilja leikskólapláss strax eftir fæðingarorlof Þingflokkur Vinstri grænna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um unnið verði að því að sveitarfélögin geti boðið leik- skólapláss um leið og fæðingarorlofi lýkur. Miðað verði við að þegar fæðingarorlofið hefur verið lengt í 12 mánuði, árið 2016, verði sveitarfélög um landið reiðubúin að veita þjónustuna. Svandís Svavarsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Vinstri græn leggja til að Alþingi feli mennta- og menningarmálaráðherra, í samráði við innanríkisráðherra, að skipa nefnd með þátttöku sveitarfélaganna, sérfræðinga, hagsmunaaðila og stjórnmálaflokka er geri tillögu að áætlun um hvernig sveitar- félögin geta komið þessu í framkvæmd. Í greinargerð með tillögunni segir að þar sem leikskólar sveitarfélaganna taki almennt ekki við börnum fyrr en þau eru 18-24 mánaða sé langur tími sem foreldrar þurfa að brúa frá því fæðingarorlofi lýkur, en orlofið er nú 9 mánuðir. - eh Strætóappið í þriðjungi snjallsíma Yfir 40 þúsund manns hafa hlaðið Strætó- appinu í símann sinn sem þýðir að búið er að hala appinu niður í tæplega þriðjung allra snjallsíma á Íslandi. „Þessar frábæru viðtökur á appinu sýna okkur hvað það er mikilvægt að fyrirtæki eins og Strætó sé alltaf með puttann á púlsinum með hvað er að gerast í samfélaginu,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdarstjóri Strætó bs. Appið var hannað til þess að auðvelda farþegum Strætó að komast leiðar sinnar, finna bestu og stystu leiðina á áfangastað, sjá staðsetningu vagna í rauntíma, leita eftir brottförum vagna frá ákveðnum bið- stöðvum í rauntíma og fleira. -eh Stemning í Laugardal Karlalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Kýpur í undankeppni HM 2014 á Laugardals- velli í kvöld, föstudagskvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 en nokkuð er síðan allir miðar seldust upp. Þróttarar verða með upphitun fyrir leikinn í Laugardalnum en klukkan 16 verður opnaður sportbar í anddyri Laugar- dalshallar. Sérfræðingar í leikgreiningu munu stýra töflufundi um klukkan 17.30 og félagsskapurinn Áfram Ísland verður með sölubás þar sem hægt verður að skreyta sig fyrir leikinn. Þeir sem ekki eru svo heppnir að eiga miða geta horft á leikinn á risatjaldi í félagsheimili Þróttar. Sýslumenn með nýju stólurnar sínar. Hagnaður af rekstri Ölstofunnar Sex milljóna króna hagnaður var af rekstri Ölstofu Kormáks og Skjaldar á síðasta ári. Viðskipta- blaðið greinir frá því að þetta sé aðeins minni hagnaður en árið 2011 þegar reksturinn skilaði níu milljóna króna hagnaði og arðgreiðslur námu þremur milljónum króna. Arðgreiðslur árið 2012 námu 4,2 milljónum króna. Ölstofan er í eigu Skjaldar Sigur- jónssonar og Kormáks Geirharðssonar. Eignir félags þeirra nema um 48 milljónum króna og eigið fé er jákvætt um tæpar 24 milljónir. 2 fréttir Helgin 11.-13. október 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.