Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 28
K aren Kjartansdóttir hefur starfað á ýmsum fjölmiðlum síðustu níu árin, án þess þó að flytja sig nokkru sinni úr Skafta- hlíðinni þar sem 365 miðlar halda til með alla sína fjölmiðla. Hún byrjaði á DV þegar Illugi Jökulsson og Mik- ael Torfason tóku við ritstjórn blaðs- ins. Hún fór síðan yfir á fréttastöðina NFS, þar næst á Fréttablaðið og síðan á Stöð 2 þar sem hún var vara- fréttastjóri þangað til hún sagði upp. Karen tók við starfi upplýsinga- fulltrúa LÍU í vikunni og það má því segja að hún sé komin hinum megin við borðið þar sem blaðamenn og upplýsingafulltrúar eiga oftar en ekki í sérkennilegum samskiptum og eltingaleikjum. „Ég var búin að vera í þessu í um það bil áratug og fannst bara tími til kominn að leita á ný mið,“ segir Karen þar sem hún er að koma sér fyrir á skrifstofu LÍÚ. „Það var kom- inn smá hugur í mig og mig langaði ekkert endilega að halda áfram á fjölmiðlum, heldur kannski vinna við eitthvað þessu tengt.“ Og sjávarútvegurinn varð fyrir valinu og Karen segir að sér finnist hann spennandi í allri sinni fjöl- breytni. „Nýsköpunin, öll tæknin og svo margt í uppbyggingunni í tengslum við þetta er mjög spenn- andi,“ segir Karen sem er þar fyrir utan ákafur aðdáandi makrílsins. „Ég er brjálaður makrílsaðdáandi. Ég held að það liggi við að ég borði eina dós á dag. Makríllinn er besti skyndibitinn,“ segir hún og hlær. „Síðan get ég líka spilað því út að pabbi hafi verið sjómaður á Haraldi Böðvarssyni.“ Þannig að nýi upp- lýsingafulltrúinn er ekki í neinum vandræðum með að tengja sig við nýja viðfangsefnið. Hrollvekjandi skammstöfun Karen líst vel á vistaskiptin og mót- tökurnar hjá LÍÚ hafa verið góðar. „Þetta virkar alveg sérlega elsku- legt fólk. Mér líst mjög vel á hann Úr fréttum í fiskinn Karen Kjartansdóttir hætti sem varafréttastjóri Stöðvar 2 í byrjun vikunnar og hefur þegar hafið störf sem nýr upp- lýsingafulltrúi LÍÚ. Hún segist hafa viljað breyta til eftir níu ára starf á hinum ýmsu fjöl- miðlum 365 miðla. Það hafi þó verið sárt að kveðja og tilfinn- ingin sé svolítið eins og hún sé að skilja við vinnuveitandann. Hún hefur ýmsar tengingar við sjávarútveginn og ekki síst þá að hún er vitlaus í makríl. Kolbein Árnason, nýja framkvæmda- stjórann, og bara allt fólkið sem ég hef hitt hérna. Margir fá smá hroll þegar þeir heyra þessa skammstöf- un, LÍÚ, og ég skil ekki alveg þessa andúð á íslenskum sjávarútvegi. Þetta er mikilvægasta atvinnugrein- in okkar og þetta ætti ekki að vera svona.“ Karen segir þó að sér hafi brugðið dálítið þegar þetta starf var nefnt við hana. „En ég ákvað svo að láta slag standa. Og það var svosem enginn efi í mér, eftir að ég hugsaði þetta.“ Fréttafólk og upplýsingafulltrúar eigast oft við og hvorugum þykir hinn hópurinn sérlega skemmti- legur. Óttast Karen ekkert að verða leiðinleg þegar hún er komin í stétt sem hún hefur látið fara í taugarnar á sér í tæpan áratug? „Jú, jú. En ég er sem betur fer skemmtileg að eðlisfari,“ segir hún og bætir við að eitt það síðasta sem hún hafi gert áður en hún yfirgaf Stöð 2 hafi verið að bölva því hversu fréttamenn væri leiðinlegir. Að gefnu tilefni. „Þá kallaði Mikael á eftir mér að ég væri strax byrjuð.“ Komin í hitt liðið. „Ég vona að ég muni eiga í góðum samskiptum við gamla kollega. Breytir þetta nokkuð miklu? Þótt maður færi sig um set? Er maður ekki bara alltaf að reyna að vera almennileg manneskja?“ Spyr Karen út í loftið á heimspekilegum nótum. „En það var mjög erfitt og leiðin- legt að kveðja. Það var frekar sárt en maður verður einhvern tíma að fara. Svo bind ég sterkar vonir við að vinnutíminn verði reglulegri,“ segir Karen sem á þrjú börn á aldrinum tíu, fjögurra og tveggja ára. „Þetta hefur samt alveg gengið vel með þessum óreglulega vinnutíma sem fylgir fjölmiðlunum. Það gengur líka alltaf allt ef maður er ekki alltaf tuðandi.“ Saknar ekki sjónvarpsins Nú er kunnara en frá þurfi að segja að fjölmiðlafólk þjáist af þrálátri sjálfhverfu sem ágerist sérstaklega þegar fólk byrjar að vinna í sjón- varpi. Áttu ekki eftir að sakna þess að sjá sjálfa þig og heyra á skjánum. Finnast sjálfið kannski vera að leysast upp? „Nei. Það held ég alveg örugglega ekki. Mér finnst það mjög notaleg til- hugsun. En ég á eftir að sakna hans Breka míns rosalega mikið,“ segir Karen um fréttastjórann og náinn samstarfsmann, Breka Logason. Karen og Mikael Torfason hafa einnig unnið mikið saman í gegnum árin og það voru hann og Illugi Jök- ulsson sem réðu hana fyrst til starfa á fjölmiðlum. Þannig að ætla má að Mikael hafi þótt miður að horfa á eftir Karen til LÍÚ. „Mikael tók þessu eins og sannur karlmaður. Bara eins og hann er. En auðvitað er ekkert gaman að skilja við fólk og mér líður held ég eins og sé búin að vera að standa í skilnaði.“ Starfslok Karenar voru að vonum sett í samhengi við brotthvarf fleira fréttafólks frá 365 í einhverjum vef- miðlanna en hún blæs á allar slíkar kenningar. „Mér finnst alveg undar- legt að vera að tala um ólgu og flótta. Ég veit nú ekki betur en að á fyrstu tveimur árunum mínum hafi ég náð að hafa þrettán ritstjóra. Þá var ólga en mér hefur ekki þótt neitt sérstök ólga eða flótti brostinn á. Þótt að samkeppnisaðilum finnist það. Og þótt ég fari núna eftir áratug þar sem ég hef farið í gegnum súrt og sætt þá finnst mér það ekki til marks um neina ótryggð eða lausung.“ Heltekin af hlaupum Fyrir nokkrum misserum byrjaði Karen að stunda hlaup sér til and- legrar og líkamlegrar hressingar. Hún tók þessa bakteríu mjög bók- staflega og er nú búin að skrifa bók- ina Út að hlaupa, ásamt Elísabetu Margeirsdóttur, veðurfréttakonu á Stöð 2 og reyndum maraþon- hlaupara. Bókina hugsa þær stöllur bæði fyrir þá sem eru að reima á sig hlaupaskóna í fyrsta sinn og einnig þá reyndari. „Ég er af allt öðrum meiði en Elísabet. Ég gerði þetta bara svona til slökunar og til að halda mér í formi þótt mér finnst þetta samt rosalega skemmtilegt. Þannig að ég get hiklaust mælt með hlaupi sem lífsstíl og hvatt fólk til að byrja enda má nýta hlaupið bæði sem hug- leiðslu og líkamsrækt. Þetta gefur manni svo margt og hefur marga kosti.“ Þegar Karen byrjaði að hlaupa segist hún hafa hellt sér út í sportið af krafti. „Vegna þess að ég var bara að reyna að losna við smá aukakíló eftir þriðju meðgönguna.“ Og þar sem hún er sérstaklega hrifin af handbókum hvers konar þá lagðist hún í bandarískar og breskar hlaupa- bækur. „Ég skildi ekkert í því af hverju það var ekki búið að þýða eitt- hvað af þessu og ákvað að gera það sjálf. Ég rak mig strax á að það þyrfti að staðfæra heilmikið og sumt sem mér fannst flott í einni fannst mér ljótt í annarri. Og svo framvegis.“ Niðurstaðan varð því að skrifa svona bók sjálf og þá lá beinast við að fá Elísabetu með sér í lið. „Hún er næringarfræðingur og veit allt um hlaup og hafði allt sem þarf til að gera þetta. Svo nýtti maður bara fjölmiðlareynsluna, safnaði upp- lýsingum og leitaði til sérfræðinga. Ég held þarna hafi orðið til alveg svakalega flott bók þótt ég segi sjálf frá. Ég er að meina það.“ Karen segir það nokkuð mis- jafnt hversu langar vegalengdir hún hleypur hverju sinni. Ætli þetta séu ekki svona frá þremur, tíu og upp í tuttugu kílómetra.“ Og hún kann best við að hlaupa á veturna þannig að nú fer fjörið að byrja ef að líkum lætur. „Mér finnst eiginlega skemmtilegra að hlaupa á veturna. Fyrst þegar ég byrjaði að hlaupa úti var mjög snjóþungur vetur en það var mjög yndislegt. Maður verður bara gíra sig rétt upp og þegar fólk byrjar þá verður það heltekið.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Karen Kjartansdóttir er hætt sem varafréttastjóri Stöðvar 2 og tekin við starfi upplýsingafulltrúa LÍÚ. Hún er spennt fyrir sjávarútveginum og telur sér ekki síst til fram- dráttar í nýja starfinu að hún er sólgin í makríl.Ljósmynd/Hari Mikael tók þessu eins og sannur karlmaður. Bara eins og hann er. Tvífarinn í True Blood Karen þykir sláandi lík leikkonunni Anna Paquin sem hefur gert það gott í sjónvarpsþáttunum True Blood um árabil. Karen hefur fengið að heyra þetta við ýmis tækifæri og þessi líkindi eru upp- spretta alls kyns gríns en Karen er sátt við glensið og segir tvífara sinn í True Blood hafa kallað á jákvæða athygli. „Það er greinilega eitthvað þarna. Hún hefur verið mitt alter-egó og ég hef lifað í gegnum hana,“ segir Karen og hlær. „Þannig getur maður notið þess að vera villtur einhvers staðar.“ Anna Paquin í hlutverki Sookie. 28 viðtal Helgin 11.-13. október 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.