Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 41

Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 41
Heimili & hönnun Helgin 11.-13. október 2013 Þ að er vinsælast núna að láta gera upp gömlu, léttu og nettu sófana með tekk- inu frá sjötta áratugnum,“ segir Erlendur Sigurðsson, bólstrari og einn eigenda GÁ Hús- gagna. Viðskiptavinir sem láta bólstra gamla sófa hjá honum hafa ýmist keypt þá notaða eða fengið gamla sófasettið frá ömmu og afa og segir Erlendur notuð tekkhúsgögn seljast á háu verði á sölusíðum netsins, enda sé eftirspurnin mikil. Það er tilfinning Erlends að það hafi ekki aukist eftir hrun að fólk láti endur- gera gamlar mublur, heldur sé eftir- spurnin svipuð og áður. „Það var mjög vinsælt fyrir hrun að láta endurgera ró- kókóhúsgögn en það er frekar lítið um það í dag. Nú er fólk meira í „sixties-fíl- ing“. Þó skiptir tískan engu máli þegar fólk tengist húsgögnunum tilfinninga- böndum og er að láta endurgera gamla sófasettið frá ömmu og afa.“ Nær öll sófasett er hægt að endur- gera þó mismikil vinna liggi að baki eftir ástandi þeirra. Erlendur segir mikilvægt að grindin sjálf sé í góðu ástandi áður en ráðist sé í bólstrun. Sé fólk að huga að því að láta endurgera mublur er einfaldast að senda mynd til GÁ húsgagna og fá verðtilboð. „Út frá myndinni erum við fljótir að átta okkur á því hversu stórt verkið er og getum þá gefið verðtilboð. Ef auka viðgerðir bæt- ast við vegna einhvers sem ekki sást á myndunum er fólk látið vita af því áður en í þær er ráðist,“ segir Erlendur. Bólstrun á húsgögnum er þó ekki það eina sem starfsfólk GÁ húsgagna fæst við því mestmegnis sinnir fyrir- tækið húsgagnasmíðum fyrir hótel og veitingahús, auk þess að sérsmíða sófa og stóla fyrir heimahús. Í verslun GÁ Húsgagna eru uppstillingar af nýjum sófum, hornsófum og stólum. „Fólk getur þá komið til okkar og við smíðum eftir ákveðnum málum en það er líka hægt að bæta og breyta eins og hentar, eins og til dæmis að hækka bak eða grynnka setur. Viðskiptavinir geta jafn- vel komið sjálfir með sínar hugmyndir að húsgögnum. Það hefur verið gert og komið mjög vel út.” Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is  Tekk NeTTu húsgögNiN frá sjöTTa áraTugNum Gamlir sófar fá framhaldslíf Tekkhúsgögn frá sjötta áratugnum eru mjög vinsæl í dag og margir sem láta gera þau upp og bólstra. Erlendur Sigurðs- son, bólstrari hjá GÁ Húsgögnum, segir tískuna ganga í hringi en fyrir hrun var rókókóstíl- linn vinsælastur. Sumir tengjast mublunum tilfinn- ingaböndum og vilja nota gamla sófasettið frá ömmu og afa og þá eru skipta tískubylgjur ekki máli. Erlendur Sigurðsson bólstrari segir tískuna ekki skipta máli þegar fólk hafi tengst hús- gögnum tilfinningaböndum. Ljósmynd/Hari. Tekksófi frá sjötta áratugnum sem endurgerður var hjá GÁ Húsgögnum. Tekkhúsgögn eru mjög vinsæl og seljast nú á háu verði á sölusíðum netsins. Ljósmynd/GÁ Húsgögn. Sófi fyrir Sófi eftir VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND Skoðið úrvalið á bata.is Vertu vinur á Dömujakki 49.890,- Taska 9.990,- Dömuskór 34.990,- Dömuskór 22.990,- Dömuskór 22.990,- Herraskór 16.690,- Herraskór 19.490,- Herraskór 19.990,- Herraskór 11.990,- Dömuskór 27.790,- Dömuskór 21.990,- Dömuskór 32.990,- Taska 9.990,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.