Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 72

Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 72
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is 3,6 L/100km í bLönduðum akStri C02 útbLáStur aðeinS 94 g Honda CiviC 1.6 dÍSiL kOStar frá kr. 3.840.000 Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn Samkvæmt What Car og Warranty direct hefur Honda verið valin áreiðanlegasti bílaframleiðandinn átta ár í röð. bí ll á m yn d: H on da C ivi c 1 .6 i-d te C e xe cu tiv e. Honda CiviC 1.6 dÍSiL 3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km Utanbæjar akstur Blandaður akstur Innanbæjar akstur CO2 útblástur 94 g/km komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil, með nýrri Earth dreams Technology dísilvél, sem býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts. Umboðsaðilar: bernhard, reykjanesbæ, sími 421 7800 bílver, akranesi, sími 431 1985 Höldur, akureyri, sími 461 6020 bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 www.honda.is Honda CiviC 1.4 BEnSÍn - beinSkiPtur, kOStar frá kr. 3.490.000 Honda CiviC 1.8 BEnSÍn - SJáLfSkiPtur, kOStar frá kr. 3.840.000 Seltirningar í menningargír Menningarhátíð Seltjarnarness er haldin nú um helgina og er fjölbreytt dagskrá í boði fyrir menningarþyrsta bæjarbúa og aðra sem vilja kíkja í heimsókn. Ókeypis er á alla viðburði. Meðal viðburða í dag, föstudag, er þegar eldri borgarar og grunnskóla- nemar vinna saman að graffítilista- verki í undirgöngunum við Eiðistorg. Myndlistarmennirnir Karlotta Blöndal og Hildigunnur Birgisdóttir stjórna verkinu en unnið verður að því milli klukkan 12-14. Af öðrum áhugaverðum dagskrárlið- um á hátíðinni má nefna að Sigtryggur Baldursson og Stjörnuskoðunarfélag bæjarins leiða saman hesta sína, Ari Eldjárn gerir grín að Nesinu og Valdimar Guðmundsson, hljómsveitin Útidúr og sextíu manna kór troða upp saman. Þá sýnir bæjarlistamaðurinn Sigga Heimis afrakstur smiðju sem hún vann með eldri borgurum og grunn- skólanemum. Sú sýning er í Sundlaug Seltjarnarness. Allar upp- lýsingar um dagskrá má finna á seltjarnarnes.is. Sigga Heimis iðnhönn- uður og Ari Eldjárn grínisti eru meðal þeirra sem koma fram á Menn- ingarhátíð Seltjarnar- ness um helgina. Þ etta lítur svakalega vel út, krakkarnir eru frábærir,“ segir Gunnar Helgason leikstjóri. Gunnar var í óða önn að undirbúa frumsýn- ingu Óvita þegar Fréttatíminn náði tali af hon- um um miðja vikuna. Óvitar verða frumsýndir á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu á sunnudag. Óvitar eru sem kunnugt er eftir Guðrúnu Helgadóttur en þeir voru frumsýndir árið 1979. Það var sett upp aftur tíu árum síðar og sáu um 50 þúsund manns verkið í þessum tveimur upp- færslum. Þá voru Óvitar settir upp fyrir norðan árið 2007. Í Óvitum fæðast börnin stór en minnka með aldrinum. Í forgrunni er Guðmundur, átta ára strákur, sem er stundum svolítið einmana. Finnur bekkjarbróðir hans fær að fela sig heima hjá honum og lenda þeir í ýmsum ævin- týrum. Á meðan dauðaleit er gerð að Finni læra drengirnir ýmislegt um lífið, vináttuna og full- orðna fólkið. Stóra spurningin er svo hvort full- orðna fólkið getið lært eitthvað af börnunum? Leikritið er nú sett upp með nýrri tónlist og sönglögum eftir hljómsveitina Moses Hightower. Með helstu hlutverk fara Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdótt- ir, Oddur Júlíusson og Friðrik Friðriksson. Þá tekur fjöldi ungra og upprennandi leikara þátt í uppsetningunni. Aðspurður segir Gunnar að það sé mikill munur á því að leikstýra börnum og fullorðn- um. „Já, þetta er að hluta til kennsla líka. Og svo fær maður aðeins öðruvísi spurningar frá krökkunum. En það er mjög gaman þegar þau finna þegar þeim tekst vel upp. Í gær [þriðju- dag] vorum við með prufusýningu og hópurinn sem var ekki að sýna sat úti í sal. Þau voru svo ánægð að sjá sýninguna smella saman. Gleðin er miklu meiri en hjá reyndum leikurum.“ Nú eru næstum 35 ár frá því Óvitar voru fyrst settir upp. Hvernig finnst þér verkið hafa staðist tímans tönn? „Þetta er verk er sígrænt eins og allt sem Guðrún Helgadóttir skrifar. Þarna höfum við ákveðna erfiðleika inni á heimili drengsins í leikritinu, það hefur voða lítið breyst síðan 1979 með það. Þarna er unglingaveiki, for- eldrar sem vinna of mikið og hugsa meira um að kaupa nýja hluti en að sinna fjölskyldunni. Þetta hefur ótrúlegan samhljóm með okkur í dag.“ Margir kunnir leikarar voru í fyrri uppsetn- ingum á Óvitum. Til að mynda Halldóra Geir- harðsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir og Benedikt Erlingsson. Eigum við eftir að sjá einhverja af krökkunum í þessari uppsetningu slá í gegn í framtíðinni? „Já, hér eru hæfileikaríkir krakkar á ferð. Einhverjir af þeim verða framtíðarleikarar Ís- lands.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  Leikhús Óvitar frumsýndir í ÞjÓðLeikhúsinu á sunnudag Frábærir krakkar í Óvitum Þetta er verk er sígrænt eins og allt sem Guðrún Helgadóttir skrifar. Óvitar, verk Guðrúnar Helgadóttur frá 1979, verður frum- sýnt í Þjóð- leikhúsinu á sunnudag. Leikstjórinn segir verkið eiga fullt erindi við þjóðina í dag. Jóhannes Haukur Jóhannesson og Ágústa Eva Erlendsdóttir eru á meðal þekktra leikara í Óvitum. 72 menning Helgin 11.-13. október 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.