Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 72
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
3,6 L/100km í bLönduðum akStri C02 útbLáStur aðeinS 94 g
Honda CiviC 1.6 dÍSiL kOStar frá kr. 3.840.000
Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn
Samkvæmt What Car og Warranty direct hefur Honda verið
valin áreiðanlegasti bílaframleiðandinn átta ár í röð.
bí
ll á
m
yn
d:
H
on
da
C
ivi
c 1
.6
i-d
te
C
e
xe
cu
tiv
e.
Honda CiviC 1.6 dÍSiL
3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km
Utanbæjar akstur
Blandaður akstur
Innanbæjar akstur
CO2
útblástur
94 g/km
komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil,
með nýrri Earth dreams Technology dísilvél, sem
býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts.
Umboðsaðilar:
bernhard, reykjanesbæ, sími 421 7800
bílver, akranesi, sími 431 1985
Höldur, akureyri, sími 461 6020
bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
www.honda.is
Honda CiviC 1.4 BEnSÍn - beinSkiPtur, kOStar frá kr. 3.490.000
Honda CiviC 1.8 BEnSÍn - SJáLfSkiPtur, kOStar frá kr. 3.840.000
Seltirningar í
menningargír
Menningarhátíð Seltjarnarness er
haldin nú um helgina og er fjölbreytt
dagskrá í boði fyrir menningarþyrsta
bæjarbúa og aðra sem vilja kíkja í
heimsókn. Ókeypis er á alla viðburði.
Meðal viðburða í dag, föstudag, er
þegar eldri borgarar og grunnskóla-
nemar vinna saman að graffítilista-
verki í undirgöngunum við Eiðistorg.
Myndlistarmennirnir Karlotta Blöndal
og Hildigunnur Birgisdóttir stjórna
verkinu en unnið verður að því milli
klukkan 12-14.
Af öðrum áhugaverðum dagskrárlið-
um á hátíðinni má nefna að Sigtryggur
Baldursson og Stjörnuskoðunarfélag
bæjarins leiða saman hesta sína,
Ari Eldjárn gerir grín að Nesinu og
Valdimar Guðmundsson, hljómsveitin
Útidúr og sextíu manna kór troða upp
saman. Þá sýnir bæjarlistamaðurinn
Sigga Heimis afrakstur smiðju sem hún
vann með eldri borgurum og grunn-
skólanemum. Sú sýning er í Sundlaug
Seltjarnarness.
Allar upp-
lýsingar um
dagskrá má
finna á
seltjarnarnes.is.
Sigga Heimis iðnhönn-
uður og Ari Eldjárn
grínisti eru meðal
þeirra sem koma
fram á Menn-
ingarhátíð
Seltjarnar-
ness um
helgina.
Þ etta lítur svakalega vel út, krakkarnir eru frábærir,“ segir Gunnar Helgason leikstjóri.
Gunnar var í óða önn að undirbúa frumsýn-
ingu Óvita þegar Fréttatíminn náði tali af hon-
um um miðja vikuna. Óvitar verða frumsýndir
á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu á sunnudag.
Óvitar eru sem kunnugt er eftir Guðrúnu
Helgadóttur en þeir voru frumsýndir árið 1979.
Það var sett upp aftur tíu árum síðar og sáu um
50 þúsund manns verkið í þessum tveimur upp-
færslum. Þá voru Óvitar settir upp fyrir norðan
árið 2007.
Í Óvitum fæðast börnin stór en minnka með
aldrinum. Í forgrunni er Guðmundur, átta ára
strákur, sem er stundum svolítið einmana.
Finnur bekkjarbróðir hans fær að fela sig
heima hjá honum og lenda þeir í ýmsum ævin-
týrum. Á meðan dauðaleit er gerð að Finni læra
drengirnir ýmislegt um lífið, vináttuna og full-
orðna fólkið. Stóra spurningin er svo hvort full-
orðna fólkið getið lært eitthvað af börnunum?
Leikritið er nú sett upp með nýrri tónlist
og sönglögum eftir hljómsveitina Moses
Hightower. Með helstu hlutverk fara Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdótt-
ir, Oddur Júlíusson og Friðrik Friðriksson. Þá
tekur fjöldi ungra og upprennandi leikara þátt í
uppsetningunni.
Aðspurður segir Gunnar að það sé mikill
munur á því að leikstýra börnum og fullorðn-
um. „Já, þetta er að hluta til kennsla líka. Og
svo fær maður aðeins öðruvísi spurningar frá
krökkunum. En það er mjög gaman þegar þau
finna þegar þeim tekst vel upp. Í gær [þriðju-
dag] vorum við með prufusýningu og hópurinn
sem var ekki að sýna sat úti í sal. Þau voru svo
ánægð að sjá sýninguna smella saman. Gleðin
er miklu meiri en hjá reyndum leikurum.“
Nú eru næstum 35 ár frá því Óvitar voru
fyrst settir upp. Hvernig finnst þér verkið hafa
staðist tímans tönn?
„Þetta er verk er sígrænt eins og allt sem
Guðrún Helgadóttir skrifar. Þarna höfum við
ákveðna erfiðleika inni á heimili drengsins
í leikritinu, það hefur voða lítið breyst síðan
1979 með það. Þarna er unglingaveiki, for-
eldrar sem vinna of mikið og hugsa meira um
að kaupa nýja hluti en að sinna fjölskyldunni.
Þetta hefur ótrúlegan samhljóm með okkur í
dag.“
Margir kunnir leikarar voru í fyrri uppsetn-
ingum á Óvitum. Til að mynda Halldóra Geir-
harðsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir og Benedikt
Erlingsson. Eigum við eftir að sjá einhverja af
krökkunum í þessari uppsetningu slá í gegn í
framtíðinni?
„Já, hér eru hæfileikaríkir krakkar á ferð.
Einhverjir af þeim verða framtíðarleikarar Ís-
lands.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Leikhús Óvitar frumsýndir í ÞjÓðLeikhúsinu á sunnudag
Frábærir krakkar í Óvitum
Þetta er verk er
sígrænt eins og
allt sem Guðrún
Helgadóttir skrifar.
Óvitar, verk
Guðrúnar
Helgadóttur
frá 1979,
verður frum-
sýnt í Þjóð-
leikhúsinu á
sunnudag.
Leikstjórinn
segir verkið
eiga fullt
erindi við
þjóðina í dag.
Jóhannes Haukur
Jóhannesson
og Ágústa Eva
Erlendsdóttir eru
á meðal þekktra
leikara í Óvitum.
72 menning Helgin 11.-13. október 2013