Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 34
PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST
Suðræni Skyr.is drykkurinn
er kominn aftur
Kolvetnaskertur
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
ENGINN
HVÍTUR SYKUR
NÝTT
MANGÓ &
ÁSTARALDIN
Þ
að er í fyrsta skipti í
dag sem ég játa það
opinberlega, hér fyrir
framan Guð og ykkur,
að ég er geðveikur.“
Þetta sagði Heiðar Ingi Svansson
í predikun sem ber heitið „Mitt
eigið prívat helvíti“ og Heiðar flutti
í „Geðveikri messu“ sem haldin
var síðasta sunnudag í Laugarnes-
kirkju í tilefni af Alþjóðageðheil-
brigðisdagsins sem var í gær.
„Ég var bara beðinn um að
halda predikun. Ég hef starfað
lengi í kirkjunni, var meðal annars
í sóknarnefnd og hef sungið í
kirkjukórnum. Þau komu síðan og
báðu mig um þetta, presturinn og
formaður sóknarnefndar sem vill
svo skemmtilega til að er konan
mín,“ segir Heiðar Ingi brosandi.
Hann tekur á móti mér á heimili
sínu við Laugalæk þar sem fjöl-
skyldan hefur komið sér vel fyrir.
Heiðar Ingi er framkvæmdastjóri
bókaútgáfunnar Iðnú, varaformað-
ur Félags íslenskra bókaútgefenda
og auk þess formaður hverfaráðs
Laugardals fyrir Besta flokkinn.
Fjölskyldan var í kirkjunni
Yngsta dóttirin, Arna Dís sem er
nýorðin 12 ára, situr og teiknar
þegar ég mæti. Við tvær sitjum
svo og spjöllum á meðan ljós-
myndarinn tekur myndir af pabba
hennar. Predikunin hans var átak-
anleg, hann sagði frá geðhvarfa-
sýki sinni, ranghugmyndunum
sem hann fékk og að hann taldi
enga leið út úr ógöngunum aðra
en að svipta sig lífi. Til að hafa
á hreinu hvað dóttir hans vissi
spurði ég hana einfaldlega hvort
hún hefði verið í predikuninni og
hún játaði því.
Í kirkjunni voru fjögur af sex
börnum Heiðars Inga, foreldrar
hans og bróðir, auk fjölda vina.
„Það var ómetanlegt að sjá þessi
andlit í kirkjunni þegar ég flutti
þetta,“ segir hann „Það skipti mig
gríðarlegu máli. Arna Dís mín
sagði svo við mig að hún hefði
ekki vitað áður að ég hefði viljað
drepa mig. Ég útskýrði þetta síðan
fyrir henni og spurði hvort hún
hefði áhyggjur. Hún sagðist ekki
hafa þær núna. Ég er auðvitað að
leggja mikið á börnin að tala opin-
skátt um veikindin mín og það er
örugglega ekki alltaf þægilegt. Í
kirkjunni var töluvert af ferming-
arbörnum og næst yngsta dóttir
mín er að fara að fermast þannig
að vinir hennar hlýddu líka á.
Ég spurði hana líka hvernig þeir
hefðu tekið þessu og ég hef ekki
fengið annað en jákvæð viðbrögð.“
Dagneysla á kannabis
Sem unglingur fann Heiðar Ingi
að hann passaði ekki alveg inn í
normið. „Ég átti alltaf erfitt með
að kyrra hugann og finna frið. Á
menntaskólaárunum þegar vin-
irnir voru að leggja sig gat ég það
engan veginn. Ég þurfti að vera
með prógramm á kvöldin áður
en ég fór að sofa til að reyna að
ná mér niður.“ Um tvítugt byrjaði
hann að reykja kannabis og var
í dagneyslu þess um árabil. „Ég
treysti mér ekki til að segja til um
í hversu mörg ár það var. Líf mitt
var mikil óregla, ekki bara neysla.
Ég vann of mikið og var alltaf á
mikilli keyrslu. Mínir nánustu
vissu að ég drakk mikið en þeir
höfðu ekki hugmynd um kanna-
bisneysluna. Það var ekki fyrr en
seinna sem þeir komust að henni.“
Hann telur að það hafi verið
um árs aðdragandi að því að hann
sökk í dýpsta svartnættið, tæplega
þrítugur. „Hluti af þessum tíma er
í móðu. Mín kenning er sú, og hún
er studd af geðlækninum mínum,
að kannabisneyslan hafi hleypt
þessu af stað. Fjölmargar rann-
sóknir hafa verið birtar sem sýna
fram á tengsl kannabisneyslu við
geðsjúkdóma og ég passa alveg
inn í þá formúlu. Ég er ekki að
segja að hún hafi þessi áhrif hjá
öllum en ég tel að hún hafi haft
þau hjá mér. Ég var búinn að vera
í langvarandi, stöðugri kannabis-
neyslu þegar ég missti tökin.“
Nótt á lagernum
Geðhvarfasýki (manic-depress-
ive) einkennist af tímabilum
þunglyndis til móts við maníu.„Í
maníunni upplifði ég alla þessa
helstu brenglun sem fylgir því að
vera í geðhæð. Ég trúði því að ég
hefði yfirnáttúrulega hæfileika, að
ég væri í sambandi við aðra heima
þar sem ég hefði verið kallaður
til sem útvalinn einstaklingur til
að gegna mikilvægu hlutverki á
jörðinni. Það var síðan í einum
niðurtúrnum sem ég upplifði mitt
eigið prívat helvíti og reyndi að
fyrirfara mér. Ég var á lagernum í
fyrirtæki sem ég rak á þessu tíma.
Ég held að ég hafi eytt lunganum
úr nóttinni þar, ég fór upp á stól og
ætlaði að hengja mig.“ Í predikun-
inni sagðist Heiðar Ingi þarna
hafa fundið ljós í svartnættinu
og náð tengingu við Guð. Hann
hafði endurtekið reynt að hætta að
reykja kannabis og hætt að drekka
en það alltaf gengið illa. „Einhvern
tímann á þessu tímabili fór ég á
svakalegt fyllirí, hitti mann sem er
mér nákominn og sagði honum frá
því að ég væri með sjálfsvígshugs-
anir. Ég man ekkert eftir þessu
samtali. En þessum manni leið illa
með þessa vitneskju og hafði sam-
band við foreldra mína. Þau vissu
Heiðar Ingi segist hafa gengið í gegnum tímabil þar sem hann langað að hætta að taka
lyfin en sem betur fer hafi hann alltaf tekið þau samviskusamlega. Ljósmynd/Hari
34 viðtal Helgin 11.-13. október 2013