Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 57
heilsa 57Helgin 11.-13. október 2013
Omega fitusýrur
fyrir alla!
Styrkurinn fellst í mýktinni
Omega fitusýrur fyrirbyggja bólgu- og hjartasjúkdóma,
hjálpa við að stjórna þyngdinni, efla sjón og taugaboð til heila.
Omega fitusýrur eru taldar góðar við þunglyndi,
geðhvarfasýki, ADHD, lesblindu og einhverfu.
Omega fitusýrur gera húðina mjúka og viðhalda raka í húðinni.
Fjölbreytt úrval fyrir alla fjölskylduna af hágæða
Omega fitusýrum úr sjávar og jurtagrunnum fást í
Gula miðanum, Solaray, Efalex og Udo‘s choice
í lyfja-, heilsuvöru- og matvöruverslunum.
Nánar á www.heilsa.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
A4_fitusýrur.pdf 1 10/9/2013 6:18:31 PM
Þ ó að ég sé titluð grasalæknir þá starfa ég meira eins og kennari. Ég get kennt fólki
og frætt fólk um það hvað það
getur gert til þess að hjálpa sjálfu
sér. Það ert þú sem finnur og veist
hvað er að gerast í þínum eigin lík-
ama Læknir er í raun í hlutverki
kennara sem getur hjálpað þér en
þú ert þinn besti læknir, þú hefur
valið,“ segir Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir sem hefur rekið Jurta-
apótekið við Laugaveg í um níu ár.
Kolbrún hefur unnið við grasa-
lækningar í alls 20 ár en aðeins
þrír grasalæknar eru búsettir á Ís-
landi. „Það eru mun fleiri sem hafa
þessa menntun sem eru búsettir
erlendis og koma ekki aftur heim,“
segir Kolbrún.
Kolbrún mun flytja á næstunni
Jurtaapótekið frá Laugavegi í
Skip holt 33 þar sem hún mun opna
stærri búð og hafa framleiðsluna
á sama stað. Í nýja Jurtaapótekinu
verður boðið upp á nýjar vörur en
Kolbrún segir að stundum þurfi
hún að fara í framleiðslu á vörum
sem hreinlega vanti á markaðnum.
„Þetta er líf mitt og yndi, ég bara
elska þetta starf. Ég tel mig vera
heppna að geta unnið alla daga
við eitthvað sem mér finnst mjög
skemmtilegt,“ segir Kolbrún.
Um tveggja mánaða bið er eftir
tíma í ráðgjöf hjá Kolbrúnu og hef-
ur það verið um langan tíma. Segir
hún að stundum sé aðeins of mik-
ið álag en Kolbrún er líka þriggja
barna móðir. Kolbrún býður einnig
upp á fría ráðgjöf í búðinni hluta
úr degi.
Kolbrún lærði grasalækningar
í einkaskóla í Bretlandi en nú er
námið fjögurra ára háskólanám og
líkist að miklu leyti læknisfræði en
í náminu er kennd til dæmis sjúk-
dómafræði, sjúkdómagreiningar,
lífeðlisfræði, líffærafræði, lífefna-
fræði og lyfjafræði ásamt því að
starfa með náminu á grasalækna-
stofu í tvö ár.
Kolbrún segir stærstan hluta við-
skiptavina á aldrinum 45 til 65 ára
og meirihlutann konur. „Þetta er
aldurinn þegar líkaminn byrjar að
klikka og fólk kemst ekki upp með
hvað sem er og getur ekki haldið
áfram að gera einhverja vitleysu,“
segir Kolbrún.
Kolbrún segir skoðanir al-
mennra lækna mismunandi og að
þeir séu eins misjafnir og þeir eru
margir. „Sumir heimilislæknar eru
meðvitaðir um það sem ég er að
gera og eru ánægðir þegar fólki líð-
ur betur og finnst það flott en það
eru alltaf einhverjir sem út af þekk-
ingarleysi telja að það eigi ekki að
nota jurtalyf með öðrum lyfjum og
eru neikvæðir þó að þeir viti ekki
hvað þetta gerir,“ segir Kolbrún.
Fyrir þá sem eru að velta fyrir
sér vörum í Jurtaapótekinu segir
Kolbrún að gott geti verið að byrja
á grænu bombunni. „Þá ertu að
taka inn fullt af næringarefnum en
það er oft gott að hreinsa líkamann.
Það hafa allir gott af því að taka
inn jurtir sem hjálpa líffærunum
að hreinsa sig. Það er svo margt
sem við erum að gera sem er ekki
gott fyrir okkur. Það er svo mik-
ið af aukaefnum og eiturefnum í
matnum sem við vitum ekki um og
mikil mengun í umhverfinu. Það er
mjög gott að taka stundum aðeins
til í líkamanum hjá sér og sleppa
til dæmis mjólkurvörum, sykri og
hvítu hveiti á meðan.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Heilsa GrasalækninGar vinsælar
Þú ert þinn besti læknir
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir veit aðeins um þrjá aðra menntaða
grasalækna sem starfandi eru á Íslandi. Um tveggja mánaða bið er
í ráðgjöf hjá Kolbrúnu en alltaf hefur verið mikið að gera frá því að
hún kom heim frá námi árið 1993. Jurtaapótekið hennar mun flytja frá
Laugavegi í Skipholt 33 nú í október.
,,Þetta er líf mitt og yndi,
ég bara elska þetta starf,''
segir Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir. Ljósmynd/Hari,