Fréttatíminn - 11.10.2013, Page 6
H agræðingarnefnd skoðar nú leiðir til þess að hagræða í utanríkisþjónustunni og er það einn þeirra málaflokka sem fjárlaganefnd horfir
til þegar gerð verður tillaga um aukin fjárframlög til
Landspítala á næsta ári. Almenn samstaða er meðal
þingmanna að Landspítalinn þurfi frekari fjárheimildir
en fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Í umræðum á Al-
þingi á miðvikudag var rætt um að Landspítalinn þyrfti
að lágmarki þrjá milljarða til viðbótar á næsta ári. Þess
má geta að sérstakt veiðigjald, sem Alþingi hafði á
síðasta kjörtímabili samþykkt að leggja á og núverandi
ríkisstjórn lét afnema, nam um 3,2 milljörðum króna.
Guðlaugur Þór Þórðarson situr bæði í hagræðingar-
nefnd og fjárlaganefnd. Hann segir það skýran vilja
hjá báðum stjórnarflokkunum, sem og stjórnarand-
stöðunni að færa fjármuni til Landspítalans. „Ég lít svo
á að það sé eitt helsta verkefni fjárlaganefndar. Það
virðist vera algjör samstaða um það en nú reynir á að
samstaðan sé ekki bara í orði, heldur einnig á borði,“
segir hann.
Heildarútgjöld til utanríkisráðuneytisins árið 2014
eru rúmlega 12 milljarðar og jukust um 660 millj-
ónir milli ára. Þar af er kostnaður vegna sendiráða og
fastanefnda rúmir þrír milljarðar. Ísland rekur sextán
sendiráð víða um heim og er meðalrekstrarkostn-
aður hvers um 114 milljónir á ári. Fækkun sendiráða
um helming myndi því skila hagræðingu upp á tæpan
milljarð.
Guðlaugur Þór segir að meðal þeirra málaflokka
sem séu til skoðunar til hagræðingar séu auk utan-
ríkismála, landbúnaðarmál, umhverfisstofnanir og
eftirlitsstofnanir. „Við erum að skoða hvernig megi
taka fjármuni þaðan og færa yfir á heilbrigðismálin,“
segir hann.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir
að hagræðingartillögurnar verði gerðar opinberar í
lok næstu viku. „Við þurfum þjóðarsátt um Landspítal-
ann,“ segir hún. „Við verðum að halda uppi öflugu heil-
brigðiskerfi, ekki síst vegna hinnar miklu aukningar
ferðamanna sem hingað koma. Ein af forsendunum
fyrir því að hér verði áframhaldandi ferðamannaiðn-
aður er sú að hér sé öruggt heilbrigðiskerfi,“ bendir
hún á.
Fækkun sendiráða er ein þeirra tillagna sem hag-
ræðingarnefnd hefur til skoðunar sem myndi skila
hagræðingu strax. Flestar tillögurnar miðast hins
vegar við flóknari kerfisbreytingar sem myndu kosta
ríkissjóð fjármuni í upphafi en skila breytingum til
langs tíma.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Borgarmál Jón gnarr útnefndi fimmta HeiðursBorgara reykJavíkur
Yoko Ono gerð að heiðursborgara Reykjavíkur
Jón Gnarr borgarstjóri útnefndi listakonuna Yoko Ono
heiðursborgara Reykjavíkur við athöfn í Höfða á miðviku-
dag.
„Með starfi sínu hefur Yoko Ono beint ljósi friðarins að
Reykjavík sem við viljum að standi uppljómuð sem borg
friðar og mannréttinda. ...Framlag hennar til friðar- og
mannréttindamála í heiminum er einstakt. Friðarsúlan
hefur borið hróður Reykjavíkur víða auk þess sem
viðurkenningin LennonOno Grant for Peace eru nú veitt í
Reykjavík,“ sagði Jón Gnarr við athöfnina.
Yoko Ono er fimmti heiðursborgari Reykjavíkur. Séra
Bjarni Jónsson var fyrstur til að hljóta þessa nafnbót árið
1961, Kristján Sveinsson augnlæknir hlaut hana árið
1975, Vigdís Finnbogadóttir árið 2010 og Erró árið 2012.
„Ég þakka ykkur fyrir að gera mig að heiðursborgara í
Reykjavík. Það er mér sannur heiður og mikil hvatning í
því að halda áfram að góðum málum. Við John trúðum á
Nutopíu, sem myndi gera okkur öll að heimsborgurum.
En í heiminum er eitt land í hjarta okkar sem ljómar af
hlýju, sannleika og fegurð. Það er Ísland. Í hvert skipti
sem ég kem hingað er ég minnt á hvað er nauðsynlegt og
mikilvægast í lífinu. Kærar þakkir, kærar þakkir, þakkir
fyrir að vera þau sem þið eruð,“ sagði Yoko Ono þegar
hún tók við viðurkenningunni. Á miðvikudagskvöld voru
ljósin tendruð á Friðarsúlunni í Viðey í sjöunda sinn.
Friðarsúlan er útilistaverk til minningar um John Len-
non. Um 1.800 manns voru við athöfnina í Viðey á mið-
vikudagskvöld. -hdm
Jón Gnarr
borgarstjóri
útnefndi lista-
konuna Yoko Ono
heiðursborgara
Reykjavíkur í
Höfða.
Ljósmynd/Hari
Sendiráð Mkr
Berlín 118
Kaupmannahöfn 112
London 151
Moskva 118
Osló 81
París 161
Stokkhólmur 66
Washington 128
New York 161
Brussel 247
Vín 101
Peking 109
Ottawa 74
Tókýó 61
Helskinki 71
Nýja Delhi 75
Samtals 1834
Fastanefndir og
aðalræðisskrifstofur Mkr
Fastanefnd Íslands hjá NATO 170
Fastanefnd Íslands í Genf 148
Fastanefnd Íslands Strassburg 36
Aðalræðisskrifstofa New York 42
Aðalræðisskrifstofa Winnipeg 45
Aðalræðisskrifstofa Þórshöfn 43
Aðalræðisskrifstofa Nuuk 55
Annað 425
Viðhald fasteigna 31
Stofnkostnaður, tæki og búnaður 210
Samtals 3037
Hagræðing augum Beint að utanríkisþJónustunni
Sendiráðum verði fækkað
Hagræðingarnefnd skoðar nú hvernig hagræða megi í utanríkisþjónustunni með fækkun
sendiráða. Sátt er um það á Alþingi að auka fjárútlát til Landspítalans og hefur verið talað um að
hækka þyrfti framlög til spítalans um þrjá milljarða – sem jafngildir einmitt sérstaka veiðigjaldinu
sem ríkisstjórnin lét afnema.
Ný tilskipuN
Evrópu-
sambaNdsiNs
um starfsEmi
vErðbréfasjóða
robert p. lord
heldur fyrirlestur
á Háskólatorgi, stofu 105
föstudaginn 11. okt. kl. 12-13:15
Með tilskipuninni er reynt að samræma reglur
um starfsemi verðbréfasjóða á evrópska
efnahagssvæðinu ( EES). Eitt af því sem tilskipunin
felur í sér er aukin upplýsingagjöf verðbréfasjóða og
þar með gagnsæi fyrir þá sem festa fé sitt í slíkum
sjóðum.Tilskipunin mun hafa mikil áhrif hér á landi
sem annars staðar á svæðinu, sérstaklega þegar
hömlum á fjárfestingu verður aflétt hér á landi.
Robert Lord er virtur lögfræðingur sem hefur
hefur starfað við regluvörslu á verðbréfamörkuðum
og unnið fyrir fjármálamarkaðinn víða um heim.
aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
6 fréttir Helgin 11.-13. október 2013