Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Þ Það sem áður var feimnismál þykir nú nauð-syn. Á síðasta ári sóttu nær 72 þúsund manns endur- eða símenntun, að því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands. Nær þriðjungur lands-manna sótti sér menntun með þessum hætti,
32,2 prósent, annað hvort í skóla eða aðra
fræðslu með leiðbeinanda. Sé aðeins miðað við
aldurinn 25-64 ára, sem er virkasti hópurinn
á vinnumarkaði, sótti 27,1 prósent þess hóps
sér fræðslu á liðnu ári, 43.700
manns. Þeir hafa ekki verið
fleiri frá upphafi þessara mæl-
inga árið 2003.
Kristín Jónsdóttir Njarð-
vík endurmenntunarstjóri
sagði frá því í Fréttatímanum
fyrir viku að starfsemi Endur-
menntunar Háskóla Íslands
hefði eflst jafnt og þétt og
framboð orðið stöðugt fjöl-
breyttara, en Endurmenntun-
in fagnar þrjátíu ára starfsaf-
mæli um þessar mundir. Aðgengi almennings,
óháð fyrri menntun, að endurmenntun hefur
aukist til mikilla muna og slík menntun er
orðin, að sögn Kristínar, að föstum lið hjá
fagfólki, þveröfugt við það sem áður var. Þá var
það, að sögn hennar, að sumu leyti feimnismál
að sækja sér endurmenntun. Nú sé staðan hins
vegar sú að það þyki frekar neikvætt ef fagfólk
stundar ekki endurmenntun og sækir nám-
skeið.
Þetta er afar jákvæð þróun en ekki síður hitt
að nú geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi,
óháð því hvort tilgangurinn er að styrkja sig í
starfi eða sækja sér aukna þekkingu – eða að-
eins menningarlega kvöldskemmtun á fróðlegu
námskeiði. Allir geta sótt sér aukinn fróðleik
og menntun, óháð því hvaða grunn þeir hafa
enda er fjöldi námskeiða í boði sem ekki teng-
ist tilteknu starfi. Kristín nefndi, í fyrrgreindu
viðtali, dæmi um námskeið um Íslendingasög-
urnar, auk fjölda tungumálanámskeiða.
Vilji menn bæta sig í starfi býður Endur-
menntun Háskóla Íslands meðal annars nám-
skeið í ferðaþjónustu, fjármálum og rekstri,
heilbrigðis- og félagsmálum, lögfræði, stjórnun
og forystu, uppeldi og kennslu, upplýsinga-
tækni og verk og tæknifræði. Sé fólk hins
vegar að leita að almennum fróðleik fyrir sig
tengjast námskeiðin til dæmis menningu, pers-
ónulegri hæfni og tungumálanámi, auk ýmissa
örnámskeiða.
Vitaskuld eru fjölmargir aðrir aðilar, fyrir-
tæki og stofnanir sem bjóða námskeið af öllu
mögulegu tagi fyrir fólk til fræðslu og skemmt-
unar.
Fram kemur í tölum Hagstofunnar að fleiri
konur en karlar sækja sér fræðslu með þessum
hætti. Þannig sóttu 35,2 prósent kvenna á
aldrinum 16-74 ára einhvers konar fræðslu árið
2012, þar með talið nám í skóla, en 29,1 prósent
karla. Konur eru fleiri en karlar meðal þeirra
sem sækja námskeið, stunda nám í skóla og
sækja sér annars konar fræðslu. Lítill munur er
á þátttöku kynjanna í símenntun meðal þeirra
sem eingöngu hafa lokið grunnmenntun en
konur sem hafa lokið framhaldsskóla- eða há-
skólanámi stunda símenntun í mun meira mæli
en karlar með sambærilega menntun.
Mikil þátttaka atvinnulausra í símenntun
er afar jákvæð en hún er meiri meðal atvinnu-
lausra og fólks utan vinnumarkaðar en meðal
starfandi fólks. Námskeið sem í boði eru fyrir
atbeina Vinnumálastofnunar hjálpa atvinnu-
leitendum að mennta sig. Þau auka sjálfstraust
fólks og styrkja fótfestu svo komast megi
með þeim hætti aftur út á vinnumarkaðinn.
Atvinnuleitendur geta sótt um námsstyrki
vegna styttra náms og námskeiða. Tölur Hag-
stofunnar sýna að 41,9 prósent atvinnulausra á
aldrinum 16-74 ára sóttu sér fræðslu á síðasta
ári miðað við 30,9 prósent starfandi fólks á
sama aldursbili.
Þátttaka í símenntun hér á landi er með því
mesta sem þekkist í Evrópu. Ísland er í þriðja
sæti á eftir Danmörku og Sviss þegar horft er
til 35 Evrópuþjóða.
Það er rós í hnappagatið og sú staða sýnir,
þrátt fyrir margs konar ramakvein á kreppu-
tímum, að á þessu sviði standa Íslendingar vel
að vígi.
Aukið aðgengi almennings
Endurmenntun fyrir alla
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Í slensk stjórnmál snúast að of miklu leyti um meirihluta og minnihluta. Í landsmálunum eru
ríkisstjórnir iðulega studdar af meiri-
hluta Alþingis. Í sveitarstjórnum er
hefð fyrir meirihlutasamstarfi flokka
sem starfa saman í litlu samráði við
minnihlutann. Minnihlutar, bæði á
Alþingi og í sveitarstjórnum, taka þá
að sér eins konar aðhaldshlutverk og
bregðast við störfum meirihlutans
eftir aðstæðum hverju sinni. Ekk-
ert af þessu er nauðsynlegt, stjórn-
skipulagið getur gengið án meiri- og
minnihluta, en hefðirnar eru býsna
rótgrónar.
Samstarf skilar betri ákvörðun
Þverpólitísk vinna í hefðbundnu meiri-
og minnihlutafyrirkomulagi er lítið
iðkuð, enda kallar hún á traust milli
fólks og flokka, mjög mikla og tíma-
freka vinnu, fleiri fundi, fleiri mála-
miðlanir og meiri tillitssemi en ella.
Það er auðveldara að fara troðnar
slóðir, að meirihlutinn vinni einn án
minnihlutans sem segir skoðun sína
bara eftirá. Þegar stefnumörkun og/
eða ákvarðanataka liggur fyrir hefst
vinna minnihlutans og oftar en ekki
gengur hún út á að finna neikvæðar
hliðar málsins. Og þá hefst umræðan.
Meirihlutinn kynnir, minnihlutinn
gagnrýnir og upp hefjast deilur um
hvort og þá hvernig hefði verð hægt
að gera hlutina öðruvísi. Fjölmiðlar
greina frá átökunum, sumir borgar-
búar taka þátt, en flestir hrista höfuðið
og velta fyrir sér af hverju stjórnmála-
fólk geti ekki hagað sér almennilega.
Og er það nema von? Við vitum
að þverpólitískar ákvarðanir hljóta
alltaf að vera betri en
þær sem teknar eru af
þrengri hópi. Þverpóli-
tískar ákvarðanir byggja
á breiðari sýn, þær eru
teknar eftir að ólík sjón-
armið hafa verið reifuð og
þær byggja á málamiðl-
unum sem allir hlutað-
eigandi geta fellt sig við.
Þverpólitískar ákvarðanir
eru líklegri til að halda, til að skila ár-
angri og til að um þær ríki sátt.
Vítahringur
Einhverra hluta vegna miðar okkur þó
lítið áfram og stórar ákvarðanir eru
enn flestar teknar í ágreiningi. Meiri-
hlutinn ræður, hann ber ábyrgð, þarf
að svara fyrir verkið og mun falla ef
kjósendum mislíkar. Að taka tillit
til skoðana minnihlutans er bara til
að flækja málið, þægilegast að gera
þetta bara ein og sjálf. Sama gildir um
minnihlutann. Hann þarf ekki að axla
ábyrgð og getur setið hjá eða verið á
móti ef honum sýnist. Hann getur ein-
beitt sér að því að kenna meirihlutan-
um um óvinsæl mál og talað bara fyr-
ir þeim vinsælu sjálfur. Að taka þátt í
störfum meirihlutans, hvað þá að taka
á þeim ábyrgð, er alger óþarfi.
Þessu þarf að breyta. Við þurfum að
rjúfa vítahring meirihluta sem nennir
ekki að hlusta á minnihlutann sem
mun hvort eð er ekki standa með hon-
um til enda og minnihluta sem stend-
ur ekki með meirihlutanum til enda
af því að meirihlutinn nennir ekki að
hlusta. Þetta hefur tekist í örfáum af-
mörkuðum verkefnum á undanförnum
árum, en það er ekki nóg. Samstarfið
þarf að taka gagngerum
breytingum og þá verða
allir að taka þátt – kjörn-
ir fulltrúar í bæði meiri-
og minnihluta.
Breytum
Sem borgarfulltrúi í
minnihluta viðurkenni
ég vel að meirihluti
Besta flokks og Sam-
fylkingar hefur bæði unnið að góðum
málum og slæmum á kjörtímabilinu,
eins og reyndar flestir meirihlutar
hafa gert gegnum tíðina í borgarstjórn
Reykjavíkur. Þótt vissulega hafi ómál-
efnaleg gagnrýni oft freistað, hef lagt
mig fram um að vinna málefnalega að
allri stefnumörkun í samstarfi við aðra
flokka, að koma sjónarmiðum Vinstri
grænna að en taka á sama tíma tillit
til sjónarmiða annarra flokka og full-
trúa. Það hefur sannarlega skilað
árangri og leitt til málamiðlana sem
bæði Vinstri græn og meirihlutinn
geta fellt sig við. Hér má nefna vinnu
við atvinnustefnu Reykjavíkurborgar,
aðgerðir gegn kynbundnum launa-
mun, aðalskipulag Reykjavíkurborgar,
stefnumótun í málefnum ungs fólks,
jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar og
margt fleira.
Ég heiti því, og hvet samstarfsfólk
mitt í borgarstjórn, að leggjast á eitt
og rjúfa vítahring átakastjórnmál-
anna. Í því felst að taka hlutverk okkar
sem borgarfulltrúa alvarlegar en hlut-
verk okkar sem meiri- eða minnihluta-
fulltrúa, að vinna með fólki jafnvel þó
við séum ekki alltaf sammála og finna
bestu mögulegu niðurstöðu í öllum
málum sem flestir geta sætt sig við.
Rjúfum vítahring átakastjórnmálanna
Vinnum saman
Sóley Tómasdóttir
borgarfulltrúi
LAGERSALA
Lagersala Lín Design Laugavegi 178 & Glerártorgi
40-80%
afsláttur
Reykjavík: Laugavegi 178
Rúmföt, handklæði
barnavörur, púðar
Akureyri: Glerártorgi
dúkar, löberar og fleira
Opið laugardag & sunnudag 11-16
Rúmföt - margar gerðir og stærðir
Laugardag & sunnudag
Opið laugardag 10-17
& sunnudag 13-17
140x200, 140x220
200x200 & 220x200
Mikið úrval af hágæða handklæðum
Baðhandklæði
Stærð 70x140
1.990 kr
50%
afslá
ttur
Stærðir
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.795
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
399
PVC mottur 50x80 cm
1.490
Breidd: 66 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.495
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
14 viðhorf Helgin 11.-13. október 2013