Fréttatíminn - 11.10.2013, Page 16
www.ebridde.is
FiberHusk er hrein náttúruleg, glútenfrí vara sem inniheldur
85% fæðu trefjar. Með því að bæta FiberHusk í brauð og
kökur helst brauðið mjúkt og ferskt lengur.
Það er léttara að vinna glútínfría vöru ef fiberHusk er notað
í uppskriftina. Deigið hefast betur og glútínfría brauðið molnar
minna við skurð og verður safaríkara með tilkomu fiberHusk.
Veljið aðeins það besta í heilsubrauð og annan hollan bakstur.
FRÁBÆRT Í BAKSTUR!
Fleiri uppskriftir og nánari upplýsingar eru á husk.dk
20%
AFSLÁTT
UR
GILDIR TI
L
4. NÓVEM
BER!
LÁGKOLVETNISVARA
Fæst í apótekum, Heilsuhúsinu, Maður lifandi, Fjarðarkaupum, Krónunni.
Vikan sem Var
Teygjanlegur brandari
Ég bjó þarna til greinilega
eitt atriði í viðbót sem
netheimar geta skemmt
sér yfir.
Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaganefndar,
upplýsti alþjóð um að
„strax“ væri teygjanlegt
hugtak og sló að vonum í
gegn á netinu.
Á misjöfnu þrífast börnin best
Kári hafði reyndar ekki eins gaman af þessum
tónleikum og við hjónin en lét sig hafa það.
Egill Helgason fór með fjölskylduna á tónleika
með Crosby, Stills & Nash í Royal Albert Hall
í London. Agli fannst tónleikarnir frábærir en
Kára, syni hans, þótti minna til koma.
Bara alveg eins og bólan
Þetta er mjög bratt en embættið bæði óx mjög
hratt og minnkar mjög hratt...
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari,
stendur frammi fyrir niðurskurði og fólksfækkun.
Trúir þú á drauga?
Ég hef þá trú að það séu til réttsýnir útgerðar-
menn sem myndu verða stoltir af því að geta
komið fram og lagt meira af mörkum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri
grænna, bindur vonir við að útgerðarmenn styrki
heilbrigðiskerfið.
Vikan í tölum
Stokkum upp framhaldsskólakerfið
Börn eiga að fá að vera börn – alveg til átján
n ú er ég orðin móðir barns í framhaldsskóla. Ég vissi svo sem að sú stund rynni
upp – en gerði mér engan veginn
grein fyrir því hvað það myndi
þýða.
Á örfáum mánuðum hef-
ur hið verndaða umhverfi
grunnskólans vikið fyrir
hinu kröfuharða samfélagi
framhaldsskólans. Félaga-
hópurinn hefur breyst – og
elst – og viðmiðin orðin
önnur.
Ég þarf sem betur fer
ekki að hafa áhyggjur af
unglingnum mínum. Hún
er ábyrg, reglusöm og dug-
leg. Samt sem áður hef ég
áhyggjur.
Hún er sextán ára – enn
barn – óharðnaður ungling-
ur sem er nú gert að fóta
sig í því samfélagi fullorðinna ung-
menna sem framhaldsskólinn er.
Lífsstíll íslenskra grunnskólabarna
er til mikillar fyrirmyndar og neyta
þau síður áfengis og annarra vímu-
efna en unglingar í löndunum sem
við berum okkur gjarnan saman við.
Annað er uppi á teningnum þegar
í framhaldsskóla er komið. Kann-
anir sýna að framhaldsskólanem-
endur yfir átján ára aldri hafa nær
allir neytt áfengis, um 96% stúlkna
og 93% pilta. Það er um þrefalt fleiri
en þeir sem neytt hafa áfengis í
tíunda bekk.
Margir hafa bent á að við þurfum
að bregðast við þessu. Margir hafa
sett áfengis- og vímuefnaneyslu
framhaldsskólanema í samhengi
við brottfall úr skóla sem er meira
hér en í nokkru öðru ríki. Tillögur
hafa komið fram um breytingu á
framhaldsskólakerfinu og styttingu
námstímans í þrjú ár sem nokkrir
framhaldsskólar hafa þegar tekið
upp.
Ég vil ganga enn lengra. Ég held
því fram að 16 og 17 ára unglingar
eigi enga samleið með framhalds-
skólanemum á aldrinum 18-25 ára
(rannsóknir sýna að nám stórs hluta
framhaldsskólanema tekur mun
lengri tíma en fjögur ár og eru því
ungmenni á öllum aldri í framhalds-
skólum). Allir sem hafa átt ungling
– eða muna eftir því að hafa verið
unglingur sjálfir – vita hversu mikill
þroskamunur er á 16 ára og 18 ára
unglingum, svo ekki sé talað um
enn eldri.
Fyrir þó nokkrum árum tókum
við mikilvægt skref í því að vernda
þennan aldurshóp þegar sjálfræðis-
aldurinn var hækkaður í 18 ár. Við
gerðum það til að vernda bernsku
þessara barna.
Við eigum að taka skrefið til fulls
og endurhugsa – algjörlega upp á
nýtt – það skólakerfi sem við erum
að bjóða þessum börnum upp á.
Hvers vegna má ekki skoða það að
bæta tveimur árum við grunnskól-
ann og hafa þau ýmist skyldu eða
valfrjáls, auka til mikilla muna fram-
boð á verknámi í grunnskólum og
útskrifa 18 ára ungmenni úr grunn-
skóla, ýmist með starfsmenntun eða
stúdentspróf?
Hví hugsum við kerfið út frá því
sem er – en ekki því sem við viljum
að það verði?
Hvað gerðirðu
Zuckerberg?
Ég er reyndar
í sumarfríi á
Spáni og hef
bara frekar
gott af því að
vera laus við
Facebook.
Hildur
Lilliendahl
hefur eina ferðina
enn verið útlæg ger
af samskiptavefnum Facebook. Að
þessu sinni fyrir að tengja á myndir
sem virðast særa blygðunarkennd
dyravarða Facebook.
Danir eru varasamir í
samningum
Ég hef ekki skrifað undir neinn
samning um annað starf og því lítið að
ræða um.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
Rhein-Neckar Löwen, er sagður á
leiðinni að taka við þjálfun danska
handboltalandsliðsins.
Átta líf eftir
Kötturinn hefur það ágætt, hann er
allur að koma til og þetta lítur betur út
en á horfðist.
Svala Ögn Kristinsdóttir, dýralæknir á
Dýralæknastofu Dagfinns, tók á móti
ketti sem bjargað var úr brennandi íbúð
og lífgaður við á staðnum af slökkviliðs-
mönnum.
Vikan sem Var
Sigríður
Dögg
auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
2
milljónir króna söfnuðust á Reykjavík Bacon
Festival sem haldin var á Skólavörðustíg í
september. Peningarnir verða notaðir til kaupa
á tveimur þráðlausum hjartasíritum sem verða
afhentir hjartadeild Landspítalans á næstunni.
100
manns á Íslandi eru án
ríkisfangs. Talið er að um 12
milljónir manna séu án ríkis-
fangs í heiminum.
17.500
ný störf gætu skapast hér
á landi á næstu 3-5 árum ef
væntingar lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja ganga eftir.
Þetta kemur fram í könnun
sem Samtök atvinnulífs-
ins gerðu og var kynnt á
Smáþingi.
5
ár eru
síðan Bjarni
Guðjónsson
gekk til liðs
við KR-inga.
Hann hefur
nú sagt
skilið við
Vesturbæ-
inga og
mun þjálfa
lið Fram
á næsta
tímabili.
107
vikur hefur
plata hljóm-
sveitarinnar Of
Monsters and
Men, My Head
Is An Animal,
setið á Tónlist-
anum, lista yfir
söluhæstu plötur
landsins.
16 viðhorf Helgin 11.-13. október 2013