Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 30
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Jókerinn
Vigdís Hauksdóttir, formaður
fjárlaganefndar, á margt
sameiginlegt með Jókernum,
hinum litríka erkióvini
Batmans. Jókerinn og Vigdís
hafa einstakt lag á að fá fólk
til þess að hlæja með hress-
andi orðaleikjum og sprelli.
Þó ber að varast að þrátt
fyrir yfirbragð grínarans
er þeim stundum alvara
og þá er vissara að taka
mark á orðum þeirra.
Þau eiga það nefnilega
til að hefna sín á þeim
sem hlýða þeim ekki og
sjálfsagt mun fara um
margan Evrópu-
sinnann og
Ríkisútvarpsfrétta-
manninn þegar
Jókerinn verður
ráðherra.
RíkisstjóRn
ofurmenna og ljúfra klaufa
Það verður ekki af þeim tekið, forsætisráðherranum og fjármálaráðherranum, þeim Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni og Bjarna Benediktssyni, að þeir eru til í að bregða á leik við rétt tækifæri. Stjórnmálafólk er yfirleitt
viljugast til þess að kasta alvörugrímunni í aðdraganda kosninga en sem betur fer líka þegar góð málefni eru
annars vegar. Ráðherrarnir brugðu sér í gervi Star Trek-kappanna Kirk og Spock fyrir myndatöku í vikunni en
þessi sögulega ljósmynd af þeim verður seld á uppboði til styrktar Bleiku slaufunni.
U pphaflega hugmynd-in var að sögn sú að þeir félagar færu í gervi Batmans og
Robins en ágreiningur um
hvor ætti að vera Batman
gerði út um þá hugmynd.
Það er síðan allt önnur
saga hvort Bjarni henti í
hlutverk hins tilfinninga-
lausa Vúlkana, Spock, þótt
tilfinningaleysi hljóti að auð-
velda fjárlagagerð all verulega. Og
hvernig Sigmundur Davíð tekur
sig út í fötum hins sjálfumglaða
kvennaljóma Kirks skipstjóra
verður hver að dæma fyrir sig. En
hér eru hugmyndir að nokkrum
gervum sem aðrir ráðherrar ættu
ekki að eiga í neinum erfiðleikum
með að bregða sér í og óneitanlega
væri það einhverra aura virði að
sjá útkomuna.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Mr. Bean
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ætti varla
í miklum erfiðleikum með að herma eftir hinum
seinheppna ljúflingi Mr. Bean. Mr. Bean hefur til dæmis
þann ótvíræða kost að hann segir fátt en þó syrtir í álinn
þegar hann lætur verkin tala. Fatastíll hans og hár-
greiðsla ber vott um ákveðna sveitamennsku og þegar
hann villist í drottningarveislur þar sem hann er innan
um fyrirmenni hverskonar verður hann alltaf dálítið eins
og álfur út úr hól. En hann vill vel og það er fyrir öllu.
Lara Croft
Þessi hugdjarfi fornleifafræðingur lætur sér
fátt fyrir brjósti brenna og ógnar karlskúrkum
og þeirra klíkum með vasklegri framgöngu
sinni. Ekki ósvipað Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra
sem komst heilu og
höldnu í gegnum REY-
frumskóginn, sá við
öllum fjendum sínum
í ráðhúsinu og tókst
að velgja Bjarna
Benediktssyni
undir uggum á
tímabili. Lara
er í endalausri
fjársjóðsleit og
Hanna Birna er
enn á leiðinni á
toppinn og hvorug
er líkleg til að
leggja árar í bát.
Superman
Ofurmennið er blátt og það er Stjáni blái, Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, líka. Kristján
minnir þó meira á Clark Kent, Súpermann í
borgaralegum búningi, en verkefni Kristjáns sem
heilbrigðisráðherra kallar á ofurmannlega krafta
og þá væri gott að geta kastað af sér gleraug-
unum og fundið skjalaskáp (símaklefar
eru víst útdauðir) og stökkva fram
með röntgenaugu til þess að
leysa af ónýt tól og tæki í þeirri
deild Landspítalans. Annars
er líklega heppilegast að
snúa jörðinni bara rangsælis
og færa tímann aftur fyrir
hrun og reyna að berja í
bresti spítalans áður en hann
hrundi.
30 úttekt Helgin 11.-13. október 2013