Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 46
Vertu velkomin!
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
• Gerð - fleiri en 900 mismunandi útfærslur
• Stærð - engin takmörk
• Áklæði - yfir 3000 tegundir
VIÐ ERUM FLUTT Á BÍLDSHÖFÐA 18
Torino
Lyon
Lyon
Havana
Landsins mesta úrval
af sófum og sófasettum
ENDALAUSIR MÖGULEIKAR Í STÆRÐUM OG ÚTFÆRSLUM
Færri leikföng – minni tiltekt
Margir foreldrar fyllast pirringi og kvíða við tilhugs-
unina um að laga til í barnaherberginu eftir fjörugan
dag. Í því sambandi er gott að hafa í huga að fyrir
alla, bæði börnin og foreldrana, er gott að herbergið
sé ekki yfirfullt af leikföngum. Sniðugt er að hafa
aðeins fá og vel valin leikföng inni í barnaherbergi
á hverjum tíma. Önnur leikföng er svo hægt að taka
frá og geyma í geymslunni og sækja síðar og gleðja
börnin sem þá finnst eins og þau hafi fengið ný leik-
föng. Góð regla er að fara yfir allt það sem er í barna-
herbergi reglulega og fjarlægja svo þar safnist ekki of
mikið fyrir.
Hver hlutur á sínum stað
Til að koma í veg fyrir að
börn sturti úr öllum leik-
fangakössum á hverjum
degi er gott að flokka
leikföngin vel því þá
finna börnin strax
það sem þau leita
að. Til dæmis
að hafa alla
kubba saman í
einum kassa,
bækurnar
allar saman,
liti og lita-
bækur saman,
smádót svo
sem bíla eða
fígúrur saman
í sér kössum. Þá
er gott að hafa sér-
stakan kassa eða
kistu fyrir grímubún-
inga. Þar er líka hægt
að geyma gamla jakka,
slæður, hatta og kjóla sem
börnin hafa gaman af að klæða
sig í.
Rúmið umbúið
Þangað til börn læra að búa sjálf um rúmin sín er góð
regla að leyfa þeim að hjálpa til við það á hverjum
morgni og læra þannig. Ung geta þau til dæmis raðað
koddanum og svo sett bangsana ofan á sængina. Svo
einn daginn ráða þau sjálf við sængina og eru búin
að koma sér upp þeirri reglu að búa alltaf um rúmin
sín á morgnana. Sömuleiðis er gott að hjálpast að við
að laga til á kvöldin og raða öllu á rétta staði og venja
börnin á þá reglu.
Persónulegir munir
Flestum börnum finnst gaman að hafa myndir af ein-
hverjum sem þeim þykir vænt um á veggj-
unum í herberginu sínu. Til dæmis
er sniðugt að fjárfesta í nokkrum
römmum og stækka myndir
af börnunum með bestu
vinum sínum, uppáhalds
dýrinu eða ömmu og
afa. Þegar börnin
koma með listaverk
úr leikskólanum eða
skólanum er auð-
velt að festa verkin
upp á vegg eða
innramma þau
þannig að sem
flestir geti notið
þeirra.
Pottaplöntur
Sniðugt er að leyfa
börnum að hafa
pottaplöntu í her-
berginu sínu, til dæmis
í glugga. Börn og for-
eldrar gætu þá hjálpast
að við að vökva reglulega.
Svo er mjög spennandi að
fylgjast með plöntunni vaxa og
jafnvel blómstra.
KYNNING
L eitin að draumasófanum getur verið tímafrek, sér í lagi þegar plássið í stofunni er af skornum skammti og erfitt að koma fyrir húsgögnum.
Patti ehf. er húsgagnaverslun með aðaláherslu á
eigin framleiðslu á sófum, sófasettum,
tungusófum og hornsófum eftir óskum
viðskiptavina. Gunnar Baldursson,
eigandi fyrirtækisins, segir að við-
skiptavinum séu engin takmörk sett og
möguleikarnir séu margir. „Við viljum
helst að fólk mæti til okkar með málin
og svo getum við unnið áfram með það.
Ég get allavega ábyrgst það að okkar
sófi passar alltaf. Svo eru möguleik-
arnir auðvitað endalausir. Með öllum
okkar útfærslum get ég í rauninni
staðið við það að við séum með þúsund
tegundir af sófum,“ segir Gunnar.
Hann segir viðskiptavini með mjög
mismunandi þarfir og það sé reynt að
koma til móts við þær allar. Verkefnin
séu ekki aðeins bundin við stofuna
því Patti framleiðir einnig mikið af leðurgöflum fyrir
rúm og margar tegundir af skemlum. „Við smíðum
allar grindur sjálfir, það er því ekkert mál að gera
breytingar. Við reynum að verða við öllum óskum. Ef
verkið felur í sér bólstrun ættum við að geta tekið það
að okkur. Svo er ekkert mál að gera breytingar. Ef
einhver vill fá hærra bak á sófa eða eitthvað slíkt þá
búum við það bara til.“
Hugmyndaflugið eina hindrunin
Gunnar segir Íslendinga ekki alveg
hafa náð að tileinka sér þessa ný-
breytni og þau þægindi sem fylgja
því að finna draumasófann á þennan
hátt. „Í grunninn vinnum við með
okkar módel. Við erum með yfir
fjörutíu tegundir af sófum. Það
fer svo bara eftir því hvað fólk vill
hvernig við röðum þessu saman,
útfærslurnar eru mjög fjölbreyttar.
Við erum með um 3000 tegundir af
áklæði, fjöldann allan af örmum og
þar fram eftir götunum. Hugmynda-
flug viðskiptavinarins er því eina
hindrunin,“ segir Gunnar.
Verslunin sinnir einnig stærri verkefnum og býður
heildarlausnir í húsgögnum fyrir hótel, kaffihús, veit-
ingastaði, sem og ráðstefnu- og fundarsali.
Sófinn okkar passar alltaf
Gunnar Baldursson, eigandi húsgagnaverslunarinnar Patta, er með fjörutíu tegundir af sófum til sölu og ótal útfærslur
sem henta öllum. Ljósmyndir/Hari
Fínt barnaherbergi
Helgin 11.-13. október 201346heimili & hönnun
Laugavegi 86 101 Reykjavík S. 511 2004 www.dunogdur.is
1000 gr.
sængur