Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 58
58 heilsa Helgin 11.-13. október 2013
KYNNING
Nærandi, orkugefandi og eykur lífsgæði
Spírandi ofurfæði
Útsölustaðir: Bónus, Fjarðarkaup, Græni hlekkurinn,
Hagkaup, Krónan, Lifandi Markaður, Melabúðin,
Nettó og Nóatún.
Meltingargerlar sem hafa sannað gildi sitt
OptiBac Probiotic meltingargerlar eru prófaðir með klínískum
rannsóknum og hafa sannað gildi sitt í fjölmörgum rannsóknum. O ptiBac Probiotics kynnir nýja línu af meltingargerl-um (sem margir þekkja
sem Acidophilus) með vísinda-
lega sannaðri virkni í meira en 30
klínískum rannsóknum sem birtar
hafa verið í tímaritum.
Af hverju að taka meltingargerla
eins og acidophilus?
Rannsóknir hafa sýnt að gott
jafnvægi á góðum bakteríum í
meltingarkerfinu getur hjálpað
líkamanum að viðhalda góðri
meltingu, sterkara ónæmiskerfi og
betri heilsu. OptiBac Probiotics er
náttúrulegt fæðubótarefni sem er
auðvelt að taka og hefur ekki áhrif
á neina lyfjatöku. Í vörulínunni
eru nokkrar mismunandi tegundir
sem allar þjóna mismunandi til-
gangi og innihalda mismunandi
tegundir af gerlum til þess að taka
á mismunandi vandamálum tengt
meltingu og meltingarkerfi.
Rétta Probiotic blandan til að
viðhalda daglegu heilbrigði
For Daily Wellbeing inniheldur 6
vel rannsakaðar gerla og prebiotic
trefjar. Þessi vara er fyrir þá sem
vilja taka meltingargerla reglulega
sem forvörn og til að viðhalda heil-
brigðri meltingu og jafnvægi.
Minna loft og flatari magi –
aukin vellíðan
For a flat stomach er 7 daga kúr til
að taka 1x í mánuði eða oftar og
inniheldur vinsamlegar bakteríur
eins og acidophilus og prebiotic
trefjar sérstaklega fyrir þá sem
þjást af óþægindum vegna lofts í
maga, t.d. vegna fæðuóþols, fyrir-
tíðaspennu eða streitu.
Til að stöðva niðurgang og
gegn Kandída sveppi
Bowel Calm (Pure Saccharomyces
boulardii) hefur sannað gildi sitt
við að stoppa niðurgang á nátt-
úrulegan og fljótvirkan hátt og um
leið byggja upp meltingarflóruna
á ný. Bowel Calm virkar einnig á
áhrifaríkan hátt í baráttunni við
Kandída svepp.
Sýklalyf geta valdið meltingar-
truflunum eins og niðurgangi
og hægðatregðu
For those on antibiotics er 10
daga skammtur (1 hylki á dag) til
að taka á meðan á sýklalyfjatöku
stendur og inniheldur tvo stofna
af Lactobacillus sem sýklalyf
skemma. Allar rannsóknir sýna
að best er að taka 1 hylki hálftíma
eftir töku sýklalyfs að morgni.
OptiBac vörurnar innihalda
blöndu af meltingargerlum sem
eru sýruþolnir og komast þannig
örugglega og lifandi gegnum
magasýrurnar í smáþarmana
þar sem þeim er ætlað að virka.
OptiBac lofar því magni af virkum
lifandi góðgerlum sem auglýst
er í innihaldslýsingu út líftíma
vörunnar. OptiBac þarf ekki að
vera geymt í kæli.
Hvað segja viðskiptavinir?
Ann Lake (London)
Ég hef þjáðst af þembu og vindverkjum
síðastliðin 2 ár en þá uppgötvaði ég
Optibac „For a flat stomach“ Ég fann mikla
breytingu strax á fyrsta mánuði. Frábær
vara!
Anna (Brisbane Australia)
Ég elska þessa vöru, hef prófað ýmsar
tegundir en ekkert virkar betur en Optibac!
Paola (Slough – England)
Ég hef þjáðst af mjög slæmu IBS og
Kandída lengi. Orka og þrek var lélegt.
Ég las um Optibac og ákvað að prófa „For
bowel calm“. Eftir þrjá daga fann ég fyrir
aukinni orku og létti. Maginn á mér varð
eðlilegur aftur, meltingin virkari og ég fékk
flatari maga aftur og miklu meiri orku og
úthald. „For bowel calm“ hefur hjálpað
mér meira en nokkur önnur sambærileg
vara sem ég hef prófað. Ég mæli eindregið
með OptiBac gegn IBS og Kandída.
OptiBac er á kynningartilboði
núna í næsta apóteki eða
heilsubúð
„For a flat stomach“ fylgir frítt
með þegar keypt er „for daily well-
being“. 20% afsláttur af „For those
on antibiotics“.
Útsölustaðir: Lyf og Heilsa Aust-
urveri, Domus, Firði, Glerártorgi,
JL Húsi, Keflavík, Kringlunni og
Selfossi. Lifandi markaði Hæð-
arsmára, Borgartúni og Faxafeni,
Lyfjaver, Lyfjaval Hæðarsmára,
Álftamýri og Mjódd, Reykjavík-
urapóteki, Apóteki Vesturlands,
Apóteki Suðurnesja, Árbæjar-
apóteki, Apóteki Garðabæjar og
Apóteki Hafnarfjarðar.
www.facebook.com/optibaciceland
www.optibacprobiotics.is
Glútenlaus
pítsubotn
1 1/2 dl kókóshveiti
1 dl möndlumjöl
1/2 dl FiberHusk
220 cl volgt vatn
skvetta af olíu
2 tsk vínsteinslyftiduft
Allt hnoðað saman
í matvinnsluvél og
flatt út á pítsu- eða
bökunarplötu. Ég byrja
á að baka botninn í 10
mínútur við 180°C set
svo sósu og það sem
okkur langar í það
skiptið ofan á og baka
aftur í 10 mínútur.
Til viðbótar langar
mig að gauka að
ykkur nokkrum af
mínum uppáhaldsupp-
skriftum:
Steinaldar-
brauð
Þessa uppskrift er
hægt að nálgast á
husk.dk og er ótrúlega
góð.
2 dl möndlumjöl
2 dl hörfræ
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskersfrafræ
1 dl FiberHusk
3 tsk salt
2 dl rifinn ostur
2 dl rifinn kúrbítur
5 egg
1/2 dl ólívuolía
Byrja á að hræra eggin
vel í hrærivél, blanda
síðan öllum hráefnunum
saman og bæta síðan
olíunni og kúrbítnum
við. Sett í brauðform/
kökuform og bakað í 1
klukkustund við 160°C.
Fyrir þá sem ekki eru
á glútenlausu fæði:
Gróft brauð
með fræjum
3 dl gróft spelt eða
heilhveiti
1 dl FiberHusk
1 dl möndlumjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
1 dl haframjöl
4 - 5 dl fræblanda
1 dl hnetur eða
möndlur (má sleppa)
6 dl AB mjólk
Hrært vel saman og
sett í brauðform, bakað
í u.þ.b. 50 mínútur við
200°C.
Hrökk-
brauð
Svo í lokin þá læt ég
fylgja með uppskrift af
hrökkbrauði.
Ég geri mér ansi oft
græna djúsa. Ýmist
drekk ég hratið með
eða sía það frá. Mér
finnst alveg óþarfi að
henda hratinu þegar
hægt er að nota það
t.d. í hrökkbrauð. Út í
hratið set ég
2 tsk, vínsteinslyftiduft
1 dl FiberHusk
1 dl möndlumjöl
2-3 dl af fræjum
2 - 2 1/2 dl vatn
Í hratinu er nóg af
trefjum en mér finnst
FiberHusk góð viðbót
því það bindur deigið
svo vel saman. Deigið
er flatt út á bökunar-
plötu og bakað í ofni
í u.þ.b. 2 x 15 mínútur
við 180°C eða þar til
kexið er orðið stökkt.
Svo er um að gera að
prófa sig áfram með
vöruna. Trefjar bæta
meltinguna, eru sað-
samar og veita vellíðan.
Margar góðar uppskriftir
með FiberHusk er m.a.
að finna á veftímaritinu
Allt om mat.
KYNNING
FiberHusk er frábært í matargerð
B erglind Arndal, deildarstjóri unglingadeildar í Hóla-brekkuskóla, bakar mikið.
Hún kynntist FiberHusk trefjavör-
unum fyrir fjórum árum þegar
hún bjó í Svíþjóð og féll fyrir þeim.
„Ég baka mikið, bæði í sparnaðar-
skyni og svo vil ég gjarnan vera
meðvituð um það sem ég læt ofan
í mig. Svíar eru almennt upplýstir
um heilsusamlegt mataræði og í
mörgum uppskriftum, sérstaklega
brauði, er FiberHusk notað sem
viðbót til að gera brauðið trefja-
ríkara. FiberHusk hentar mjög
vel fyrir þá sem velja glútenlaust
fæði þar sem oft eru ekki nægi-
lega miklar trefjar í því,“ segir
Berglind.
FiberHusk í bakstur
„FiberHusk er frábært í bakstur,
deigið nær að binda vökvann betur
og brauðið heldur ferskleikanum
lengur. Glútenlaust brauð eða
brauð með FiberHuski er með mun
meira trefjainnihaldi, mettar betur
en venjulegt hvítt brauð og melt-
ingin verður betri. Brauð sem inni-
heldur FiberHusk er safaríkara.
Það stuðlar að því að deig úr nátt-
úrulegum glútenlausum hveititeg-
undum lyftir sér betur. Glútenlaus
brauð og kökur fá betri áferð auk
þess sem FiberHusk kemur í veg
fyrir að það molni.
Í dag nota ég þessa vöru mikið í
ýmsa rétti svo sem brauð, pítsu-
botna og drykki.“
Hvað er FiberHusk?
„FiberHusk er trefjavara sem leysa
má upp í vatni. Varan inniheldur
malað hýði fræja af indversku
plöntunni plantago ovata forsk.“
Fyrir hverja?
„FiberHusk er fyrir alla, bæði full-
orðna og börn. Oft erum við ekki
að fá nægilegt magn af trefjum.
Fullorðnir ættu að neyta a.m.k.
25 - 35 gr af trefjum daglega.
Kosturinn við FiberHusk er að
það er 100% glútenlaust og án allra
aukaefna. Trefjarík fæða hefur að
jafnaði þau áhrif að hægðir verða
reglulegri. Það stafar af því að
trefjarnar drekka í sig vökva sem
veldur því að hægðirnar verða
mýkri en ella. Trefjar örva einnig
þarmahreyfingar og stuðla þannig
að örari losun hægða og eru til
gagns fyrir bakteríur í ristli sem
við þurfum á að halda við melt-
inguna. Allir þessi eiginleikar
koma að góðu haldi gegn hægða-
tregðu og ristilvandamálum.
FiberHusk er þó ekki ætlað
börnum undir 3 ára aldri, þau eiga
ekki að neyta meira en sem nemur
15 grömmum af trefjum á dag.
Við sonur minn búum okkur
gjarnan til pítsu á föstudögum. Ég
hef smátt og smátt komið Fiber-
Husk inn í hans matarvenjur. Nú
segist hann ekki finna mikinn mun
á hvítum pítsubotni eins og við
gerðum hér áður fyrr og þeim sem
við gerum okkur í dag.“
Berglind
Arndal