Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 64
64 skák og bridge Helgin 11.-13. október 2013
Skák kaSparov Skorar forSeta fIDe á hólm
Gary gegn geimverunum!
G ary Kasparov er að margra áliti besti skákmaður sögunnar. Hann varð heimsmeistari 1985, yngstur allra í sögunni, þegar hann náði titlinum af Anatoly
Karpov. Næstu fimmtán árin var ,,skrímslið með þúsund
augun“ (svo vitnað sé í Anthony heitinn Miles) allsráð-
andi í skákheiminum. Kasparov dró sig í hlé frá atvinnu-
mennsku fyrir nokkrum árum, og hefur síðan verið einn
beittasti gagnrýnandi Pútíns Rússlandsforseta. Þá hefur
Kasparov unnið ötullega að útbreiðslu skákíþróttarinnar
í grunnskólum, og fékk þannig Evrópuþingið til að sam-
þykkja að skák verði kennd í skólum. Kasparov hefur
heldur ekki legið á þeirri skoðun sinni að Alþjóðaskák-
sambandið, FIDE, sé í tröllahöndum – og nú ætlar hann að
freista þess að frelsa skákhreyfinguna frá Kirsan Nikola-
yevich Ilyumzhinov.
Geimverur og Gaddafi
Núverandi forseti FIDE er sem sagt Rússinn Kirsan
Ilymzhinov, sem til skamms tíma var líka forseti rússneska
lýðveldisins Kalmykíu, sem er eina landsvæði Evrópu þar
sem búddistar eru í meirihluta. Kirzan auðgaðist stórkost-
lega í forsetatíð sinni í Kalmykíu, og var sakaður um spill-
ingu og ýmis óhæfuverk. Hann var frekar óvænt kjörinn
forseti FIDE 1995 og hefur því setið á valdastóli í heil 18 ár.
Kirsan er vægast sagt umdeildur. Þannig hefur hann
ítrekað skýrt frá því að hann hafi verið numinn brott af
geimverum, sem hafi upplýst hann um hinstu rök tilver-
unnar. Hann hefur líka verið ófeiminn við að heilsa upp
á illræmda einræðisherra, og er fræg skákin sem hann
tefldi við Mohammar Gaddafi árið 2010. Eins og Kasparov
hefur bent á er slíkur maður ekki líklegur til að laða mikið
fjármagn inn í skákina – gúglaðu Kirsan og þú færð upp
geimverur og Gaddafi!
Í gegnum árin hafa nokkrar atlögur verið gerðar að
Kirsan, án árangurs. Fyrir þremur árum var Kasparov
maðurinn á bak við framboð Karpovs gegn Kirsan, en þar
steinlá Anatoly, 95-55. Það er altalað að Kirsan noti „gjafir“
til að kaupa sér atkvæði frá löndum í Afríku, Asíu og
Suður-Ameríku, og atkvæðin eru víst ekkert sérstaklega
dýr í FIDE. Á síðasta ári var velta sambandsins 2 milljónir
dollara – samanborið við milljarð hjá Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu.
Skákin í stórsókn
Hverjir eru þá möguleikar Kasparovs gegn hinum út-
smogna og örláta Kirsan? Nokkuð góðir, líklega. Kasparov
er goðsögn. Og hann er snillingur. Hann kann líka vel
að tala máli skákarinnar, enda eftirsóttur fyrirlesari hjá
stórfyrirtækjum og höfundur margra merkra bóka. Hann
stendur nú á fimmtugu, og er brimandi af metnaði og
starfsorku. Ekki spillir heldur fyrir að hann hefur fengið
frábæra frambjóðendur til stjórnar FIDE með sér í lið. Þar
er þungavigtarfólk á öllum póstum.
Skákin er í stórsókn um allar jarðir og miklir mögu-
leikar á að efla vinsældir þessarar 1500 ára gömlu íþróttar
enn meira. Nýleg rannsókn YouGov í fimm löndum leiddi
í ljós að tveir þriðju fullorðinna kunnu að tefla. Samkvæmt
tölum FIDE tefla meira en 600 milljónir reglulega. Á Ind-
landi, þar sem heimsmeistarinn Anand er þjóðhetja, segist
þriðjungur nú tefla í hverri viku!
Kosningarnar í FIDE verða á næsta ári. Þá ræðst hvort
nútíminn heldur innreið sína í skákina, eða hvort bragða-
refurinn og geimveruvinurinn frá Kalmykíu nær að skella
öðrum heimsmeistara í einvígi.
Í talir unnu næsta öruggan sigur á Mónakó í úrslitaleiknum um Bermú-daskálina, í opnum flokki í Balí, með
210 impum gegn 126. Spilaður var 96 spila
úrslitaleikur sem tók tvo daga. Ítalir tóku
strax forystuna í fyrstu 16 spila lotunni,
54-29 og bættu við forystuna í annarri lotu.
Þetta spil, hér að neðanverðu, átti þátt í því.
Claudio Nunes í Mónakóliðinu sat í suður
á öðru borðanna á hagstæðum hættum og
hann hafði val um hvort það borgaði sig að
koma inn á sagnir eftir laufopnun austurs.
Hann ákvað að taka áhættuna á sögn – en
sá fljótlega eftir því. Spil 22, austur gjafari
og AV á hættu:
♠ Á83
♥ 103
♦ G3
♣ ÁG10953
♠ G6
♥ 76542
♦ Á9754
♣ 7
♠ K1075
♥ ÁG
♦ KD862
♣ 62
♠ D942
♥ KD98
♦ 10
♣ KD84
N
S
V A
Vestur norður austur suður
Versace Fantoni Lauria Nunes
1 ♣ 2G
Dobl pass pass 3 ♦
Dobl p/h
Nunes sýndi lengd í rauðu litunum með
stökki sínu í tvö grönd en félagi var með
samlegu í hvorugum litnum. Lokasamn-
ingurinn var 3 tíglar doblaðir sem fóru 3
niður. Á hinu borðinu ákvað Ítalinn Madala
að koma ekki inn á sagnir og það reyndist
vel. Lokasamningur Helgemo og Helness í
Mónakó sveitinni voru 4 spaðar á AV hend-
urnar, spilaðir í vestur. Útspil tígulgosi sem
var drepið á ás, skipt yfir í einspilið í laufi,
drepið á ás og gefin stunga. Spaðaásinn var
svo fjórði slagur varnarinnar. Ítalir græddu
10 impa og lotuna unnu þeir 45-16. Næsta
lota var einnig hagstæð fyrir Ítali, 15-2 og
leikurinn endaði rólega 210-126 fyrir Ítali.
Sigur mæðgna
Þann 4. október var spilað annað konu-
kvöldið hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Til
leiks mættu 17 pör og mæðgurnar Esther
Jakobsdóttir og Anna Þóra Jónsdóttir náðu
að enda efstar með mikla forystu. Fimm
efstu pörin voru sem hér segir:
1. Esther Jakobsdóttir – Anna Þóra Jónsdóttir 66,8%
2. Svala K. Pálsdóttir – Inda Hrönn Björnsdóttir 61,5%
3. Harpa Fold Ingólfsdóttir – Sigrún Þorvarðardóttir 59,8%
4. Hanna Friðriksdóttir – Inga Lára Guðmundsdóttir 53,3%
5. Sigríður Friðriksdóttir – Sigþrúður Blöndal 53,1%
Sigur feðga
Nýlokið er þriggja kvölda tvímenningi
hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Feðgarnir
Jón Sigurbjörnsson og Birkir Jónsson
unnu þar glæstan sigur eftir góðan
endasprett. Lokastaða 5 efstu para varð
þannig:
1. Birkir Jón Jónsson – Jón Sigurbjörnsson 60,3%
2. Guðmundur Baldursson – Steinberg Ríkarðsson 59,6%
3. Sveinn Rúnar Eiríksson – Þröstur Ingimarsson 58,6%
4. Jón Baldursson – Sigurbjörn Haraldsson 57,4%
5. Gunnlaugur Karlsson – Kjartan Ingvarsson 56,9%
Næsta keppni Bridgefélags Reykjavíkur
er fjögurra kvölda hraðsveitakeppni sem
lýkur 29. október.
Íslandsmót kvenna í tvímenningi
Helgina 12.-13. október næstkomandi
verður Íslandsmót kvenna í tvímenningi.
Hægt er að skrá sig á netsíðu BSÍ (bridge.
is) eða í síma 587 9360. Skráningu lýkur á
hádegi 11. október. Tímatafla kemur eftir
að skráningu lýkur. Íslandsmeistarar árs-
ins 2013 eru Ljósbrá Baldursdóttir og Anna
Þóra Jónsdóttir.
BrIDGe áhætta tekIn
Að segja eða segja ekki
Feðgarnir Jón Sigurbjörnsson og Birkir Jónsson
voru að vonum ánægðir með sigurinn í Hótel
Hamar tvímenningnum.
Kasparov. Trúlega besti skákmaður
sögunnar. Stefnir að forsetatign í FIDE.