Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 70
É g verð að viðurkenna að Jeppi á Fjalli hefur ekki ásótt mig og krafist endur-
mats eða nýrrar sýnar. Og ég
býst við að það sama eigi við um
flesta Íslendinga. Nema þá helst
Benedikt Erlingsson, sem er með
svo djúpar rætur í íslensku leik-
húsi að hann var örugglega alinn
upp með Jeppa, eins og öðrum
stjörnuhlutverkum úr íslenskrar
leiklistarsögu. Og svo dvaldist
hann og starfaði í dönsku leikhúsi
í nokkur ár. Og er meira að segja
giftur dönsku leikhúsi (ef svo má
segja). Þess vegna heimtar Jeppi af
Benedikt einskonar upprisu. Sem
við svo fáum að fylgjast með – án
þess að vera málið beint skylt.
Það verður að segjast að Jeppi á
Fjalli er hvorki skemmtilegt leikrit
né tímalaus klassík. Danir sitja
uppi með þetta verk og önnur verk
Holberg, sem einskonar fæðingar-
hríðir sinna bókmennta. Þeir hafa
því þurft að læra Jeppa í skóla og
setja hann upp í ótal útfærslum
í leikhúsi, útvarpi og bíói; þeir
hafa meira að segja gert óperu
úr Jeppa. Þetta er svipað og ef sú
kvöð lægi á okkur Íslendingum að
setja upp Pilt og stúlku á fimm ára
fresti. Sem við erum blessunarlega
laus við.
En þrátt fyrir að ég geti ekki
skilið hvers vegna Benedikt vill
kallast á við Jeppa þá get ég ekki
annað en þakkað honum fyrir að
hafa látið það eftir sér. Og Borgar-
leikhúsinu fyrir að ýta undir þessa
sérvisku mannsins.
Þar sem Jeppi er ekki lengur
fyndið leikrit þarf að skipta um
húmorinn í því. Það er að hluta til
gert með því að láta Kolbein kapt-
ein þýða verkið í gegnum Braga
Valdimar Skúlason. Mér fannst
þetta annarlegt fram að hléi en
vandist því svo.
Þar sem farsinn í Jeppa er svo út-
jaskaður þarf að skipta um form á
honum og Benedikt kýs að breyta
honum í einskonar „variety show“
eða enskt „music hall“; söngur,
dans, grín og fimar kúnstir. Mér
fannst vera ójafnvægi og hökt í
þessu framan af en þegar söngat-
riðin urðu færri og leiknu atriðin
lengri small þetta saman.
Með því að gefa leikpersónum
sönglög að flytja skapast tækifæri
til að koma á framfæri innra tali
persóna líkt og í óperuaríum. Ég
veit ekki hversu vel þetta fram-
lag Megasar og Braga Valdimars
tókst. Svona innra tal og tónlist er
á annari bylgju- og tímalengd en
leikrit og ég þarf að hlusta oftar
og betur á lögin til njóta þeirra
og meta. Á meðan á sýningu stóð
fannst mér þau mörg helst til of
keimlík.
Þar sem inntakið í leikritinu er
stútfullt af fyrirlitningu gagnvart
alþýðu fólks, sjúkum og veikburða
þarf að skipta um sálina í Jeppa.
Benedikt gerir það með því að
snúa gríni barónsins hægt og bít-
andi upp í grimmd og lýsa örlögum
Jeppa og Ninnu sem dæmigerðri
og eilífri kúgun lágstéttanna. Þau
eru föst eins og hamstrar í hlaupa-
Jeppi á FJalli að hætti Benedikts erlingssonar
Gömul leiðindi á röngunni
Bernd Ogrodnik
gerir stórt og mikið
leikhús úr litlu og
fáu á brúðulofti
Þjóðleikhússins.
alladín á BrúðuloFti ÞJóðleikhússins
Fagrir galdrar
Þótt frumsýning Brúðuheima
Bernd Ogrodnik á Aladdín á nýopn-
uðu brúðulofti Þjóðleikhússins hafi
verið of hæg og löng (tveir tímar)
þá hélt sex ára dóttir mín góðri at-
hygli út sýninguna. Enda við nóg að
dvelja í fallegum og seiðandi brúðu-
heimi; fallegir litir, ljúfir tónar, ljúf
KAUPTU FJÓRAR
FÁÐU SEX
HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU.
HENTAR flestum sem hafa mjólkursykuróþol.
70 menning Helgin 11.-13. október 2013