Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 74

Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 74
 Harmsaga mikaels Torfasonar Hvenær drepur maður konu? e n hvorki leikritið né uppfærslan svara þess-ari spurningu. Mikael kýs að takmarka textann að mestu við rifrildi hjónanna hina hörmulegu nótt. Hann lætur unga fólkið endur- taka ásakanir og skammaryrði aftur og aftur svo lengi framan af er leikritið í raun þráendurtekið rifrildi; eiginlega botnlaust og án tengingar við eitthvað áþreifanlegt. Þetta er einskonar móðir allra rifrilda milli fólks í samböndum. Flestir ættu að kannast við sjálfan sig í svona stagli ofan á óhömdum tilfinningum; afbrýðisemi, særindum, reiði, stjórnsemi, hefnigirni – einhvern tímann æv- innar. Ungi maðurinn í leikritinu fer þessa braut til enda; hann missir alla stjórn og myrðir konuna sem hann elskar; myrðir móður barnanna sinna. Mikael virðist vilja draga fram hið almenna í unga fólkinu og leggja áherslu á hversu lík þau eru okkur áhorfendum; hversu stutt er á milli þess naggs, nuðs og nöldurs sem alltof margir leyfa sér í ástarsamböndum og harmleiksins á sviðinu. Við getum velt fyrir okkur hvort við snérum við þegar við vorum komin kvart eða helming af leið unga mannsins eða hvort við vorum aðeins hársbreidd frá því að missa alla stjórn. Hver getur svo sem svarað því? Líklega er sá sem hafnar því algjörlega líklegastur til að snappa. Önnur áhersla sem Mikael leggur er að það er enginn botn í rifrildinu; það er ekki hægt að rífast að niðurstöðu. Leikritið dregur fram að unga fólkið hefur endalaus tækifæri til að hætta; hugs- anlega saman en örugglega með því að skilja. En þau eru jafn föst við óuppgert og óuppgeranlegt rifrildi sitt og fólk sem var fast í hefndarskyldu Íslendingasagnanna eða öllum Sómalíum okkar tíma. Þau rata ekki út vegna þess að geta ekki gefist upp; tekið sæng sína og gengið. Og kannski er það einmitt valið sem við stöndum frammi fyrir hvern dag; að velja milli lífs og dauða; þess sem er gjöfult og gott og þess sem er illt og deyðandi. Ef við höfnum lífinu alla daga endum við eðlilega sem ómenni; það er ef við trúum að hið góða til- heyri mennskunni. Að sumu leyti er undarlegt að Mikael Torfason skuli leggja áherslu á hið almenna; hvað unga fólkið er líkt okkur hinum en ekki hvað er einstakt við þau. Mikael er sem kunnugt er einn helsti boð- beri þeirrar tegundar blaðamennsku sem velur ávallt hið sértæka sjónarhorn. Ef skipta má blaða- mennsku í hefðbundin síðdegis- og morgunblöð; lágstéttar- og millistéttarblöð; gula og bláa pressu; þá liggur munurinn í að gula pressan kýs að segja hverja sögu sem einstaka á meðan sú bláa reynir að finna hið almenna og greina samhengi atburð- anna. Vond gul pressa getur misst sig í áherslu á hver gerði hvað; á meðan vond blá pressa lætur sem það skipti í raun engu máli hver gerði hvað; hún hættir jafnvel að nefna þann sem gerði. Besta útgáfan af gulu pressunni og þeirri bláu eru svo náttúrlega líkar að það er erfitt að greina muninn; en það er önnur saga. Þekktustu dæmin um afkvæmi skáldskapar og blaðamennsku fjalla bæði um morðmál; In Cold Blood eftir Truman Capote og The Executioner’s Song eftir Norman Mailer. Þeir Capote og Mailer fara þveröfuga leið á við Mikael; þeir draga fram allt sem þeir finna til að smíða einstakar og full- mótaðar manneskjur. Og það truflar okkur síður en svo þegar við speglum okkur í þeim. Það segir sig eiginlega sjálft. Ef það hjálpaði okkur að finna til samkenndar eða samúðar með persónum að skræla af þeim sérstöðuna væri allur skáldskapur óþarfur. Okkur myndi nægja að renna yfir nor- rænu tölfræðihandbókina eða ársskýrslu Seðla- bankans. Þessi skortur á skáldskap og holdtekju persón- anna er veikleiki leikritsins og líka vandi Unu Þorleifsdóttur leikstjóra og leikaranna. Þau reyna að krækja í einhverjar ástæður fyrir þeirri stöðu sem persónurnar eru fastar í; finna orsakir fyrir afleiðingunum þótt höfundurinn vilji alls ekki draga þær fram. Athyglinni er beint að því að sam- bandið hafi orðið til nánast fyrir hendingu, van- getu krakkanna til að þroska sambandið og vinna úr vanda sem kemur upp, fæðingarþunglyndi og svo framvegis – en ekkert af þessu (og heldur ekki allt saman) leiðir óhjákvæmilega til morðs. Það er því nokkur togstreita á sviðinu á milli þarfar leik- aranna fyrir hold og blóð og löngunar höfundarins að stilla atburðunum fram sem týpískum; „snaps- hot“ eða sýnishorni af samskiptum. Og líklega er engin lausn á þessari togstreitu. Þessi skrif eru ekki gagnrýni; svo ég ætla ekki að reyna að greina alla þætti sýningarinnar. Um- fjöllunarefnið er ágengt og á erindi og sýningin er kröftug og áhugaverð. Þessi tilraun til raunsæis finnst mér helst falla á skorti á skáldskap; eins undarlega og það kann að hljóma. Raunveruleiki án hins sértæka, skáldskapar og mannalykt er lítið annað en beinagrind, kenning eða módel. Harmsaga Mikaels Torfasonar, sem sýnd er í Kassa Þjóðleikhússins í uppfærslu Unu Þorleifs- dóttur, virðist að miklu leyti byggð á því sem fram kom í réttarhöldum yfir ungum manni sem myrti eiginkonu sína og barnsmóður í Hamraborg í Kópavogi fyrir tæpum níu árum. Segja má að leikritið spyrji hvers vegna? Hvers vegna drepur maður konuna sem hann elskar? Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Rautt – HHHHH „Alvöru listaverk“ – MT, Ftíminn Mary Poppins (Stóra sviðið) Lau 12/10 kl. 19:00 aukas Fim 24/10 kl. 19:00 22.k Lau 2/11 kl. 13:00 aukas Sun 13/10 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k Sun 3/11 kl. 13:00 aukas Mið 16/10 kl. 19:00 20.k Lau 26/10 kl. 13:00 aukas Fim 7/11 kl. 19:00 aukas Lau 19/10 kl. 13:00 aukas Sun 27/10 kl. 13:00 aukas Fös 8/11 kl. 19:00 aukas Sun 20/10 kl. 13:00 aukas Fim 31/10 kl. 19:00 aukas Mið 23/10 kl. 19:00 21.k Fös 1/11 kl. 19:00 aukas Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Fös 22/11 kl. 20:00 30.k Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Mið 27/11 kl. 20:00 aukas Þri 15/10 kl. 20:00 aukas Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Fös 29/11 kl. 20:00 32.k Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Fim 5/12 kl. 20:00 34.k Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Þri 22/10 kl. 20:00 aukas Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Fös 15/11 kl. 20:00 27.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst Rautt (Litla sviðið) Fös 11/10 kl. 20:00 18.k Mið 16/10 kl. 20:00 21.k Fim 24/10 kl. 20:00 24.k Lau 12/10 kl. 20:00 19.k Sun 20/10 kl. 20:00 22.k Fös 25/10 kl. 20:00 25.k Sun 13/10 kl. 20:00 20.k Mið 23/10 kl. 20:00 23.k Sun 27/10 kl. 20:00 27.k Verðlaunaverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Allra síðustu sýningar! Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 18/10 kl. 20:00 1.k Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Lau 16/11 kl. 20:00 7.k Lau 19/10 kl. 20:00 2.k Lau 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 17/11 kl. 20:00 8.k Lau 26/10 kl. 20:00 3.k Sun 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 23/11 kl. 20:00 9.k Meistaraverkið eftir John Steinbeck aftur á svið Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó) Fös 18/10 kl. 20:00 frums Sun 27/10 kl. 20:00 5.k Sun 10/11 kl. 20:00 8.k Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k Lau 26/10 kl. 20:00 4.k Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna Saumur (Litla sviðið) Lau 19/10 kl. 20:00 frums Sun 10/11 kl. 20:00 3.k Fös 22/11 kl. 20:00 5.k Lau 26/10 kl. 20:00 2.k Fim 21/11 kl. 20:00 4.k Nærgöngult og nístandi verk eftir eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands Haustsýning ÍD: Tímar Sentimental, again (Stóra sviðið) Fös 11/10 kl. 20:00 frums Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 5.k Sun 13/10 kl. 20:00 2.k Sun 27/10 kl. 20:00 4.k Tímar eftir Helenu Jónsdóttur; Sentimental, again eftir Jo Strömgren Það er ferskleiki yfir sýningum á Harmsögu enda eru nánast allir aðstandendur sýningarinnar að stíga sín fyrstu spor í Þjóð- leikhúsinu. Og afraksturinn er þannig að leikhúsið hlýtur að flýta sér í að reyna þetta aftur. Ferskur dans í litlu þorpi Íslenski dansflokkurinn frumsýnir tvo nýja dansa annað kvöld; Tíma eftir Helenu Jónsdóttur danshöfund og Sentimental, again eftir Jo Strömgren. Tímar Helenu eru samdir í tilefni af 40 ára afmæli flokksins og fjalla um veröld dansarans; samspil dans og vídeómynda. Íslenski dansflokkurinn er merkilegt fyrirbrigði í íslensku menningarlífi. Hann hefur einbeitt sér að nýjum og nýrri verkum en sleppt þjónustu við eldri ballettverk og þá áhorfendur sem þeim unna. Og flokknum hefur tekist að ala upp ungan og merkilega stóran áhorfendahóp. Þegar horft er yfir salinn á sýningum flokksins sést að hann er að meðaltali um 20 árum yngri en þeir sem kaupa áskriftarkort í leikhúsin, 30 árum yngri en áheyrendur hjá Ís- lensku óperunni og 40 árum yngri en áheyrendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands – svona um það bil. Það má því velta fyrir sér hvort fordæmi dansflokksins sé ekki öðrum menningarstofnunum til hvatningar og eftirbreytni. Það er ekki sjálfgefið hvernig halda eigi úti leikhúsi, hljóm- sveit, óperu eða dansflokki í þeim Búðardal Evrópu sem Reykjavík er. Vegna vinsælda leikhússins getur Þjóð- leikhúsið reynt að sýna jöfnum höndum vinsældaverk, klassík og ný íslensk verk þótt leikhúsið nái sjaldnast að blómstra á öllum þessum sviðum samtímis. Sinfóní- an hefur hins vegar að mestu hætt að bjóða upp á íslensk og ný verk nema sem aukanúmer eða á Myrkum músíkdögum og öðrum sérstökum hátíðum. Það var athyglivert þegar sveitin flutti í Hörpu spilaði hún níundu sinfóníu Beethoven en efndi ekki til íslenskrar hátíðar eins og gert var þegar Þjóðleikhúsið opnaði fyrir 63 árum. Með flutningnum í Hörpu virðist óperan ætla að einbeita sér enn frekar að þeim 10-15 óperum sem oftast eru settar upp í heiminum. Carmen verður frumflutt um næstu helgi. Auðvitað eru þessar stofnanir að sumu leyti þrælar áhorfenda og áheyrenda sinna. Það er jafn erfitt að breyta verkefnavali þaulsætins salar og að snúa olíuskipi. En það getur verið hættulegt fyrir þessar stofnanir að láta alveg undan salnum. Þær munu þá staðna sem fölar eftirmyndir en ekki öflugir mótendur íslenskrar menningar. Það er ljóst að hlutverk Sinfóníuhljómsveitar Íslands er ekki það sama í dag og það var fyrir 40 árum þegar aðgengi fólks að tónlist var miklu minna en í dag. Þá mátti færa rök fyrir því að ein af megin- skyldum sveitarinnar væri að spila kanónu klassískra tónbókmennta. Nú mætti halda fram að meginskyldan væri þvert á móti að spila fyrst og fremst íslenska og nýja tónlist. Þótt íslenski dansflokkurinn sé minnsta systkinið í hópi íslenskra menningar- stofnana geta hinar stofnanirnar mikið af flokknum lært. -gse Íslenska dansflokknum hefur tekist að halda úti ferskri og nýrri dagskrá árum saman og alið upp ungan og sterkan áhorfendahóp. Nokkuð sem aðrar menningarstofnanir gætu tekið til fyrirmyndar. 74 samtíminn Helgin 11.-13. október 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.