Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 78
„Það er gaman að menn hafi skoðun á
þessu. Þetta hafa nánast undantekningar-
laust verið jákvæðar og skemmtilegar
uppástungur,“ segir Gísli Marteinn Bald-
ursson, fyrrum borgarfulltrúi og tilvon-
andi sjónvarpsmaður.
Nýr þáttur Gísla Marteins fer í loftið á
RÚV hinn 27. október næstkomandi. Í vik-
unni óskaði Gísli eftir aðstoð almennings
við að velja nafn á þáttinn og í gærmorgun
höfðu um 2.500 manns kosið. Það jafn-
gildir því og allir íbúar Hveragerðis hefðu
tekið þátt í kosningunni. Hægt var að velja
á milli tveggja nafna, Vikan með Gísla
Marteini og Sunnudagsmorgunn með
Gísla Marteini. Auk þess hefur Gísli fengið
ótal aðrar tillögur að nöfnum í gegnum
samfélagsmiðla.
Er ekki allt að verða klárt fyrir fyrsta
þátt?
„Neinei. Við erum ennþá að búa þáttinn
til. Nú erum við til að mynda að ákveða
hversu margir viðmælendurnir verða,
ákveða hvaða fílingur eigi að vera í lógói,
hvernig sviðsmyndin eigi að vera og svo
framvegis. Og ráða fólk inn í teymið.“
Svo þarf náttúrlega að ganga frá því
frá hvaða tískuverslun föt stjórnandans
verða...
„Jújú. En ég hugsa nú að þau verði bara
úr mínum eigin fataskáp.“ -hdm
Kristján hafði aldrei dreymt
um að verða söngvari þegar
hann hóf söngnám fyrir
fimm árum. Nú stígur hann á
svið með Íslensku óperunni í
Hörpu. Ljósmynd/Hari
TónlisT KrisTján fer með hluTverK nauTabanans í Carmen
Hef hlustað á klassíska
tónlist síðan ég var barn
Kristján Jóhannes-
son fer með hlut-
verk nautabanans
í Carmen sem
Íslenska óperan
frumsýnir um næstu
helgi. Kristján er
nýorðinn 21 árs og
þykir mikið efni en
hann lærði af ekki
ómerkara fólki en
Kristjáni Jóhanns-
syni og Diddú. Hann
vonast til að félagar
sínir komi að horfa
á sig í Hörpu.
u ndrabarn? Ég ætla nú ekki að gerast svo frakkur að nota það orð. En fólk mér eldra og vitrara hefur sagt að ég sé efnilegur svo
ég hlýt að taka það alvarlega,“ segir Kristján Jó-
hannesson barítón.
Kristján er ekki nema 21 árs en hefur landað
flottu hlutverki í Carmen sem Íslenska óperan
frumsýnir um næstu helgi í Hörpu. Carmen er ein
vinsælasta ópera allra tíma en tæpir þrír áratugir
eru síðan hún var síðast sett upp hér á landi. Krist-
ján fer með hlutverk nautabanans Escamillo en
hlutverkinu deilir hann með Hrólfi Sæmundssyni.
Fimm ár eru síðan Kristján hóf formlegt söng-
nám í Söngskóla Sigurðar Demetz og útskrifaðist
hann í vor. Þar hefur hann notið leiðsagnar Keits
Reed, Kristjáns Jóhannssonar og nú síðast Diddúar.
„Áður datt mér aldrei í hug að ég gæti orðið
söngvari, ég hafði varla opnað munninn. Ég var
hálfvegis pikkaður upp af götunni því einhver vissi
að ég hafði hlustað á klassíska tónlist frá því ég var
barn,“ segir Kristján um upphaf söngferilsins.
Hann kveðst vera af músíkölsku fólki kominn.
„Pabbi spilaði alltaf klassíska tónlist heima. Til að
byrja með þótti mér þetta asnalegt en smám saman
fór þetta pínulítið að síast inn. Svo kom að því að
maður tók fram úr kallinum og fór að vita allt of
mikið um þetta, varð hálfgert nörd,“ segir Kristján
og hlær.
Kristján er spenntur fyrir hlutverki nautabanans.
„Þetta er ekki eins löng rulla og fólk er oft búið að
ákveða. Það er þarna aría sem allir þekkja en þess
fyrir utan er þetta ekki svo mikið. Þetta er mjög
hentugt debut-hlutverk.“
Er stress ekkert farið að gera vart við sig?
„Jújú, það fylgir þessu. Maður verður bara að
læra að nota stressið til að fá auka búst þegar á
hólminn er komið. Þetta er enda svo ótrúlega
gaman og ótrúlega mikill heiður fyrir mig að fá að
taka þátt í þessari sýningu.“
Kristján fæst eingöngu við sönginn um þessar
mundir. Hann heldur út til Vínarborgar eftir áramót
í frekara söngnám.
Það er ekki beint algengt að strákar á þínum aldri
séu að syngja aríur í Hörpu. Hvað segja félagar þínir
við þessu öllu saman?
„Þeir bara hlæja að þessu og hafa gaman af. Þeir
hafa nú ekki verið duglegir að koma og hlusta á
mig en ég hugsa að ég nái mögulega að draga þá á
sýningu núna fyrst maður er að debutera.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Rúmenskir menningardagar eru
nú haldnir í fyrsta sinn í. Hug-
myndin að þeim kviknaði í fram-
haldi af rúmenskum fókus á kvik-
myndahátíðinni RIFF árið 2011.
Að sögn Vals Gunnarssonar, eins
skipuleggjenda, segjast Rúmen-
ar haldnir mikilli ástríðu fyrir Ís-
landi, fyrir Björk og Sigur Rós og
ekki síður leikstjórunum Baltasar
Kormáki og Rúnari Rúnarssyni,
sem hefur setið í dómnefnd fyrir
kvikmyndahátíðir þar í landi.
„Rúmenía er líklega í hugum
margra helst þekkt fyrir Drakúla
greifa og einræðisherrann ill-
ræmda Ceaucescu, en landið hef-
ur upp á margt annað að bjóða frá
Karpatíufjöllum og allt til Svarta-
hafs,“ segir Valur.
Rúmenskur kvikmyndaiðnaður
hefur verið í miklum blóma undan-
farið og hafa Rúmenar unnið bæði
Gullpálmann í Cannes og Gull-
björninn í Berlín. Þrjár myndir
verða sýndar í Bíó Paradís, og mun
Stere Gulea, leikstjóri „I'm an Old
Communist Hag,“ sitja fyrir svör-
um eftir sýningu myndarinnar á
morgun, laugardaginn 12. októ-
ber klukkan 18. Meðal annarra
viðburða er Balkan partí á Hótel
Borg á laugardagskvöld og matar-
og vínsmökkun í Norræna húsinu
á sunnudag. Ókeypis er inn á þá
viðburði. Nánari upplýsingar um
dagskrá má finna á icr-london.
co.uk/reykjavik.
Rúmenar í Reykjavík
Leikstjórinn Stere Gulea mætir í Bíó Paradís.
Gísli Marteinn er spenntur fyrir því að snúa aftur
í sjónvarp. Nýr þáttur hans fer í loftið sunnudag-
inn 27. október á RÚV. Ljósmynd/Siggi Anton
sjónvarp Tvær viKur í að nýr þáTTur Gísla marTeins baldurssonar fari í lofTið
2.500 manns hafa kosið um
nafn á þætti Gísla Marteins
78 dægurmál Helgin 11.-13. október 2013