Fréttatíminn - 08.03.2013, Síða 10
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar:
Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri:
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson
valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af
Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
G Greint var frá því í desember síðastliðnum að íslenska ríkið hefði greitt upp lán sem Færeyingar veittu Íslendingum í kjölfar efnahagshrunsins hér á landi árið 2008. Vissulega var það fagnaðarefni þegar til-
kynnt var að lán þetta hefði verið greitt upp
en við þau tímamót var það Íslendingum
bæði ljúft og skylt að rifja upp þann vinar-
hug sem færeyska þjóðin sýndi Íslending-
um í nauð þessa haustdaga í
kjölfar bankahrunsins þegar
við áttum í fá hús að venda.
Færeyingar voru fyrsta
þjóðin sem bauðst til þess, í
október 2008, að lána Íslend-
ingum fé og það skilyrðis-
laust. Í mars árið eftir var
síðan undirritaður samning-
ur milli landsstjórnar Færeyja
og íslenska ríkisins þess
efnis að landsstjórnin lánaði
300 milljónir danskra króna,
jafnvirði 6,1 milljarðs íslenskra króna á
þeim tíma. Lánið var veitt í tengslum við
efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var
af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þetta var
fyrsta tvíhliða lánið til Íslands af þessu tagi
en síðar sama ár voru undirritaðir láns-
samningar við stjórnvöld í Póllandi, sem
sýndu Íslendingum vinarhug – sem og við
hin Norðurlöndin. Vissulega studdu stærri
Norðurlandaþjóðirnar okkur þegar að
kreppti en lán færeysku landsstjórnarinnar
var, ólíkt hinum, skilyrðislaust. Á þessum
tíma, þegar Íslendinga skorti sárlega gjald-
eyri, sameinuðust allir stjórnmálaflokkar í
Færeyjum um gjaldeyrislánið sem tekið var
af innstæðu færeyska landssjóðsins.
Þessu frumkvæði og vinarhug Færeyinga
gleyma Íslendingar ekki. Vinátta og frænd-
skapur þessara tveggja fámennu eyþjóða
stendur á gömlum merg. Engin þjóð er okk-
ur skyldari en sú færeyska. Menning, saga
og tunga beggja þjóðanna er samtvinnuð.
Samskiptin hafa verið náin, einkum á sviði
menningar og viðskipta. En þau mega vera
enn nánari og þau ber að auka. Liður í því
aukna samstarfi var ráðstefna sem Fær-
eysk-íslenska viðskiptaráðið og ráðuneyti
fjármála og atvinnu- og nýsköpunarmála
héldu í Þórshöfn síðastliðinn þriðjudag
um samstarfsmöguleika og nýsköpun.
Með þátttöku í ráðstefnunni vildu íslensk
stjórnvöld stíga mikilvægt skref til frekari
eflingar samstarfs ríkjanna og sýna með því
þakklæti í verki. Á það lögðu ráðherrarnir
Katrín Júlíusdóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son áherslu.
Samhliða ráðstefnunni var gengið frá
viljayfirlýsingu landsstjórnar Færeyja og
ríkisstjórnar Íslands um aukna samvinnu
þjóðanna. Sú samvinna byggist ekki síst á
grundvelli fríverslunarsamnings landanna
en stefnt er að því að víkka út samstarf á
öllum sviðum þar sem gætir sameiginlegra
hagsmuna. Færeyjar hafa löngum verið
mikilvægur markaður fyrir íslenskar vörur.
Hann er af hentugri stærð fyrir mörg ís-
lensk fyrirtæki. Fríverslunarsamningurinn,
svokallaður Hoyvíkursamningur, er víð-
tækasti viðskiptasamningur sem Íslending-
ar hafa gert. Hann tekur til vöruviðskipta,
þjónustuviðskipta, frjálsrar farar fólks og
búseturéttar, fjármagnsflutninga og fjár-
festinga, samkeppni, ríkisaðstoðar og opin-
berra innkaupa. Í samningnum er kveðið á
um fulla fríverslun með landbúnaðarvörur
en Færeyjar hafa lengi verið mikilvægur
markaður fyrir lambakjöt. Fiskveiðisamn-
ingur milli Íslands og Færeyja er endur-
nýjaður reglulega en samkvæmt honum fá
færeysk skip endurgjaldslaust heimild til
loðnuveiða í íslenskri lögsögu. Sú heimild á
rætur að rekja til kreppunnar í Færeyjum í
byrjun tíunda áratugarins.
Í hinni nýju viljayfirlýsingu er áhersla
lögð á að varðveita sameiginlega menn-
ingararfleifð þjóðanna tveggja og viðhalda
þeim vinarhug og samkennd sem ríkir í
samskiptum þeirra. Í henni er sérstaklega
vikið að sameiginlegum hagsmunum á sviði
orkumála. Þar er því sérstaklega fagnað að
hafin er samvinna milli Færeyinga og Ís-
lendinga um hugsanlega kosti þess að eiga
viðskipti með endurnýjanlega orku um sæ-
streng milli landanna.
Þar geta Íslendingar, þegar fram líða
stundir, hugsanlega endurgoldið vinar-
greiðann. Vin sínum skal maður vinur vera
og gjalda gjöf við gjöf.
Viljayfirlýsing um aukna samvinnu Íslendinga og Færeyinga
Vin sínum skal maður vinur vera
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Næðir um storminn
Ég myndi ekki gráta það að
fá meiri hita.
Sigurður Þ. Ragnarsson,
betur þekktur sem Siggi
stormur, sér fram á leið
indaveður næstu daga.
Hjakkað í fari
Ég var fastur þarna í fimm tíma.
Fréttamaðurinn vaski Þorbjörn Þórðar
son sat fastur í blindbyl á Vesturlandsvegi
í óveðrinu á miðvikudag. Hann lét sig
þó ekki muna um að stíga út í óveðrið
og gera stutt fréttainnslag um þúsundir
fastra bíla.
Blaðurbyltingin
Þetta heitir valdarán, eins
og margir hafa bent á.
Köllum hlutina réttum
nöfnum.
Þorvaldur Gylfason er
óánægður með að stjórnar
skrárfrumvarpið er falla á tíma
eftir mikið japl, jamm og fuður á þingi.
Aumingjagæskan
Satt best að segja finn ég
svolítið til með þeim sem
ætla að kjósa Framsókn-
arflokkinn – eða segjast
ætla að gera það.
Samfélagsrýnirinn og
ofurbloggarinn Lára Hanna
Einarsdóttir furðar sig á fylgisaukningu
Framsóknarflokksins.
Hvar fékkst þú prófið?
Þetta var aðallega skemmtileg lífs-
reynsla.
Haukur Ingi Hjaltalín lenti í tveimur
árekstrum á leið til vinnu í óveðrinu, á sitt
hvorum bílnum.
Lyfleysa
Ég sagði við yfirmann lyfjamála og
fjármálastjórann að við skyldum halda
þessu leyndu fyrst um sinn til þess að
skapa ekki ótta.
Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi
forstjóri Landspítalans, upplýsir um
ófremdarástand á spítalanum í hruninu.
Á stjórnar kránni?
Á hvers konar pólitísku fylliríi hafa
þeir verið þegar þeir skrifuðu þennan
texta og kópíeruðu hann upp úr fornum
ritum sem voru til fyrir
mörgum áratugum þegar
slík hugsun var kannski
á sveimi hjá hægri
mönnum á Íslandi og
framsóknarmenn hafa
gert að sínum í dag?
Björn Valur Gíslason,
þingmaður VG, húðskammaði
Ásmund Einar Daðason á þingi fyrir
breytingartillögu framsóknarmanna á
auðlindaákvæði nýrrar stjórnarskrár.
Sama knérunn
Þetta stendur allavega mjög tæpt.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar,
gefst ekki upp og hefur aftur lagt fram
vantraust á ríkisstjórnina.
Gangi þér vel!
En ég lýsi hér eftir hugrekki og heiðar-
leika á Alþingi og að menn standi við
það sem þeir lofa.
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, hvikar hvergi í
stjórnarskrármálinu og grunar stjórnar
þingmenn um græsku og heigulshátt.
Vikan sem Var
Diamond
Gloss
Sjampó og
hárnæring
Inniheldur demants
agnir sem gefa
mikinn gljáa og
fljótandi keratín
sem gerir hárið
létt og mjúkt.
G I S T I N G
í Stykkishólmi
Gæðagisting í Stykkishólmi í vetur um helgar
og vikuleiga næsta sumar.
Öll nútíma þægindi og heitur pottur.
Frábær staðsetning í miðjum bænum.
Göngufæri í sund. Frítt golf!
Veitingastaðir á heimsmælikvarða.
Uppl. www.orlofsibudir.is og 861 3123
Gunnar Helgi fyrsti sigurvegari MasterChef
á Íslandi leikur listir sínar á Nauthól.
MasterChef
matseðill á Nauthól
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is s. 599 6660
FYRSTA
SVANSVOTTAÐA
VEITINGAHÚSIÐ
Á ÍSLANDI
Borgartúni 36 - s: 5889747 - www.vdo.is
25-70%
Útsalan er hafin!
Frábært verð og flottar vörur
Nasran-fatnaður 40% afsláttur • Motocrossfatnaður 60% afsláttur • Motocrossstígvél barna 35% afsláttur • Motocrossdekk 50% afsláttur
Loft, olíusíur og handföng krossara 60% afsláttur • Hjálmar 25-70% afsláttur • Fjórhjólastígvél ATV One 40% afsláttur
10 viðhorf Helgin 8.-10. mars 2013