Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 17

Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 17
U ndirritaður hefur starfað í ferðaþjónustu og víðar við ráðgjöf, markaðsmál, rannsóknir, þ.m.t. útgáfu Visitor´s Guide bóka og vefsíðna í um 20 ár. Stór hluti af verkefnum hafa verið markaðskannanir meðal erlendra ferðamanna á Íslandi, auk rann- sókna og ráðgjafar í tengslum við ímynd Íslands og íslenskra vara og þjónustu erlendis, auk þess að senda reglulega út fréttir. Mikið hefur borist síðastliðin ár af jákvæðum fréttum af ferðaþjónust- unni og mætti í fyrstu halda að í greininni ríkti velsæld og þar væri allt í blóma. Raunin er hins vegar sú að arðsemi er mjög lág, gjald- þrot talsvert tíð og vinnutímafjöldi mikill, ekki síst hjá starfsfólki og eigendum gististaða. Einnig er mikið offramboð á mörgum sviðum, enda trekkir greinin að, sökum jákvæðra frétta og vissu- lega er skemmtilegra að vinna þar en víða. Þá eru laun og framleiðni fremur lág eins og reyndar í mörg- um þjónustugreinum á Íslandi. Algengt er að ferðaþjónustuað- ilar eða birgjar eiga inni miklar og vaxandi upphæðir hjá aðilum sem selja fyrir þá ferðir. Dæmið í greininni er um fyrirtækið Icelandic Travel Assistance (ITA) og uppgang þess frá 2004 til 2012 sem endaði með nauðasamningum síðasta vor þegar heildarskuldir fyrirtækisins voru orðnar um 200 milljónir. Mest voru það skuldir við ferðaþjónustuaðila sem fyrir- tækið seldi ferðir fyrir. Þess ber að geta að vorið 2012 tóku nýir aðilar við rekstri þar og rekstur var færður í skikkanlegt form og greiðslur hafa borist til ferðaþjón- ustuaðila frá þeim tíma. Upp- gangur og útþensla ITA var hraður og fyrirtækið færðist mikið í fang á stuttum tíma. Í upphafi fékk það aðstöðu í Höfuðborgarstofu, Aðal- stræti – upplýsingamiðstöð ferða- mála fyrir bókunarþjónustu árið 2004 eftir útboð, þar sem það var með hæsta tilboðið. Á Skarfabakka í Faxaflóahöfnum var ITA með af- greiðslu og verslun. Við útboð árið 2008 var fyrirtækið með hæsta til- boðið. Á Radisson Blu Hótel Sögu, Reykjavik Natura og á Hilton var fyrirtækið með söluskrifstofur og búðir frá 2007. Í Lækjargötu var ITA með aðstöðu 2009 til 2011 yfir háönn. Á BSÍ hefur fyrirtækið haft aðstöðu frá 2010. ITA hefur einnig stundað vefsölu og lagt mikla peninga í þá markaðssetningu. Í Bankastræti var fyrirtækið með aðstöðu sumarið 2011 og í Leifs- stöð var ITA með aðstöðu frá 2011, og sá í rauninni um upplýsinga- miðstöðina í Leifsstöð. Opnuð var verslun á Akureyri þar sem sala á varningi fór fram sumarið 2011. Fyrirtækið fyrirhugaði einnig að opna við gömlu höfnina 2011. Á þessu má sjá að umsvifin voru veruleg og má álykta að þar hafi kapp ráðið, fremur en forsjá. ITA hefur í gegnum tíðina notað bæklinginn City Guide til að kynna fyrirtæki og selja auglýsing- ar, enda í eigendahópi þess miðils í gegnum árin. Afþreyingarfyrir- tæki voru jafnvel látin taka aug- lýsingar í City Guide upp í skuldir. Fyrirtækið beitti samkeppnis- hindrunum á sölustöðum og upp- lýsingamiðstöðum til að ákveðnir miðlar væru ekki sýnilegir. Ýmsar spurningar hljóta því að vakna í sambandi við þessa útþenslu, einkum frá árinu 2010 þegar ljóst var að fyrirtækið ITA væri komið með markaðsráðandi stöðu, þrátt fyrir að heyra oft um stórar skuld- ir við aðila sem þeir seldu ferðir fyrir. Hvernig gat þetta gerst, að fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja þurfi að afskrifa alls um tæplega Kafað undir yfirborðið Raunveruleikinn í ferðaþjónustu 150 milljónir og fá aðeins greitt 25% af höfuðstól skulda eftir nauðasamninga?. Hvernig var eftirlitshlutverk Höfuðborgar- stofu og borgarinnar í þessu sambandi háttað, eins og kveðið er á um í útboðsskilmálum? Var eiginfjárhlutfall ITA skoðað þegar fyrirtækið hefur fengið framlengingu á aðstöðu inn í Höfuðborgarstofu í Aðalstræti og á Skarfabakka? Hve mik- inn arð tóku eigendur ITA út? Hefur það verið í samræmi við lög um arð sem hlutfall af eigin fé? Hefði SAF ekki átt að skoða þetta mál og beita sér í mál- inu? Svona háar afskriftir aðila í ferðaþjónustu eru alvarlegt mál fyrir greinina. Þær hafa það í för með sér að arðsemi og framlegð innan greinarinnar lækkar, hugsan- lega lækkun launa starfsmanna og auknir vinnu- tímar. Einnig minnkar framleiðni í formi þess tíma sem hefur farið í það að elta nauða- samninga sem fyrir- tækið bauð. Í versta falli hafa fyrirtæki farið í þrot eða hætt starfsemi af þessum ástæðum. Þetta er því miður dæmi um hinn blákalda veruleika sem greinin býr við þegar kafað er undir yfirborðið. Hákon Þór Sindrason rekstrarhagfræðingur, framkvæmdastjóri hjá NETIÐ markaðs- & rekstrarráðgjöf Hvernig var eftirlitshlutverk Höfuðborgarstofu og borg- arinnar í þessu sambandi háttað, eins og kveðið er á um í útboðsskilmálum? Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS F í t o n / S Í A Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR til formanns og stjórnar stendur yfir. Hægt verður að kjósa til kl. 12.00 á hádegi 15. mars nk. Láttu þig málið varða og hafðu áhrif. Nánari upplýsingar finnur þú á www.vr.is Kosning til formanns og stjórnar VR er hafin! Helgin 8.-10. mars 2013 viðhorf 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.