Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 16
Allt skóla- og frístundastarf tekur mið af mannrétt- indastefnu borgarinnar og reynt er að vinna gegn óæski- legum staðalmyndum og klámvæðingu. É g kvarta ekki sjálfur undan allri þeirri góðu þjónustu og viðmóti, sem ég hef ætíð notið alls staðar hjá heilsugæsl- unni, hvenær sem ég hef þurft á henni að halda. Hins vegar hefur mér margsinnis verið sagt, að það eigi ekki alltaf það sama við ef að það er kona, sem að óskar eftir að- stoðinni. Getur það virkilega verið að þetta sé rétt? Jafnræði kvenna og karla Það er tíðrætt um að konur njóti ekki sömu kjara og karlar. Ég hef sjálfur rekið fjölmennt fyrir- tæki, þar sem að allir nutu sömu möguleika til frama, allt eftir ástæðum og verðleikum hvers og eins. Laun fylgdu stöðu viðkom- andi, sama hvort kynið átti í hlut og gaf ég út starfsmannahandbók þar sem þetta kom skýrt fram. Ég hef aldrei skilið að annað eigi að viðhafa, enda annað óheiðarlegt og óskynsamlegt og ekki gott að byggja upp lið eða samstarfshóp, þar sem jafnræði ríkir ekki. Sömu laun fyrir sömu vinnu Það er í mannsins eðli að konur og karlar eru ekki eins og því henta sum störf gjarnan öðru kyninu betur. Það þarf ekki að útlista það. Ég hef því oft spurt sjálfan mig, þegar talað er um meint launamis- rétti kynjanna, hvort að skýringin liggi ekki einkum í því, að verið sé að bera saman epli og appelsínur, en hef aldrei fengið viðhlítandi skýringu þar á. En hitt væri ekki gott, ef verið er að greiða mismun- andi laun fyrir sömu störf á sama vinnustað. Breytum til góðs Það er sama hvar á það er litið, að þá eru öfgar sjaldnast réttmætar. Ef að það er þannig, að raunveru- leg mismunun á sér stað, þá er það skylda manna að lagfæra það. Mér finnst að forsvars- menn fyrirtækja ættu að hugsa til þess, hve mikilvægt það er að fá það besta úr öllum og skapa góð teymi og skynsemi þess að veita stöðuhækkanir sínar og launakjör með það að markmiði. Ég veit það ekki og ætla ekki að ásaka, en ef að það er mismunun í gangi hjá læknum og hjúkrunar- liði á sjúklingum eftir kyni, aldri þeirra eða hvaðeina, þá er það aug- ljóslega hið allra alvarlegasta mál, sem að með ráðum og dáð verður að uppræta. Það hlýtur að vera, að allt réttsýnt fólk sé því sammála. XG - Hægri grænir, flokkur fólks- ins vill taka á öllum slíkum málum hjá hinu opinbera, ef hann nær nægilegu brautrargengi til þess að geta haft áhrif þar á. Konur og karlar Fá þau sömu þjónustuna í heilbrigðisgeiranum? Kjartan Örn Kjartansson Fyrrverandi forstjóri S kilaboð til barna og unglinga frá margvíslegum miðlum eru fjöl-breytt. Afþreyingariðnaðurinn, tískuheimurinn, auglýsingar, bíómyndir og tónlistarmyndbönd draga gjarnan upp mynd af fólki sem tæpast nokkur getur uppfyllt. Aðgengi barna og unglinga að ofbeldisfullu klámi er mikið og aftur- haldssamar og brenglaðar staðalmyndir um hlutverk kynjanna eru síður en svo á undanhaldi. Margar mælingar benda til þess að unga fólkið eigi erfitt með að fóta sig í þessari bylgju skilaboða. Ranghug- myndir um hlutverk kynjanna, útlitskröf- ur og kynhegðun eru staðreynd, fyrstu skref kynlífsreynslunnar geta verið sár því bæði strákar og stelpur hafa orðið fyrir miklum áhrifum fyrirmynda úr afþreyingar og klámiðnaði, sem eiga lítið sameiginlegt með raunveruleikanum. Óraunhæfar kröfur og óljós mörk valda hugarangri, stúlkur virðast vera meira útsettar fyrir kröfunum sem birtist m.a. í merkjanlega meiri kvíða í þeirra hópi, lélegu sjálfsmati og í verstu tilfellum átröskun og öðrum neikvæðum birtingarmyndum útlitsdýrk- unar. Áhrif foreldra Áhrifavaldar í lífi barna og unglinga eru foreldrar, skólinn, jafningjar og vinir, aðilar sem vinna með frítímann, fjölmiðlar og markaðsöflin. Hver og einn þeirra gegnir mikilvægu hlutverki en grundvallar- atriði er að þekkja vel í hverju það felst. Foreldrar eru mikilvægustu fyrirmyndir barna og félags- mótun, þ.m.t. mótun kynverundar, hefst um leið og barn kemur í heiminn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að foreldrar eru að meðaltali tveimur árum of seint á ferðinni þegar kemur að því að ræða við börn sín um kynlíf. Rannsóknir sýna líka að fræðsla foreldra er mikilvægust og kynfræðslan þarf að eiga sér stað áður en börn verða kynþroska. Leggja ber áherslu á jákvæðar hliðar kynlífs, ábyrgð, mörk og virðingu. Það kemur mörgum foreldrum á óvart að flest börn sjá klám á netinu í fyrsta sinn á aldrinum 10-13 ára, mikið af því er mjög ofbeldis- fullt sem getur haft verulega neikvæð áhrif á börn og unglinga. Kynjafræði í kennaramenntun Reykjavíkurborg býr yfir miklum mann- auð í starfsfólki sem leggur alúð í að styrkja sjálfsmynd barna og unglinga með margvíslegum hætti. Í samstarfi við samtök foreldra hefur borgin styrkt nám- skeið fyrir fjölskyldur um kynfræðslu og kynhegðun og mörg verkefni í skóla- og frístund- astarfi lúta að upplýstri umræðu um flókna tilveru ungs fólks í dag. Allt skóla- og frístundastarf tekur mið af mannréttindastefnu borgarinnar og reynt er að vinna gegn óæskilegum staðalmyndum og klám- væðingu. Þriggja ára verkefni sem snýr að jafnrétt- isfræðslu til alls starfsfólks skóla- og frístundasviðs stendur yfir. Borgin tekur alvarlega þá lagaskyldu að fræða nemendur frá unga aldri um jafnréttismál og samþætta kynjasjónarmið í öllu starfi. Fræðsla til kennara og starfsfólks sem vinnur með börnum er skref í þá átt enda þarf starfsfólk að búa yfir þekk- ingu á jafnréttismálum til að geta miðlað henni. Á skólum hvílir nú sú ljúfa skylda að innleiða grunn- þætti menntunar, með nýjum aðalnámskrám. Einn þeirra er jafnréttisfræðsla. Lykillinn að því er að kynjafræði verði skyldufag í kennaranámi, öðruvísi er erfitt að ætlast til þess að kennarar sinni jafn- réttisfræðslu, eða samþætti hana sínum greinum. Grunnurinn er þekking og án hennar tekst okkur ekki vel upp í baráttunni gegn áhrifum klámvæðing- ar og óæskilegra staðalmynda á börn og ungmenni. Jafnrétti í bráð og lengd verður ekki náð öðruvísi. Vinna gegn óæskilegum staðalmyndum og klámvæðingu Borg stelpna og stráka Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi og formaður skóla- og frístundaráðs Það er í mannsins eðli að konur og karlar eru ekki eins og því henta sum störf gjarnan öðru kyninu betur. Það þarf ekki að útlista það. RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR ENDA SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 5 6 4 * E yð s la á 1 0 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – Bílasala Akureyrar / 461 2533 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK. 16 viðhorf Helgin 8.-10. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.