Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 57

Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 57
É g man ekki nákvæmlega hvað ég sagði uppi á svið-inu. Það var kannski svolítið svona í „heat of the moment“ en það vakti athygli okkar að það var ekki nein stelpa að spila og við gerðum athugasemd við það, þar sem við erum að sjálfsögðu femín- istar og umhugað um jafnrétti á öllum sviðum,“ segir Arnar Freyr Frostason, einn meðlima hljóm- sveitarinnar Úlfur Úlfur. Strák- arnir spiluðu ásamt fleiri þekktum aðilum á SAMFÉS ballinu um síðustu helgi við mikinn fögnuð viðstaddra. Það vakti athygli þegar þeir gerðu athugasemd við skort á kvenlistafólki á ballinu en enginn kona spilaði á hátíðinni í ár. Strák- unum þótti þetta skjóta skökku við svo þeir tóku málin í sínar hendur og tóku með sér söngkonuna Hildi Kristínu úr Rökkurró á sviðið. Hún var svo kynnt sértaklega inn sem framlag sveitarinnar til að jafna kynjahalla hátíðarinnar. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttatímans var uppátækinu afar vel tekið. Samtök félagsmiðstöðva (SAM- FÉS) standa árlega fyrir því þegar að 4.500 unglingar koma saman í Laugardalshöll á SamFestingnum. Hljómsveitin Úlfur Úlfur, Jón Jóns- son, Páll Óskar og plötusnúðurinn Heiðar Austmann komu þar fram síðasta föstudag. Í ár skapaðist töluverð umræða vegna settra fatareglna á ballinu en ungmennunum sem hugðust mæta var gert að klæða sig innan ákveðins ramma. Þannig hugð- ust aðstandendur koma í veg fyrir ósæmilegan klæðaburð og hegðun ungmennanna samkvæmt því. „Ég vissi ekki að þetta hefði vak- ið neina sérstaka eftirtekt en það er auðvitað ekki nema gott mál og það er frábært ef að þetta hefur náð inn til einhverra krakkanna. Það er auðvitað ekki hægt annað en að vekja athygli á svona löguðu árið 2013. Það er ekki nema sjálf- sagt,“ segir Arnar Freyr. Í samtali við Fréttatímann segir Björg Jónsdóttir, framkvæmda- stýra SAMFÉS, að þetta hafi ekki verið mistök heldur val krakkanna sjálfra. „Þegar við veljum listamenn þá er það í höndum ungmennaráðs að setja saman lista. Við setjum listann svo á Facebook og látum krakkana kjósa. Það sem þeir velja  SAMFÉS HljóMSveitin ÚlFur ÚlFur Með FeMiníSkAn gjörning Vöktu athygli á kynjahalla Á nýafstöðnu balli, Samfestningnum sem er árlegur viðburður á vegum Samtaka félagsmið- stöðva, vakti athygli að strákasveitin Úlfur Úlfur gerði hlé á tónleikahaldi sínu til þess að hafa orð á því hve hlutur kvenna var bágborinn á meðal skemmtikrafta kvöldsins. Þeir bættu svo um betur og buðu velkomna á svið unga söngkonu, til að rétta við hlutföllin að þeirra sögn. Fram- kvæmdastýra SAMFÉS segir þetta ekki mistök heldur val krakkanna sjálfra. Strákarnir í Úlfur Úlfur vöktu athygli á kynjahalla á Samfés hátíðinni. Einn meðlima segir það ekki nema sjálfsagt mál að gæta að hlut kynjanna árið 2013. er yfirleitt mikið stuð og það eru bara færri þannig stúlknasveitir,“ segir Björg. Hún bendir á að á ári hverju sé þetta umhugsunarefni og það sé leitt að ekki takist betur til. Hún segir jafnframt að í boði sé að unglingar spili sem plötusnúðar fyrsta klukkutímann á ballinu og um það þurfi þau að sækja. Þar sæki stúlkur einnig síður fram. Aðspurð segir hún þó alla hafa farið sátta frá ballinu og það tekist einkar vel til. Aðeins hafi þurft að hafa afskipti af einni stúlku á ball- inu en sú var ekki alveg tilbúin að fara eftir settum reglum um klæða- burð. Það hafi þó leyst farsællega á staðnum. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Flug Dublin 28. mars – 1. apríl Verð frá 39.900 kr. Bilbao 28. mars – 1. apríl Verð frá 59.900 kr. Madrid 1. – 5. maí Verð frá 59.900 kr. Róm 25. – 29. apríl Verð frá 64.900 kr. dúndur tilboði! ferð.is • sími 570 4455 sæ ti á Innifalið: flug fram og til baka með sköttum. júgðu fyrir minna ÍS LE N SK A S IA .I S F E R 6 32 20 0 3/ 13 KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS 20 ÞÚSUND króna umgjörð á 199 krónur! - Ef þú kaupir glerið hjá okkur Næstum allar aðrar umgjarðir á 50% afslætti SPILAR ÞÚ STYRKIR OKKUR ÞEGAR ÞÚ Þegar þú spilar í kössunum okkar styrkir þú Rauða krossinn, SÁÁ og Slysavarnafélagið Landsbjörg. dægurmál 57 Helgin 8.-10. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.