Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 30
„Umönnun barns er samvinnu- verkefni foreldra. Hins vegar hefur móðirin nokkra sérstöðu fyrstu mánuðina sem gefur henni ákveðið forskot,“ segir Sæunn Kjartansdóttir sálgrein- ir. „Vegna þess að hún gengur með barnið er hún oft tengd því sterkum tilfinningaböndum og barnið þekkir hana betur en aðra þegar það fæðist, það þekkir til dæmis lykt hennar, rödd og hjartslátt,“ segir hún. Að öðru leyti séu feður, fóstur- foreldrar, afar og ömmur ekki síður hæfir til að sinna hlut- verki móðurinnar. „Aðalatriðið er að manneskjan gefi sig að barninu af heilum hug og stilli sig inn á þarfir þess. Þó svo að hlutverk mömmu og pabba séu ólík til að byrja með geta þau með tímanum æ meira komið hvort í annars stað. Þau eru barninu bæði mikilvæg en ólík- ar manneskjur og þess vegna myndar barnið ólík tengsl við þau,“ segir hún. Feður leita sér einnig hjálpar hjá Miðstöð foreldra barna, þótt tilvikin séu mun færri en mæðranna. Mikilvægt er þó að pabbarnir komi með í með- ferð þegar vandamál skapast í tengslamyndun milli móður og barns. „Það er ótrúlega gott þegar pabbarnir koma með,“ segir Stefanía Arnardóttir heilsugæsluhjúkrunarfræðing- ur. „Það gerist eitthvað líka á milli föður og barns. Það verð- ur annar skilningur eða jafnvel önnur sýn. Stundum er líka togstreita á milli foreldranna sem kemur í vega fyrir það að þau geti almennilega gefið sig að barninu. Við höfum unnið með slíkt og það getur alveg tekið fókusinn um tíma. Því ef það verður mikil togstreita þeirra á milli þá verður barnið svolítið útundan,“ bendir hún á. „Einn pabbinn sagði við mig þegar hann kom í fyrsta tímann sinn að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum þegar að barnið fæddist. Hann hefði ekki fund- ið neina gleði hann hefði haldið að þetta yrði svo gaman, en hann leit á þetta sem verkefni, sagði hann. Eftir nokkrar vikur fór hann að tengjast barninu og barnið honum og þá fór þetta að verða gaman. Maður hefur alltaf gaman að því að sjá breyt- inguna á samskiptunum. Finna augnkontakt, bros og ánægju sem ekki var til staðar áður,“ segir Stefanía. Þrír af stofnend- um MFB, Helga Hinriksdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og ljós- móðir, Stefanía Arnardóttir heilsugæslu- hjúkrunarfræð- ingur og Sæunn Kjartansdóttur sálgreinir. Fjórði stofnandinn er Anna María Jóns- dóttir geðlæknir. Ljósmynd/Hari getur hjálpað mikið að vinna með móður- inni og barninu strax eftir fæðingu,“ segir Helga sem hefur unnið við meðferð þunglyndissjúklinga í aldarfjórðung. Þykir ekki vænt um börnin sín Mæður geta upplifað svo mikið þunglyndi og vanlíðan að þær eru ekki í stakk búnar til að sjá um barnið sitt, þær ráða hrein- lega ekki við verkefnið. „Sumar konur tala um að þeim þyki ekki vænt um börn- in sín, þær finni ekki fyrir þeim tilfinn- ingum sem þær eiga að finna fyrir,“ segir Stefanía. Þetta getur gerst hvort sem er strax á meðgöngu eða eftir fæðingu barnsins. „Öðrum líður einfaldlega of illa til þess að geta lesið í tjáningu barnsins og brugðist við til þess að uppfylla þarfir þess. Þeim líður svo illa að þær sitja ef til vill og stara út í loftið og veita barninu ekki athygli, heyra ekki í því. Börnin skynja þetta mjög fljótt, jafnvel aðeins fáeinna vikna gömul. Þau verða óróleg, sofa ekki, nærast illa eða of mikið og gubba jafnvel mikið,“ segir Stefanía. „Það er þessi birtingarmynd sem við lesum í og vinnum með. Er þörfum barnsins full- nægt? Hvernig er samskiptum móður og barns háttað? Eru þau í lagi?“ segir Helga. Með þessu eru þær að reyna að koma í veg fyrir svokallað tengslarof og stuðla að öruggum tengslum. „Það sem einkennir örugg tengsl er það að móðirin eða foreldrarnir, séu næm á barnið, lesi í þarfir þess og bregðist við þeim á viðeigandi hátt. Oft gerist það að foreldrið er of upptekið af eigin vanlíðan og yfirfærir þarfir sínar á barnið, ef móð- irin er þreytt heldur hún að barnið sé það líka. Hún nær ekki að lesa í þarfir þess og kemur þannig í veg fyrir að þessi öruggu tengsl myndist,“ segir Helga. Geta ekki horfst í augu við móður sína Dæmi eru um það að mjög ung börn, allt niður í þriggja mánaða, geti ekki horfst í augu við móður sína. Þau fá kannski ekki viðbrögð frá móðurinni vegna þess að hún þjáist af svo mikilli vanlíðan að hún sýnir barninu engin svipbrigði þegar það leitast eftir athygli frá henni. Hún brosir ekki til þess og talar ekki við það og upp- lifir barnið það sem höfnun og forðast því að horfast í augu við móður sína. Mæður koma til þeirra sem finna jafn- vel enga væntumþykjutilfinningu í garð barns síns. Þær segjast ekki skilja það eða þekkja það. Þær upplifa sig í þeirri stöðu að þær séu bundnar yfir einstak- lingi sem þær þekkja ekki en tekur frá þeim alla orku. Þær eru oft haldnar rang- hugmyndum um barnið og viðbrögð þess og trúa því að kornungt barnið sé jafnvel að refsa þeim fyrir að þær standi sig ekki í móðurhlutverkinu. „Kona sem kom til mín fyrir skömmu hafði óvart klippt í fingur lítils sonar síns þegar hún var að klippa á því neglurnar svo það blæddi úr. Hún sagði að barnið væri enn reitt við hana og horfði á hana grimmdaraugum. „Sérðu hvernig hann horfir á mig?“ spurði hún mig. Auðvitað hefur ungbarn engar slíkar meiningar en þetta snýst um hvernig móðirin túlkar barnið og tjáningu þess. Hún óttast að barnið sé að dæma sig, og við reynum að leiðrétta það,“ segir Sæunn. Móðirin sem ræddi við Fréttatímann segir að henni hafi þótt dóttir sín sífellt vera að segja sér hversu óhæf hún var sem móðir. „Mér fannst hún alltaf vera að kvarta undan mér, að ég kynni ekki að halda á henni, að ég skildi hana ekki,“ segir hún. „Ég var farin að gráta frá morgni til kvölds því ég kunni þetta ekki,“ segir hún. „Hún grét bara hjá mér og fór alltaf að gráta um leið og ég tók hana upp ef hún var ekki grátandi fyrir. Hún grét ekki hjá pabba sínum,“ segir hún. Hún segist gera sér grein fyrir í dag að hún hafi verið full af ranghugmyndum. „Ég lét undan þrýstingi um að fara út í göngutúr með barnið í vagni daglega en það reyndist mér of erfitt. Þegar barnið grét í vagninum fannst mér allur heim- urinn horfa á mig og dæma mig fyrir að geta ekki hugsað um barnið mitt. Ég hljóp þá heim og fór ekki út í marga daga á eftir,“ segir hún. Læra að lesa í tjáningu barnsins Meðferðin gengur meðal annars út á það að hjálpa móðurinni að lesa í tjáningu barnsins og upplifa og þar með treysta því að hún geti hjálpað barninu að hætta að gráta með því að sinna því á réttan hátt. „Ég veit núna að hún hættir að gráta. Ég get huggað hana. Ég vissi það ekki áður,“ segir hún. Einnig eru börnin oft orðin svo óvær að þau una sér ekki augnablik ein. Stundum geta börnin þurft að læra að treysta móð- urinni. Jafnframt getur þurft að hjálpa móðurinni að átta sig á hversu mikilvægt það er að bregðast við þörfum barnsins. Ungbörn eru ekki óþæg, ef þau gráta þarf að sinna þeim. Það getur hins vegar verið snúið að átta sig á hvað það er sem þau þarfnast. Í slíkum tilvikum getur verið gott að fá einhvern utanaðkomandi til að hugsa hlutina með sér. Móðirin segist hafa forðast það strax á sængurkvennadeildinni að sinna barninu sínu, það sjái hún eftir á. „Ég hringdi bjöllunni og bað um hjálp um leið og hún fór að gráta. Ég vildi heldur að einhver annar en ég skipti á henni. Sem betur fer hefur það breyst og ég veit að það er eng- inn betri en ég að sinna henni,“ segir hún. Þær segja mjög mikilvægt að opna umræðuna um þessi mál þannig að konur finni að það sé í lagi að tala um þau. „Ég hef talað við mæður sem þorðu ekki að nefna þessar tilfinningar sínar á heilsu- gæslunni af ótta við að þær fengju stimpil á sig. Þær óttuðust jafnvel að barnið yrði tekið af þeim og sú hugsun varð til þess að auka enn á vanlíðan þeirra og vanda- málið óx,“ segir Helga. „Það er nauðsyn- legt að koma konum í skilning um að það sé til hjálp og að þær verði ekki dæmdar,“ segir hún. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Pabbar þurfa líka hjálp Sumar konur tala um að þeim þyki ekki vænt um börnin sín, þær finni ekki fyrir þeim tilfinningum sem þær eiga að finna fyrir. 30 úttekt Helgin 8.-10. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.