Fréttatíminn - 08.03.2013, Síða 23
Rakel Garðarsdóttir framleiðir þættina
Ferðalok sem tengja vissa atburði úr
Íslendingasögunum við fornminjar sem
hafa fundist á Íslandi. Hún sér fram á að
geta selt þættina til útlanda enda áhug-
inn á Íslendingum og fornsögunum mikill
víða. Ljósmynd/Hari
Vala Garðarsdóttir Á kafi í íslendinGasöGunum
Skarphéðinn í uppáhaldi
Vala heillaðist ung af Íslendinga-
sögunum og hefur marg lesið þær
og á auðvitað, eins og allir, sína
eftirlætis persónu. Og sá er enginn
aukvisi. „Það er kannski klisja en
ég er mjög hrifin af Skarphéðni
Njálssyni. Hann er svo margbrotinn
og flókinn. Hann svo góður en að
sama skapi er hann grimmur. Hann
rúmar allar andstæðurnar í einum
manni. Gunnar á Hlíðarenda er líka
alltaf í miklum hávegum hjá mér.
Þeir eru andstæður en ég veit ekki
hvort þetta segi meira um mig en
eitthvað annað. Síðan eru náttúrlega
konur eins og Hildigunnur Stark-
aðardóttir sem er einstaklega flott
persóna.“
Fjandvinkonurnar og örlagavaldar
Njálu, Bergþóra og Hallgerður, eru
hins vegar ekkert of hátt skrif-
aðar hjá Völu og hún hallast ekki að
annarri þeirra frekar en hinni. „Hall-
gerður er svo flókin og það er margt
sem fer mikið í taugarnar á mér í fari
hennar. En það er ekki hægt að neita
því að hún sé margbrotin. Kvenna-
ráðin eru köld hjá henni.“
Fornleifafræðingurinn Vala Garðarsdóttir hefur marg lesið Íslendingasög-
urnar og heldur sérstaklega upp á Skarphéðin Njálsson.
Lj
ós
m
yn
da
ri
/H
ar
i
þeirra. „Þetta byrjaði sem minna
verkefni en stækkaði á ferlinum.
Metnaðurinn verður einhvern
veginn svo mikill þegar maður er
byrjaður. Þá finnst manni að maður
þurfi að gera aðeins betur og aðeins
meira. Miðað við svona efni þá
lögðum við upp með lítið fé til að
byrja með en Tryggingamiðstöðin
kom síðan inn með okkur sem fjár-
festir og stuðlaði að því að því að við
gátum gert þetta svona.“
Rakel segir frábært að fá fyrir-
tæki til liðs við kvikmyndagerð á
Íslandi og að hún vonist til þess að
þessi þróun haldi áfram. „Vonandi á
eftir að vera meira um þetta. Það er
mjög jákvæð þróun hérna að fólk sé
farið að sjá fjárfestingartækifæri í
bíómyndum og sjónvarpsefni.“
Þótt þættirnir séu tilbúnir til
sýninga er Rakel ekki komin með þá
á áfangastað enn. „Nú þarf að fylgja
þáttunum eftir og leyfa fólki að sjá
þá. Þeir verða náttúrlega sýndir á
RÚV en við viljum líka koma þeim
í skólana og svo bara út um allan
heim. Eins og sagt er í þáttunum
þá eru Íslendingasögurnar okkar
Shakespeare og mér finnst hafa farið
lítið fyrir þeim upp á síðkastið.“
Rakel er með mörg járn í eldinum
og ýmis verkefni í gangi fyrir utan
Ferðalok. „Ég er að gera bók, Reim-
leikar í Reykjavík, með Steinari
Braga. Hún kemur út með vorinu
og byggir á munnmælasögum um
draugagang í Reykjavík. Alveg ótrú-
lega spennandi. Ég er líka búin að
vera að vinna að heimildarmynd um
nunnurnar í Karmelklaustrinu. Ég
geri hana með Ágústu Ólafsdóttur,
sem framleiddi líka Ferðalok með
mér. Þetta er búið að vera ótrúlega
skemmtilegt ferli en nú er verið að
klippa myndina þannig að hún kem-
ur á þessu ári. Síðan er ég í ýmsum
stærri verkefnum sem ekki er hægt
að segja frá strax.“
toti@frettatiminn.is
Þórarinn Þórarinsson
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
viðtal 23 Helgin 8.-10. mars 2013