Fréttatíminn - 08.03.2013, Qupperneq 40
40 heilsa Helgin 8.-10. mars 2013
heilræði heilbrigður lífstíll
1 Borðaðu að minnsta kosti 5 skammta af
ávöxtum eða grænmeti
yfir daginn. Hálfur bolli
af elduðu grænmeti, einn
af salati eða einn lítill
ávöxtur teljast sem einn
skammtur.
2 Forðastu að drekka kaffi allan daginn.
Hafðu 6-8 glös af vökva
fyrir viðmiðið yfir daginn.
Vatnið er alltaf best og
það má bæta við það
sítrónu. Einnig er gott að
hafa við höndina sykur-
lausa safa, léttmjók eða
jurtate.
3 Reyndu á þig reglulega, líka yfir
daginn. Hin fullkomna
blanda af líkamsrækt
inniheldur þolæfingar,
lyftingar, jóga og alls-
herjar styrktaræfingar,
eins og við sund. Þú
þarft þó ekki að örvænta
yfir því að komast ekki í
ræktina. Taktu stigann
fram yfir lyftuna, teygðu
fyrir framan tölvuna.
4 Skerðu niður óholla fitu úr mataræðinu.
Slepptu feitinni við
eldamennsku og notaðu
frekar ólívuolíu eða
kókosolíu. Slepptu því að
kaupa tilbúnar kjötvörur
og skyndibita. Það er
mjög fituríkur matur án
þess þó að vera orku- og
næringaríkur.
5 Tyggðu matinn þinn betur. Mörg
meltingavandamál, líkt
og þembu, vindgang
og óþægindi í maga má
koma í veg fyrir með
því að tyggja matinn
vandlega. Ímyndaðu
þér bara að allur illa
tugginn matur er óþarfa
aukavinna fyrir maga og
líffæri sem sjá um niður-
brot fæðu.
6Takmarkaðu sykurneysluna.
Sykur hækkar hlutfall
kólesteróls og insúlíns
og getur ofneysla
því leitt til sykursýki
og hjarta- og æða-
sjúkdóma. Sykurneysla
getur einnig haft áhrif á
ónæmiskerfið. Skoðaðu
innihaldslýsingar á
matvælum og vertu
vakandi fyrir leyndum
sykri í formi kornsýróps,
súkrósa, laktósa og
glúkósa.
7 Komdu í veg fyrir beinþyninngu á efri
árum. Borðaðu reglulega
kalkríka fæðu líkt og
léttar mjólkurvörur,
appelsínusafa, grænt
kál, lax og sardínur í dós.
Forðastu að innbyrða
fæðu sem dregur úr
kalki líkt og gosdrykki og
megrunarkúra með háu
prótíninnihaldi.
8 Slappaðu af. Krón-ískt stress getur leitt
til meltingarvandamála,
lélegs ónæmiskerfis, hás
blóðþrýstings og ýmissa
annarra kvilla. Lærðu
rétta öndun, slökun og
hugleiðslu og notaðu við
hvert tækifæri í dagsins
amstri.
9 Sofðu betur. Djúp-svefn er nauðsyn-
legur líkamanum svo
að líffæri og heili geti
gefið þér fullnægjandi
afköst út daginn. Forð-
astu of mikið af koffíni
og alkóhóli og einnig
að borða sykur fyrir
svefninn. Það hefur áhrif
á blóðsykurinn og truflar
svefninn.
10 Þróaðu og hlúðu að tengslanet-
inu. Það að viðhalda
góðu sambandi við þau
sem skipta okkur máli í
lífinu, fjölskyldu og vini.
Þetta eru samböndin sem
næra hjarta, líkama og
sálarlíf.
10 góð ráð til bættrar heilsu
Í kuldakastinu getur
verið erfitt að halda við
heilbrigðum lífsstíl. Það
er freistandi að sleppa
því að fara á æfingu og
fá sér heitt kakó eða
annað þvíumlíkt. Það er
líka allt í lagi svo lengi
sem þú byrjar aftur
á ný eftir að veðrinu
slotar. Hér eru ráð til
þess að hjálpa þér við
að ná þér aftur á strik
eftir frostdoðann.
1
2
3
4
56
7
8
9
10
Nýjar heilsuvörur!
Haf-Ró er slakandi steinefnablanda með náttúrulegu magnesíum
extrakti sem unnið er úr sjó. Inniheldur einnig Hafkalk ásamt B6 og C
vítamínum sem styðja við virkni efnanna.
Magnesíum og kalk í Haf-Ró er í hlutfallinu 2:1 og ætlað þeim sem fá
ekki nægilegt magnesíum úr fæðunni.
Magnesíum er líkamanum nauðsynlegt fyrir jafnvægi vöðva- og tauga-
kerfisins. Magnesíumskortur getur lýst sér í þreytu og streitu og því
getur Haf-Ró gefið slakandi áhrif samhliða aukinni orku.
Hafkrill er hrein hágæða krillolía unnin úr ljósátu sem veidd er á vist-
vænan og sjálfbæran hátt í Suður-Íshafinu. Vinnslan fer fram á sjó til
að tryggja hámarks ferskleika.
Hafkrill inniheldur vatnsuppleysanleg Omega 3 fosfólípíð sem eru
líkamanum auðveldari í upptöku en hefðbundið Omega 3 þríglýseríð
úr fiskiolíu.
Hafkrill inniheldur andoxunarefnið Astaxanthin sem dregur úr sindur-
efnum,viðheldur gæðum olíunnar og gerir viðbætt rotvarnarefni óþörf.
Fæst í lyfja- og heilsubúðum
um allt land!
Skannaðu kóðann og kynntu
þér framleiðsluvörur Hafkalks
Glæsileg gjöf fyrir þig ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 6.900
eða meira í LYFJABORG dagana 7. – 13. mars.
Hitakóf - Svitakóf
Hita- og svitakóf er oft fylgikvilli breytingarskeiðs kvenna
Chello hefur bætt líðan fjölda kvenna á
þessu annars frábæra tímaskeiði.
Chello er náttúrulegt efni og fæst í þremur tegundum:
Chello fæst í heilsubúðum, apótekum
og heilsuhillum stórmarkaðanna
Náttúruleg lausn á
breytingarskeiðinu
www.gengurvel.is
facebook:
Chello fyrir
breytingarskeiðið
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Grænn án
Soja
Rauður fyrir konur
yfir fimmtugt
Blár fyrir konur
undir fimmtugt