Fréttatíminn - 08.03.2013, Side 43
Hönnun Erla SólvEig óSkarSdóttir
heimili & hönnun 43Helgin 8.-10. mars 2013
Einfaldleiki og þægindi að leiðarljósi
Erla Sólveig Óskarsdóttir
iðnhönnuður hefur einfald-
leika og þægindi að leiðar-
ljósi í húsgagnahönnun sinni
enda er hún uppalin í skóla
danskrar hönnunar þar sem
áherslan er á notagildi. Hún
sýnir húsgögn sín á þremur
stöðum á Hönnunarmars.
E rla Sólveig Óskarsdóttir iðnhönnuður verður með sýningu á þremur stöðum
á Hönnunarmars sem fram fer
dagana 15.-17. mars næstkomandi.
Hún verður ein með sýningu á
vinnustofu Kristins E. Hrafnssonar
myndlistarmanns að Grandagarði
27 þar sem hún verður með sýnis-
horn af eigin húsgagnahönnun.
Meðal annars sýnir hún sófann
Dyngju í tveimur stærðum en
sófinn er framleiddur af hús-
gagnafyrirtækinu Onecollection í
Danmörku. Auk Dyngju frumsýnir
Erla Sólveig í Grandagarði sérstök
sófaborð úr stáli, útiborð úr áli og
sófaborð sem hugsuð eru við sóf-
ann Dyngju og eru úr eik og jafn-
vel fleiri húsgögn úr smiðju sinni.
Hún verður einnig með sýn-
ingu í Þjóðmenningarhúsinu þar
sem hönnuðum úr mismunandi
geirum er stefnt saman. Erla sýnir
verk sem hún vann með Sunnevu
Vigfúsdóttur fatahönnuði og er
það í fyrsta sinn sem þær vinna
saman að verkefni, að sögn Erlu.
„Sunneva prjónar meðal annars úr
mokka utan um stól úr stáli sem
ég hef hannað og framleiddir eru
hjá húsgagnafyrirtækinu Á. Guð-
mundssyni,“ segir Erla Sólveig.
Þá tekur hún einnig þátt í sýningu
íslenskra húsgagnaframleiðenda
í Hörpu sem fram fer á Hönnunar-
mars.
Erla Sólveig er alin upp í skóla
danskrar húsgagnahönnunar þar
sem hún lærði iðnhönnun. „Þar
er mikil áhersla lögð á notagildi
og hönnun húsgagna sem henta
til fjöldaframleiðslu,“ segir Erla
Sólveig. Hún hefur að leiðarljósi
við hönnun sína einfaldleika og
þægindi og að hægt sé að fram-
leiða húsgögn hennar á hagkvæm-
an hátt.
Hún segir bagalegt hversu ís-
lensk húsgagnaframleiðsla er
takmarkandi fyrir íslenska hönn-
uði sem þurfi fyrir vikið að láta
framleiða húsgögn sín að mestu
erlendis. „Fá íslensk fyrirtæki
hafa bolmagn í þá þróun sem felst
í framleiðslu nýrra húsgagna enda
tekur það mikinn tíma og kostar
peninga. Flest öll fyrirtæki byrja
sölu á heimamarkaði áður en
hugað er til útflutnings og íslenski
markaðurinn er einfaldlega svo lít-
ill,“ segir Erla Sólveig. Hún segir
Hönnunarmars skemmtilegan
viðburð sem hjálpi til við að vekja
athygli á greininni.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
*P
ró
fu
n
á
há
rn
æ
rin
gu
1
2-
20
11
(Þ
ýs
ka
la
nd
).
n=
12
7
ko
nu
r,
st
að
fe
st
in
ga
rh
lu
tfa
ll:
N
íu
a
f h
ve
rju
m
tí
u.
Úfnir apakettir eða
litlar prinsessur - litlar
stelpur elska að leika
sér með hárið og breyta
um greiðslur. Sally
Brooks er með góðar
hugmyndir fyrir þig
þegar kemur að skemmtilegum greiðslum
fyrir krakka. Fáðu nýjar hugmyndir að hár -
greiðslum fyrir apaketti og litlar prinsessur
með því að skanna QR-kóðann.
„Raki í hári er ómissandi fyrir börn og full -
orðna. Það sem á við um líkamann frá toppi
til táar á einnig við um hárið frá rót til hár-
enda. Snerting hársins verður silki mjúk og
óvið jafnan leg þegar jafnvægi er á raka þess.
NIVEA hleypir nú af stokkunum NIVEA
Hydro Care en með því fær hár þitt
og þinna nánustu allan þann raka sem
nauðsynlegur er á hverjum degi. Hámarks raki fyrir hárið þitt og
nógu milt fyrir börnin þín. Hvílíkur hentugleiki!“
Silkimjúkt hár fyrir alla! Í NIVEA Hydro
Care sjampóinu er einstök blanda
af aloe vera, fljótandi keratíni og
vatnaliljusafa. Aloe vera er auðugt af
náttúrulegum bindiefnum með háu
vatnsinnihaldi. Hér færðu óviðjafnanlega
og öfluga rakaaukningu!
Eftir hárþvott kemur síðasta stig raka-
umönnunar með NIVEA Hydro Care
hárnæringunni. Hún annast hár þitt með
aloe vera, fljótandi keratíni og vatnaliljusafa.
Hárið verður vel
rakafyllt – án þess
þó að þyngja það.
Þú upp lifir fallegt,
silkimjúkt hárið og
nýtur ferska ilmsins.
SILKIMJÚKT HÁR
ER FJÖLSKYLDUMÁL
SALLY BROOKS, ALÞJÓÐLEGUR HÁRSNYRTIR NIVEA
Færustu húðlæknar höfðu umsjón með þróun
NIVEA Hydro Care. Það er svo milt að þú getur
óhikað deilt því með börnunum þínum. Þessi
einstaka gæðablanda úr aloe vera, fljótandi
keratíni og vatnaliljusafa nærir og viðheldur
raka í þurru og þyrstu hári. Með nýju Hydro
Care hárnæringunni er sérstaklega auðvelt að
ná fram silkiáferð hársins og það er auðveldara
að greiða það. Hárið verður svo mjúkt og slétt
að greiðan mun aldrei aftur framkalla tár. Níu af
hverjum tíu konum sem voru spurðar, sögðust
óhikað mæla með vörunni við vini sína.*
MILD OG VÖNDUÐ
RAKAUMÖNNUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SKEMMTILEG
HÁRGREIÐSLA
FYRIR KÁTA
KRAKKA
HORFÐU Á MYNDBANDIÐ