Fréttatíminn - 08.03.2013, Síða 56
Í takt við tÍmann Sara Sigurðardóttir
Sjaldan jafn þakklát og þegar einhver býður mér í mat
Sara Sigurðardóttir er 24 ára stjórnmálafræðinemi sem flutti upp á land frá Vestmannaeyjum fyrir rúmum þremur árum. Hún er
formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, er á Facebook næstum allan daginn og er aðdáandi sjónvarpsþáttanna Girls.
Staðalbúnaður
Ég held að segja megi að fatastíllinn minn
sé afslappaður. Ég klæði mig yfirleitt eftir
því hvað er þægilegt og í hvaða skapi ég er
hverju sinni. Ég er oft í sokkabuxum eða
buxum og víðum og síðum peysum við. Ég
er mjög lítið í þröngu, forðast það alveg.
Þar sem ég er bláfátækur námsmaður
kaupi ég ekki mikið af fötum en ég kann
vel að meta búðirnar sem hafa verið að
spretta upp undanfarið, Suzy Q og Lakka-
lakk. Þar er hægt að fá fín föt á hagstæðu
verði. Annars reyni ég alltaf að versla
mikið þegar ég fer til útlanda. Ég geng
mikið með allskonar hálsmen, þau brjóta
upp „átfittið“ hverju sinni. Ég er hins vegar
ekkert sérstaklega mikil skóáhugamann-
eskja... en maður er jú kvenmaður og það
er alltaf gaman að kaupa sér fallega skó.
Hugbúnaður
Ég hef ekki stundað skemmtanalífið
mikið síðasta árið enda er búið að
vera mikið að gera í námi og vinnu.
Mér finnst samt rosalega gaman að
kíkja út í einn bjór og hitta vini mína
og þá er best að fara í nýja Stúd-
entakjallarann. Hann uppfyllir allar
mínar kröfur. Ef ég fer í bæinn fer
ég á Næsta bar til að tala við fólk
og á Kaffibarinn og Ellefuna
ef ég vil dansa. Ég er dyggur
styrktaraðili World Class
en ég fer þó stundum í
ræktina úti á Nesi. Mér
líður rosa vel þar. Ég
fer af og til í bíó en það
er full dýrt ef maður
hittir ekki á tilboð. Ég er meira fyrir að
horfa á sjónvarpsþætti og er reyndar alger
þáttafíkill. Bestu þættirnir núna eru House
of Cards, Newsroom og Game of Thrones.
Svo er nýjasta uppáhaldið Girls, frábærir
þættir. Mér finnst líka gaman að horfa á
íþróttir, sérstaklega þegar landsliðin okkar
eru að spila. Og svo slær ÍBV-hjartað þegar
liðið er að spila.
Vélbúnaður
Eftir að ég byrjaði í þessu starfi varð ég
algert tækjafrík. Ég keypti mér Samsung
Galaxy síma og iPad, á Moggatilboði. Ég
er því alltaf á netinu í símanum og elska
að geta skoðað tölvupóstinn og Facebook
þegar ég vil. Því miður er Dell-tölvan mín
að hrynja í sundur en ég reyni að láta hana
hanga saman meðan ég klára BA-verk-
efnið. Það var rosa skrítið þegar ég fattaði
að tækin í lífi mínu voru orðin mikilvægari
en margt annað. Ég er til dæmis „onlæn“
á Facebook næstum allan daginn og öll
kvöld enda fer ótrúlega mikið af mínu
starfi fram þar. Við erum með grúppur og
hópa fyrir allt hjá Stúdentaráði. Facebook
er eiginlega nýi tölvupósturinn. Ef maður
ætlar að ná einhverju í gegn þá gerir mað-
ur það í gegnum samfélagsmiðla og við
höfum nýtt okkur það til hins ítrasta.
Aukabúnaður
Ég elska heimamat en elda ekki sjálf. Ég
veit að mamma er ekki hrifin af því en
undanfarið hef ég mikið verið að grípa mat
þegar ég er á hraðferð. Maður lifir bara á
einhverjum ljóshraða og verður að vinna
og borða eftir því. Því verð ég sjaldan jafn
þakklát og þegar einhver býður mér í
mat. Ég reyni að borða alltaf heitan mat í
Hámu í hádeginu en borða þá frekar létt á
kvöldin. Svo fer maður stöku sinnum eitt-
hvað út að borða og gerir vel við sig. Ég hef
rosa gaman af því að fá að lifa og hrærast
í félagsstörfunum og pólitíkinni í gegnum
Stúdentaráð. Ef ég á að nefna einhver önn-
ur áhugamál væru það líklega að ferðast og
hlusta á tónlist. Uppáhaldsstaðurinn minn
er Vestmannaeyjar, mér líður hvergi jafn
vel og þegar ég fer heim til að hlaða batt-
eríin. Ég reyni að labba alltaf í og úr vinnu
og skóla en það er erfitt að vera alveg bíl-
laus í borginni. Því er gott að eiga Græna
djásnið, Toyotu 97 módel, þegar maður fer
út í búð eða í heimsókn til tengdó. Þessi
bíll er reyndar landsfrægur því honum var
stolið í fyrra og þá loguðu allir fjölmiðlar.
Því miður eyðilögðu þrjótarnir mikið og
það hefur kostað mig mikið að laga hann.
En mér þykir vænt um hann og gæti ekki
án hans verið.
Sara útskrifast úr stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands í sumar og stefnir að því að
flytja til útlanda í haust. Ljósmynd/Hari
Mynd Þóris Guðmundssonar af
sýningu á neðri hæð Gerðarsafns.
Myndin er frá 1997 og sýnir börn á
Belovodoskaja hælinu í Kirgistan
verma sig í geislum sólar í óupp-
hitaðri byggingunni á köldum
vetrardegi.
Bestu myndir ársins verðlaunaðar
Sýningin Myndir ársins 2012 verður opnuð í
Gerðarsafni í Kópavogi á morgun, laugardag.
Á sýningunni í ár eru 133 myndir og eru
flokkarnir þeir sömu og undanfarin ár: Fréttir,
íþróttir, portrett, tímarit, umhverfi, daglegt
líf og myndaraðir. Veitt verða ljósmyndaverð-
laun í sjö flokkum og tvö bestu myndskeið
ársins 2012 verða einnig verðlaunuð. Sam-
hliða verða afhent Blaðamannaverðlaun í
fjórum flokkum.
Við sama tækifæri verður opnuð á neðri hæð
safnsins gestasýning Blaðaljósmyndara-
félagsins. Að þessu sinni er það Þórir
Guðmundsson sem sýnir myndir sem hann
hefur tekið í ferðum sínum fyrir Rauða kross
Íslands. Sýningin ber hetið „Á vettvangi
vonar“.
Opnunin er klukkan 15 á laugardag. Sýn-
ingin stendur til og með 28. apríl næstkom-
andi og er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Þetta er í nítjánda skipti sem sýningin er
haldin í Gerðarsafni og hefur sýningin jafnan
verið ein sú fjölsóttasta á safninu.
Laugavegi 25 - S: 553-3003
H ö n n u n a r
h ú s
skemmtilegar fermingagjafir
www.hrim.is
Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur
Mikið úrval af gjafavöru
fyrir dömur og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
®
Léttar
ferðatöskur
Sjá ítarlegar upplýsingar á
www.drangey.is
Kortaveski úr leðri
frá kr. 3900. Nafngylling kr. 1100.
Tru virtu
ál kortahulstur.
Kr. 7200 Kemur í veg fyrir
skönnun á kortaupplýsingum.
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
56 dægurmál Helgin 8.-10. mars 2013