Fréttatíminn - 08.03.2013, Side 58
Sunneva
Sverrisdóttir
fékk hugmyndina
að kynfræðsluþáttunum
þegar hún vann eitt sumar við
að fræða ungt fólk um allt milli himins
og jarðar, þar á meðal kynlíf. Umræðurnar um
kynlíf urðu alltaf heitastar og margar spurningar
komu fram, sumar byggðar á misskilningi, þannig að
Sunneva vildi gera eitthvað í málinu. Ljósmynd/Hari
Sunneva SverriSdóttir Fjallar opinSkátt um kynlíF
Fólk veit meira um
munnmök en BDSM
Kynfræðsluþátturinn Tveir + sex hóf göngu sína á sjónvarpsstöðinni Popp tíví á fimmtudags-
kvöld. Þættirnir eru átta talsins en í þeim kynna vinirnir Sunneva Sverrisdóttir og Veigar Ölnir
Gunnarsson sér ýmsar víddir og fleti á kynlífi og miðla því sem þau komast að til ungs fólks.
Þau njóta leiðsagnar kynfræðingsins Sigríðar Daggar Arnardóttur sem býr yfir mun meiri
þekkingu á viðfangsefninu en krakkarnir sem bæði eru 21 árs.
F yrsti þáttur Tveir + sex fór í loftið á Popp tíví en þáttunum er ætlað að fræða ungt fólk um kynlíf í mjög víðu
samhengi þar sem ekkert verður dregið
undan. „Við fjöllum mjög opinskátt um
efnið meðal annars með því að prufa okkur
áfram,“ segir Sunneva Sverrisdóttir sem sér
um þáttinn ásamt vini sínum Veigari Ölni
Gunnarssyni. Meðal þess sem þau taka
fyrir eru daður, munnmök, kynlífsstellingar
og BDSM.
Sunneva segir þættina fyrst og fremst
vera umræðu- og fræðsluþætti en að
tvíeykið muni þó reyna ýmislegt á eigin
skinni. Hún telur víst að þátturinn muni
vekja umtal en þau fari þó aldrei yfir vel-
sæmismörk. „Við erum með verklega liði í
hverjum þætti og gerum ýmislegt. Allt frá
því að fara í brasilískt vax og á stefnumót
með manneskju af sama kyni,“ segir Sunn-
eva sem bíður spennt eftir því að sjá hvernig
viðtökurnar verða.
Hún segir þau óneitanlega koma sér í
vandræðalegar aðstæður en þá sé gott
að fara í gegnum þetta með góðum
vini. „Við Veigar erum mjög góðir
vinir úr MH. Hann er svo opinn,
skemmtilegur og einlægur
þannig að mér datt í hug að
hann yrði fullkominn með
mér í þetta,“ segir Sunneva
sem er nú að læra viðskipta-
fræði í HR. „Það var frábært
að vinna með honum og við
náum mjög vel saman. Það
var þægilegt að hafa verið vin-
ir áður vegna þess að sumar
aðstæðurnar sem við
komum okkur
í eru ekkert
sérlega
þægileg-
ar ef
maður er í þeim með hverjum sem er.“
Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnar-
dóttir leiðbeinir Sunnevu og Veigari í þætt-
inum og svarar bæði spurningum þeirra og
spurningum frá því unga fólki sem kemur í
þáttinn og tekur þátt í umræðum.
„Það var ómetanlegt að hafa Siggu Dögg
með okkur. Í fyrstu fannst okkur hún svo
rosalega opinská og hún kom okkur mjög á
óvart en núna er maður orðinn svo hispurs-
laus eitthvað. Við vissum í raun ekkert
meira um þetta en aðrir á okkar aldri þegar
við byrjuðum á þessu,“ segir Sunneva sem
hefur orðið margs vísari.
Sunneva segist ekki hafa orðið vör við að
eitthvað sérstakt brenni á ungu fólki þegar
kynlíf er annars vegar. „Þetta er bara for-
vitni út í gegn og við skiptumst á skoðunum
og reynslusögum í þáttunum en það er þó
til dæmis augljóst að ungt fólk veit meira
um munnmök en BDSM. Annars lærðum
við helst það að ramminn utan um kynlíf er
endalaust stór svo lengi sem traust
og virðing ríkir á milli fólks.“
Sunneva segist varla komast
hjá því að roðna yfir ein-
hverju í þáttunum en óttist
ekki að hún þurfi að læðast
með veggjum eftir þetta.
„Málið er bara að hafa
gaman að þessu og njóta
þess að hafa fengið að
gera þetta og vinna að
þessu.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Við
vissum í
raun ekk-
ert meira
um þetta
en aðrir
á okkar
aldri
þegar við
byrjuðum
á þessu.
Ólöf Hugrún gerir ekki upp á milli hunda
og katta en fer létt með að setja sig inn í
hugarheim hunda. Mynd/Rakel Ósk
Skemmtistaðurinn Dolly í Hafnar-
stræti vill vekja sérstaka athygli á
kvenplötusnúðum, eða plötusnæld-
um. Af því tilefni hafa þau efnt til
stelpumars á staðnum. Aðeins kon-
ur munu því koma til með að þeyta
skífum í marsmánuði.
Plötusnúðabransinn hefur að
sögn aðstandenda verið fremur
karllægur hingað til og vilja þau
leggja sitt af mörkum til þess að
breyta því og gera konur sýnilegri
faginu.
„Það fer oft meira fyrir strák-
unum í plötusnúða-faginu og því
viljum við á Dolly vekja athygli á
öllum stelpunum sem eru alveg
jafnvígar strákunum í þessum
bransa. Þessvegna ætlum við að
hygla kvenplötusnúðum sérstak-
lega í mars. Þetta verður heldur
ekki amalegur flokkur færra og
fagurra meyja,“ segir eigandi
Dolly, Dóra Takefusa og lofar
miklu fjöri.
„Við eigum svo frábæra stelpu
„dj–a“ en það vill bara svo oft vera
að strákarnir séu meira áberandi,
hverjar svo sem ástæður þess eru.“
Plötusnældur marsmánuðar
eru að sögn Dóru allt stelpur sem
spila reglulega á staðnum og þarf
því enginn að örvænta um að þær
verði ekki jafn áberandi við mars-
lok.
„Það fer bara minna fyrir þeim
en strákunum og þetta er okkar
framlag til að breyta því,“ útskýrir
Dóra.
Hún bendir öllum þeim sem
langar að prófa að spreyta sig sem
plötusnúðar að koma á staðinn og
tala við rekstrarstjóra en þau séu
alltaf opin fyrir nýju fólki, konum
sem körlum.
Í kvöld spila þær Sunna Margrét
og Þura Stína eða Lay–Dj og Sura
eins og þær kalla sig.
ólöF Hugrún FæSt við Hundalógík
Er ekki geltandi á fjórum fótum á sviðinu
Þetta er
svolítið
manneskju-
leg leið að
þessum
litlu hunda-
sögum.
Eintalasafnið Hundalógík eftir Ástralann
Christopher Johnson verður frumsýnt
í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudags-
kvöld. Fjórir leikarar, Ólöf Hugrún
Valdimarsdóttir, Jón Stefán Sigurðsson,
Ingi Hrafn Hilmarsson og Jón Svavar Jós-
efsson, ætla þar að leiða áhorfendur inn í
sannleikann um hvað gengur á í kollinum
á þessum besta vini mannsins.
„Þetta er ótrúlega skemmtileg og
krúttleg sýning þar sem við köfum aðeins
undir yfirborðið og pælum aðallega í því
hvað hundar gætu mögulega verið að
hugsa,“ segir Ólöf Hugrún.
„Jón Stefán, einn af leikurunum, gróf
þetta verk upp einhvers staðar og fannst
það svo sniðugt að hann þýddi það og hef-
ur dreymt um að koma því á svið þannig
að við erum búin að vera ógeðslega mikið
að pæla í hundum síðan frá því fyrir jól.“
Ólöf Hugrún segir þau öll mikla hunda-
vini og að þau setji hjartað í sýninguna.
„Jájá. Einn af Jónunum í sýningunni, Jón
Svavar, er sveitamaður mikill og hefur
verið mikið með dýrum. Ég átti svo sjálf
alveg snarofvirkan blending af border
collie og íslenskum. Það var hún Týra
sem var frekar vitlaus en ofsalega góð tík.
Ég geri reyndar ekki upp á milli hunda
og katta. Ég er bara einum ketti frá því að
vera klikkuð kattakona en ég er með tvo
og um leið og ég er komin með þrjá þá er
ég komin yfir strikið.“
Tryggð fram á grafarbakkann, lóðarí,
grimmd, botnlaus svengd, hetjuskapur
og næmt þefskyn eru á meðal þess sem
tekið er fyrir í sýningunni. „Við erum
samt manneskjur að leika hunda og erum
ekki á fjórum fótum, geltandi í hundabún-
ingum. Þetta er svolítið manneskjuleg
leið að þessum litlu hundasögum.“
Hundalógík er frumsýnt á sunnudag-
inn en síðan eru fyrirhugaðar sýningar
17. og 19. mars. Allar sýningarnar hefjast
klukkan 19.30. -þþ
Skemmtun Stelpur þeyta SkíFum
Plötusnældur í for-
grunni á Dolly í mars
Lay-Dj og Sura á Dolly.
58 dægurmál Helgin 8.-10. mars 2013